Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Side 15
DV Helgarblað FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 15 Hrun á markaði Fjármála- markaðurinn náði hámarki um mitt sumar og síðan þá hafa nærri 1000 milljarðar horfið af markaðsvirði stærstu fyrirtækja Kauphallar íslands. Sú staðreynd að þre- menningarnir tóku ekki þátt í hlutafjár- aukningu FL Group gefur vísbendingar um að fjárhagsstaða þeirra sé afar erfið. niðursveiflu og vandræði þeirra væru ekki sambærileg við vandamál þeirra fjárfesta sem eru hvað skuld- ugastir. Einn viðmælenda DV sagði þó að hann teldi að þeir verst settu yrðu ekki gjaldþrota, en þeir stæðu vissulega tæpt. Hlutabréf í stærstu fyrirtækjum Kauphallar Islands hafa lækkað um nærri þúsund milljarða króna á ár- inu. Gífurlegar sveiflur hlutabréfa- markaðarins hafa mikil áhrif á mark- aðsvirði fyrirtækja. Sé tekið mið af þeim punkti er íslenski fjármála- markaðurinn var í hámarki á ár- inu, 18. júlí, í samanburði við gengi þeirra fimmtudaginn 6. desember fæst þetta gífurlega hrun um hundr- uð milljarða. Gríðarlegar sveiflur Sveiflur á hlutabréfamarkaði eru hins vegar ekki nýjar af nálinni og eru ekki séríslenskt fyrirbæri. Mun- urinn er þó sá að íslenski markað- urinn er grunnur að því leyti að hlutfallslega fáir hreyfa markað- inn. Fyrir vikið verða sveiflurn- ar skarpari og tíðari. Að þessu sinni hafa samhliða alþjóðlegar sveiflur mik- il áhrif og öll óvissa um framvinduna eykur tauga- tfi y titringinn. £ & Til marks um sveiflurn- 'í- ar lækkaði markaðsvirði FL S í Group um milljarð á meðan 5 mínútna samtali blaða- manns DV við Kauphöll íslands stóð. Séu ein- staka fyrirtæki skoð- uð hefur markaðs- virði Kaupþings lækkað mest á ár- inu. Virði fyrirtæk- isins hefur lækkað um rúma 300 millj- arða samtals, úr 950 milljörðum í 650 milljarða. Exista kem- ur næst og hefur lækkað um rúma 200 millj- arða frá hápunkti ársins. Þá er það FL Group en markaðsvirði félagsins hefur far- ið úr tæpum 250 milljörðum í nærri 150 milljarða, niður um tæpa 100 milljarða. Sé aftur tekið tillit til hluta- fjáraukningar á tímabilinu er hrunið í raun nálægt 120 milljörðum. Erfitt að leggja fram tryggingar Sá veruleiki sem stórir íslensk- ir áhættufjárfestar standa frammi fyrir nú um stundir, er að þeir hafa margir þurft að leggja fram tryggara veð fyrir lánum sem þeir hafa tekið fyrir hlutabréfum. Sem dæmi má nefna fjárfesti sem kaupir hluta- bréf í ónefndu félagi fyrir 10 millj- arða króna, þar af koma um 2,5 milljarðar af hans eigin peningum en afgangurinn er lánsfé frá banka. Hækki bréfin mikið í virði og góðar framtíðarhorfur á markaðnum get- ur fjárfestirinn leitað til bankans og fengið meira lán til þess að fjár- festa enn frekar í von um að bréfin hækki. Þessa aðferð hafa íslenskir fjárfestar notað með ágætum ár- angri. En svo getur sú staða komið upp að bréfin lækka það mikið í virði að þau eru komin niður fyrir andvirði lánanna, eins og gerst hefur á síð- ustu vikum. Þá getur bankinn farið fram á frekari tryggingu fyrir lánun- um og ef viðkomandi get- ur ekki lagt hana fram hefur bank- inn þann möguleika að selja bréf- in upp í skuld. Viðmælendur DV úr fjármálaheiminum sammælast allir um að fullvíst sé að Þorsteinn M. Jónsson, Magnús Ármanns og Hannes Smárason hafi allir borið mjög skertan hlut frá borði og það sé líklegt að þeir eigi í erfiðleikum með að leggja ffam tryggingar. Glæsileg tapsaga „Menn hafa verið að gera ýmis- legt sem þeir höfðu ekki vit á. Ef við skoðum til dæmis Hannes Smára- son og sögu hans hjá FL Group og Decode kemur í ljós mjög glæsileg tapsaga sem skrifast á hann," segir Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla fslands. Hann telur ljóst að bið verði á því að íslensku útrásarfyrirtækin muni fara í stór fjárfestingarverkefni. Fjárfestingafélög eins og Atorka, Ex- ista og FL Group verði að gera betur grein fyrir verkefnum sínum í ffam- tíðinni að hans mati. Oddaflug BV, sem er félag í eigu Hannesar Smárasonar, var stærsti hluthafinn í FL Group með 20,52 prósenta hlut en á nú 13,7 prósent. Baugur, í gegnum BG Capital, er nú langstærsti eigandi FL Group með 35,9 prósenta hlut en hlut- ur , Materia In- vest í eigu Magnúsar Ármanns, Kevins Stanford og Þorsteins M. Jónssonar er nú 6,2 prósent í stað 9,23 prósenta hlut áður. Félagið hef- ur keypt bréf í FL fyrir 18,3 millj- arða laóna en miðað við núgildandi gengi er virði þeirra aðeins rúmir 15 milljarðar króna. Gengi bréfa í FL Group fór hæst í 33,2 krónur á hlut í lok febrúar, en hefur fallið um 50 prósent síðan þá. Óttast dómínó-áhrif Fari svo að aðgerðir tíl að rífa FL Group upp úr þeirri miklu lægð sem félagið hefur verið í beri ekki tilætl- aðan árangur getur það haft keðju- verkandi áhrif. Þannig myndu erfiðleikar FL Group bitna fyrst á Glitni sem er með mikla starfsemi á Norðurlöndum, þaðan gæti það smitast til Kaupþings og svo áfram út tíl annarra útrásarfyrirtækja. Vil- hjálmur telur óhjákvæmilegt að fjárfestar missi trúna á íslensku útrásarfyrirtækjunum. „Fjárfest- ar munu ekki treysta þeim eins og staðan er í dag," segir Vilhjálmur. Gunnar hefur einnig áhyggj- ur af slíkri keðjuverkun þannig að fall eins fjárfestis geti haft áhrif á aðra. „Vandinn er hið . mikla krosseignarhald sem er á félögun- um og nú gæti reynt á hvemig þetta hangir saman. Krosseignarhaldið getur gert fjármögnun erlendis erf- iðari. Það er hugsanlegt að einhvers konar dómínó-áhrif verði raun- in og verðmæti eigna allra félag- anna rýrni eða fái á sig högg. Það er samt ekki þar með sagt að allir fari á hausinn en eins manns dauði gætí orðið annars manns dauði," segir Gunnar. trausti@dv.is valgeir@dv.is Jón Ásgeir Jóhannesson Stjómarformaöur Baugs er talinn standa af sér óveðrið þó svo að niðursveiflan hafi einnig áhrif á burðugustu fjárfestana. Magnus Armann A enn hlut í FL Group í gegnum fjárfestingafélagið Materia Invest en Ijóst að hann hefur tapað miklu undanfarið. BAKKAVOR MARKAÐSVIRÐI BAKKAVARAR 18. júlí 155 6. des 126 ALLARTÖLUR ERU IMILLJÖRÐUM KRÖNA MARKAÐSVIRÐI KAUPÞINGS 18. júlí 949 6. des 640 MARKAÐSVIRÐI EXISTA 18. júlí 457 6. des 257 MARKAÐSVIRÐI GLITNIS 18. júlí 455 6. des 342 MARKAÐSVIRÐI FLGROUP 18. júlí 244 6. des 145 MARKAÐSVIRÐI STRAUMS 18. júlí 241 6. des 161 MARKAÐSVIRÐI LANDSBANKANS 18. júlí 456 6. des 395

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.