Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2007, Page 32
Sím
Skagamenn vilja
líka eingreiðslur
Vilhjálmur Birgisson, formað-
ur Verkalýðsfélags Akraness, hefur
ákveðið að óska eftir fundi með
bæjarráði Akranesbæjar þar sem
hann ætlar að kanna hvort starfs-
menn bæjarins fái ekki svipaðar
eingreiðslur og sveitarfélög á höf-
uðborgarsvæðinu hafa lofað sínum
starfsmönnum.
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði,
^ Kópavogi og Reykjavík hafa tilkynnt
um fastar eingreiðslur og aðrar
hækkanir til handa starfsmönnum
sínum. Vilhjálmur vill því kanna
hvort fólk í sambærilegum störfum
hjá Akranesbæ fái ekki álíka hækk-
anir og segir óviðunandi ef bæjar-
starfsmenn á Akranesi búi ekki við
sömu kjör og kollegar þeirra annars
staðar.
Eru sjálfstæðismenn
fullir... efasemda?
/
Kaldurog blautur
eftir biðina
Eldri maður beið í um klukku-
stund í köldum bíl sínum eftir að-
stoð eftir að hann missti stjórn á
bílnum og fór út í lón úr Kerlinga-
dalsá austan við Vík í gærmorgun.
Björgunarsveitin í Vík fór til
að bjarga tæplega áttræðum
manninum eftir að vegfarandi
sá bílinn úti í lóninu og hringdi
eftir aðstoð. Ekki var staðfest að
nokkur væri í bílnum fyrr en bátur
björgunarsveitarmanna kom að.
Maðurinn var með meðvitund og
var líðan hans stöðug. Björgunar-
sveitarmenn þurftu að brjóta rúðu
til að ná manninurn út og hann
var orðinn mjög kaldur þegar það
tókst. Sjúkrabíll flutti manninn
til Hvolsvallar en þaðan var hann
fluttur með þyrlu til Reykjavíkur.
Líðan mannsins er eftir atvikum.
Sjö óku dópaðir
Lögreglumenn á Selfossi
stöðvuðu um helgina för sjö öku-
manna sem voru teknir und-
ir áhrifum fíkniefna og fjögurra
að auki sem voru undir áhrifuln
áfengis.
Að sögn lögreglunnar var mik-
ið um ölvun í bænum og einnig
komu upp nokkur slagsmál. Lög-
reglan sinnti einnig tuttugu og
tveimur umferðaróhöppum um
helgina en mildi þykir að aðeins
urðu tvö minniháttar slys á fólki.
FRÉTTASKOT
51 2 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
MANUDAGUR 26. NOVEMBER 2007 ■ DAGBLAÐIÐ VlSIR STOFNAÐ 1910
Össur Skarphéðinsson segir innanflokksátök sjálfstæöismanna dýrkeypt fyrir REI:
SJALFSTÆDISMENN
0SATTIRVIÐ0SSUR
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðomadur skrifar: baldur@dv.is
Kurr er í sumum forystumönnum
Sjálfstæðisflokksins vegna yfirlýsinga
Ossurar Skarphéðinssonar iðnaðar-
ráðherra um að innanflokksátök sjálf-
stæðismanna í Reykjavík hafi kostað
Reykjavik Energy Invest tugi milljarða
króna.
Einn af helstu leiðtogum flokksins
sagði í samtali við DV í gær að Öss-
ur yrði að fara varlega í yfirlýsingum
sínum til að veikja ekki samstarf Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingarinnar.
„Afstaða mín til útrásar
Orkuveitunnar og sexmenninganna
í Sjálfstæðisflokknum hefur margoft
áður komið fram á heimasíðu minni,"
segir Össur. „Ég er algjörlega heill í
samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í
ríkisstjórninni en ég og minn flokkur
erum ekki í samstarfi við þá í stjórn
Reykjavíkurborgar."
þeirra má líklega meta á milljarðatugi
ef miðað er við þá framvindu sem var
í kortunum," skrifaði Össur á heima-
síðu sinni.
Milljarðatugir fyrir bí
ima
Ossur sagði í pistli sem hann skrif-
aði á heimasíðu sína aðfaranótt laug-
ardags að sjálfstæðismenn í borginni
hefðu snúist í afstöðu sinni til REI.
Þetta sagði hann að hefði gerst of seint.
„Harðvítugustuinnanflokksátökseinni
ára í Sjálfstæðisflokknum hafa því mið-
ur nánast ónýtt vörumerkið REI hvað
útrás varðar, og stórskaðað viðskipta-
vild Orkuveitunnar. Skemmdarverk
össur þarf að fara gætilega
Björn Bjamason, dóms- og kirkju-
málaráðherra, segir að flokksbræður
Össurar fari með völd í þessu máli og
því ætti hann að einbeita sér að þeim
sem ráða. Annar forystumaður Sjálf-
stæðisflokksins sagði í samtali við DV
að Össur þurfi að fara varlega í skrif-
um sínum. Samstarfið milli Sjálfstæð-
isflokksins og Samfýlkingarinnar hafi
verið að eflast mikið síðustu vikur
og því sé óæskilegt að gagnrýna full-
trúa samstarfsflokksins harkalega og
rugga þannig bámum.
Össur Skarphéðinsson Segir sjálf-
stæðismenn hafa skipt um skoðun.
Nýr pistill klukkan tvö
Bent hefur verið á að pistilinn
setti Össur inn laust fyrir klukkan tvö
aðfaranótt laugardags. Ýjuðu sumir
netverjar að því að Össur hefði verið
ölvaður þegar hann skrifaði pistillinn.
„Ég geri fastlega ráð fýrir að skjóta inn
nýjum pistli um tvöleytið í nótt," sagði
Össur um kvöldmatarleytið í gær.
Jólamarkaður í Bjarkarási Listmunir og nytjahlutir úr Smiðju Bjarkaráss voru tii sölu á jólamarkaði á laugardaginn. Þar var Ás
vinnustofa einnig með tuskur, handklæði og fleira á boðstólum auk þess sem boðið var upp á heitt súkkulaði og smákökur.
Dæmdur barnaníðingur treystir sér ekki til að mæta nágrönnum:
SIGURBJÖRN SÆVAR SKRIFAR BRÉF
„Hann vissi alveg hvað hann var að
fara út í. Það er ekki rétt að hann hafi
verið plataður í viðtal," segir Þórhallur
Gunnarsson, ritstjóri Kastljóss Ríkis-
sjónvarpsins. Sigurbjörn Sævar Grét-
arsson, dæmdurbarnaníðingur, sagði
í samtali við DV í síðustu viku að hann
hefði verið lokkaður í viðtal á fölskum
forsendum. Hann sagðist hafa kom-
ið í viðtal til þess eins að ræða stöðu
fanga á leið út í samfélagið.
Þórhallur þvertekur fyrir gagnrýni
Sigurbjarnar og segir hann hafa verið
fullkomlega meðvitaðan um efni við-
talsins fýrirfram. „Eftir viðtalið sjálft
kom hann hins vegar á fund til mín
og gerði athugasemdir. Þar sem um
afar viðkvæmt mál er að ræða gerði
ég þá undantekningu að leyfa honum
að horfa á klippt viðtalið fyrir útsend-
ingu. Hann hafði þá ekkert við það að
athuga," segir Þórhallur.
í Kastljósi sagðist Sigurbjörn ætla
að banka upp á hjá nágrönnum sín-
um og tilkynna þeim að hann væri
fluttur í húsið. í samtali við DV sagðist
hann ekki vera búinn að heimsækja
þá og væri að safna til þess orku og
kjarki. „Ég skrifaði á dögunum bréf
sem ég ætla að setja í póstkassann hjá
fólkinu. Þegar ég fór að hugsa meira
um að heimsækja alla nágrannana
fannst mér ég kannski vera að ryðjast
dálítið inn á þeirra svæði."
Dagmóðir í húsinu sendi dreifibréf
til allra í húsinu auk myndar af Sigur-
birni. „Þetta var reyndar ágætismiði.
Það er eiginlega búið að gera þetta
fýrir mig. Eg ætla hins vegar að standa
við það sem ég hef sagt." Sigurbirni
II
Sigurbjörn
Sævar Þykir
leiðinlegt hvaða
áhrif þetta hefur
haft á fjölskyldu
hans.
finnst þó leiðinlegt hvaða áhrif gjörðir
hans og viðbrögð nágrannanna hafa
á fjölskyldu hans. „Móðir mín kom
hingað um daginn. Henni brá mjög að
sjá miðann hér uppi á vegg og sagði:
„Hvað hefur þú gert þessu fólki? Af
hverju er það að ráðast á þig?"
Sigurbjörn var sakfelldur fyrir
kynferðisbrot gegn fimm piltum árið
2004. erla@dv.is
Flugvél
él lenti
í árékstri
Mikil seinkun varð á flugi
Heimsferða frá Kúbu til Keflavík-
ur í gær. Áætluð heimkoma var
klukkan 06.00 en flugvélin skil-
aði sér og 160 farþegum ekki til
landsins fyrr en um miðjan dag.
Cecil Viðar Jensen var á leið
til Keflavíkur að sækja son sinn
í flugið þegar hann fékk sím-
tal. Sonur hans var á línunni og
sagði honum að keyrt hefði verið
á vélina þegar hún millilenti í
Kanada. „Ég fór bæði inn á texta-
varpið og vefinn áður en ég lagði
af stað í bítið, til að fullvissa mig
um að flugvélin væri á áætlun.
Mér finnst ótrúlegt á tækniöld
að skilaboðum um svona miklar
seinkanir skuli ekki vera komið
á netið þegar þær liggja fyrir,"
segir Cecil sem kveðst hafa ætlað
að eyða deginum í annað en að
eltast við upplýsingar sem ekki
fengust.
Keyrtyfir
labradorhund
Labradorhundur drapst eftir
að ekið var yfir hann um helgina.
Hundurinn varð fýrir bfl í umdæmi
lögreglunnar í Borgarnesi og drapst
eftir að ekið var yfir hann.
Nokkuð rólegt var hjá lögreglunni
í Borgarnesi um helgina en einn
var tekinn fyrir ölvunarakstur og
einn fyrir akstur undir áhrifum
eiturlyfja. Lögreglumaður á vakt
segir eiturlyfjaprófin sem tekin voru
í gildi fyrr á þessu ári mjög skilvirk
og nákvæm og nýtist því vel. Prófin
sýna hvort viðkomandi hafi neytt
einhverra eiturlyfja og nánast hversu
langt síðan þeirra var neytt.
Litlar samlokur 39) kr.
+ //7/7) gosglas 100 kr.
= 499 a,