Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 Ferðir DV Keypt fyrir jólin Björg segir marga fara I innkaupa- feröirtil Bandaríkjanna. Spægipylsa er hituð en ekkisoðin Þvfmáekki koma með hana til landsins. U FERÐINNI Umsjón: Baldur Guðmundsson. Netfang: batdur@dv.is Flugstöð Leifs Eiríkssonar Björg Valtýsdóttir, deildarstjóri tollgæslunnar, segir að tollgæslumenn verði að treysta á heiðarleika fólks. Jólaklifur Islenski Alpaklúbburinn heldur úti öflugri starfsemi allt árið um kring. Desembermánuður er engin undantekning en 15. desember stendur hann fyrir svokölluðu jólaklifri. Klifrað verður i nágrenni borgarinnar þar sem (s-aðstæður leyfa. Ef snjór og áhugi er nægur verður einnig farið á skíði þar sem stefnan verður tekin á einhvern topp í nágrenninu. Að þessu loknu erfólki stefnt niður (Klifurhús þar sem klúbburinn býður (glögg og piparkökur. Nánari upplýsingar á isalp.is. Hvers vegna er 13 sögð óhappatala? Sú skýring sem heyrist Kklega oftast á neikvæðri ímynd tölunnar 13 er að við síðustu kvöldmáltið Krists hafi verið samtals þrettán menn. Óorðið sem föstudagurinn þrettándi hefur á sér má svo meðal annars rekja til þess að krossfesting Krists á að hafa farið fram á föstudegi. Á hinn bóginn er sagt að sums staðar sé 13 talin heillatala. Þar eru til dæmis nefndir Forn-Egyptar, en hjá þeim var þrettánda skeið lífshlaupsins dauðinn, eða lífið eftir dauðann, sem hafði jákvæða merkingu. Þetta segir á Vísindavefnum. Björg Valtýsdóttir, deildarstjóri toll- gæslunnar á Keflavíkurflugvelli, segir farþega frá Bandaríkjunum versla meira en aðra enda sé dollarinn lágur. Aðventuferð íBása Rétt er að minna á hina óviðjafnan- legu og árlegu aðventuferö (Bása helgina 8. til 9. desember. Ferðafélag- iö Utivist stendur fyrir feröinni en hún er opin öllum. Þetta er notaleg ferð þar sem hægt er að slaka á og njóta aðventunnar langt frá stressi stórborgarinnar. Farið verður (léttar göngurog haldin kvöldvaka auk þess sem þar veröur ein sameiginleg máltíð þar sem hver og einn kemur með mat á hlaðborðið. Nánari upplýsingar á utivist.is. Skaftafell í Öræfum Út er komin bókin Skaftafell ( Öræfum - fslands þúsund ár. Hún er eftir breska fjallavistfræð- inginn dr. Jack D. Ives en (rannsóknarleiööngrum enskra háskólanema til fslands kannaði hann meðal annars Morsárjökul, Svlnafellsjökul og Skaftafellsjökul. Bæði masters- og doktorsverkefni hans fjölluðu um öræfin og Morsárjökul. Höfundur tekur saman efni um náttúru og mannlíf í Öræfum frá landsnámsöld fram á okkar daga auk þess sem hann fjallar um þjóðgarðinn ISkaftafelli. I bókinni segir einnig frá áhrifamikilli sögu tveggja leiðangursmanna sem týndust á Hvannadalshnjúk árið 1953. Bókin er einnig fáanleg á ensku en Ormstunga gefur bókina út. Áramót íBásum Þó flest ferðafélög liggi I dvala yfir svartasta skammdegið er það ekki reyndin hjá Ferðafélaginu Útivist. Undanfarin ár hefur skapast hefð fyrir þv( að fara (svokallaða áramótaferð Bása. Áramót (Básum eru sérstök upplifun. Það er einstakt að fagna nýju ári á fjöllum og strengja ný heit. Nýju ári er heilsað með áramótabrennu, blysum, kyndlum og flugeldum en dagarnir nýttirtil gönguferða. Nánari upplýsingar má finna á utivist.is en allir eru velkomnir i þessa ferð. fólk reyni að ljúga til um uppruna vara. „Því miður koma alltaf til okk- ar einstaklingar sem byrja á því að fullyrða að þeir hafi farið með hlut- inn héðan. Einn kom til dæmis um daginn með gítar í tösku til landsins og hélt því fram að hann hefði far- ið með gítarinn út til að kaupa utan um hann tösku. Seinna kom svo á daginn að hann hafði keypt gítar- inn úti og því missti hann gripinn, enda var hann kærður. Þetta kemur alltaf í ljós fyrr eða síðar og þá getur fólk verið búið að spila sínum spil- um þannig að það missi hlutinn. Það borgar sig ekki að ljúga. Það er miklu betra að koma hreint fram heldur en að hætta á það að málið fari í sektarmeðferð." Engin spægipylsa Nokkuð ber á því að fólk reyni að koma með hluti til landsins sem ekki má flytja inn. „Það er bannað að koma með ósoðna matvöru til landsins. Salamipylsa er bönnuð því hún er ekki soðin heldur hituð. Það er ekki nóg til að heimila innflutning. Svo er snusið (neftóbakið) auðvitað bannað og hnífar með lengra blaði en 12 sentímetra eru bannaðir. Fólk hefur stundum verið að reyna að koma með sverð eða sveðjur til landsins. Jafnvel þótt það séu skrautmunir eru þessir hlutir bannaðir nema með sérstöku leytí lögreglustjóra," segir Björg og bætir við: „Auk þessa er bannað að koma með meiri matvöru til landsins en þrjú kíló, nema af henni séu greidd gjöld. Sælgætið er þar á meðal." þrjá farþega úr hverri vél," segir hún en 15 prósent tollur er á fatnaði auk þess sem tollur er af vörum frá Am- eríku. Björg segir að fólk taki allajafna vel í að greiða af þeim vörum sem það kemur með til landsins, um- fram 46 þúsund krónurnar. „Margir vita af því að þeir hafi verslað meira en kvótinn segir til um og hafa meðferðis kvittanir til að flýta fyrir og auðvelda afgreiðslu. Þetta tekur ekki langan tíma ef fólk er heiðar- legt og fúst til samstarfs. Sumir bera við vanþekkingu og segjast ekki hafa vitað af því að upphæðin væri svona lág," segir Björg. Viljum ekki rukka fólk tvisvar f haust spratt upp umræða um að farþegar hefðu lent í vandræð- um þegar þeir komu með mynda- vélarnar eða tölvurnar sínar aftur til landsins. Björg segir ekki hafa borið mikið á því undanfarið. „Við rukk- um ekki fólk ef það getur sannar- lega sýnt að það hefur keypt hlutinn hér heima. Það er ekki metnaður okkar að reyna að rukka fólk tvisv- ar um gjöld á vörum. Þegar við höf- Stíla inn á heiðarleika Björg segir ómögulegt að at- huga föggur allra þeirra sem koma til landsins. „Við reynum að spyrja fólk og stíla inn á heiðarleika þess í staðinn fyrir að athuga í hveija og eina tösku. Það myndi taka óratíma og við getum bara athugað tvo til um verið í vafa um hvort hluturinn er nýr eða ekki er fólki gefinn kostur á að senda okkur kvittun eða stað- festingu frá versluninni um að var- an hafi verið keypt hérlendis," seg- ir Björg en bætir við að starfsmenn tollsins séu klókir að finna út hvað- an vörurnar koma. Borgar sig ekki að Ijúga Björg segir nokkuð bera á því að Hver einstaklingur má koma með varning til landsins fyrir 46 þúsund krónur. Þar af má einn hlutur ekki kosta meira en 23 þúsund krónur," segir Bj örg Valtýsdóttir, deildarstjóri tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli, en nú flykkist landinn í verslunar- ferðir til útlanda. „Við náum ekki til allra, eins og við myndum vilja gera. Á því væri mest þörf þegar fólk er að koma úr verslunarferðum frá Bandaríkjunum. Fólk virðist versla sérstaklega mikið þar enda dollar- inn mjög lágur um þessar mundir," segir Björg og bætir við: „Fólk virð- ist ekki fara í stórum stíl til annarra landa til að versla, eins og marg- ir halda heldur er þetta langmest áberandi í Ameríkufluginu."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.