Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 Sport Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, á að baki langan og glæsilegan feril sem leikmaður og þjálfari. Júlíus, sem er 43 ára, lék í tíu ár sem atvinnumaður í Frakklandi, Spáni, Þýskalandi og Sviss, spilaði 288 landsleiki fyrir ísland og skoraði í þeim 703 mörk. Júlíus er uppalinn Valsari og er hluti af kynslóð Valsmanna sem telur marga af bestu handboltamönnum þjóðarinnar. „Ég ólst upp í Hlíðunum og fór ungur á Hlíðarenda. Ég byrjaði reynd- ar ekki fyrr en ellefu eða tólf ára að æfa handbolta og lenti í '64 og '65 kynslóðinni. Við vorum mjög sigur- sælir alla yngri flokka og svo í meist- araflokki áður en við tvístruðumst um heiminn. Þeir helstu í hópnum voru Valdi Gríms, Geiri Sveins, Jak- ob Sig, Jón Kristjáns og Guðni Bergs var með okkur líka. Stebbi Hilmars var með okkur fyrsm árin, svo snéri hann sér að öðru og er mjög góður í því sem hann gerir. Þessi hópur plús fleiri Valsarar, fyrir utan Stebba Hilm- ars, hittist vikulega í hádegismat," seg- ir Júlíus, sem æfði einnig knattspyrnu sem strákur en ákvað að velja hand- boltann á endanum. „Ég tók ákvörðun nokkuð snemma um að taka handboltann ff am yfir fót- boltann. Ég veit ekki hvort ég hafi skynjað það að ég myndi ná lengra í handboltanum eða skynjað að ég væri hrikalega lélegur í fótbolta. Hand- boltinn heillaði mig meira og ég hætti fljótlega að æfa fótbolta í Val. Ég flutti reyndar út á Seltjamames og stund- aði fótboltann þar meira sem hobbí en að ætla mér eitthvað," segir Júlíus. Hjá Val æfði Júlíus handbolta undir stjórn Borisar Akbaschev, sem þjálfað hefur marga af bestu hand- boltamönnum landsins. Júlíus segir að margt hafi breyst til hins betra með tilkomu Borisar til Vals. „Ég var í raun ekkert afgerandi í yngri flokkum. Ég var ekkert sérstak- lega stór en stækkaði mikið þegar ég var fjórtán og fimmtán ára. Það var á svipuðum tíma og Boris kom til Vals og hann breytti svolítið stöðunum hjá okkur. Hann setti mig í skyttustöðuna, þrátt fyrir að ég væri kannski ekki al- veg búinn að taka út fullan vöxt. En hann sá hvernig ég var vaxinn, ég var með langar hendur og langa leggi og hann sá foreldra mína og hann veðj- aði á það að ég yrði stór. Þetta gerði hann við alla leikmenn. Það var ekki fyrr en ég varð sautján eða átján ára að ég fór að verða meiri handbolta- maður en áður," segir Júlíus og bætir við að hann hafi verið mjög heppinn með þjálfara hjá Val. „Boris nánast ól okkur upp. Tobbi Jens tók svo við honum og var með okkur síðar í meistaraflokki. Hilmar Bjöms var líka með okkur. Þannig að ég hef verið mjög lánsamur með þjálf- ara. Boris kenndi okkur langmest og kenndi okkur gmnninn. Við lærðum mikið og fómm meðal annars með honum til Sovétríkjanna á æfingamót á hans heimaslóðir. Hann ætlaði sér að yngja liðið þegar við kæmum upp í meistaraflokkinn og hann gerði það. Við fengum snemma stór hlutverk í meistaraflokknum, þó að við höfum þurft að bíða aðeins með að verða meistarar. En við gerðum það með glæsibrag þegar að því kom," segir Júlíus. Hann var íslands- og bikarmeist- ari með Val árið 1988 og aftur Islands- meistari með liðinu ári síðar. „Eftir það tvístraðist hópurinn aðeins, alla- vega fómm við Geiri í burtu þá. Við ætluðum okkur að ná þessu áður en við fæmm að hugsa um eitthvað ann- að." Fyrstur íslendinga til Frakklands Eftir íslandsmeistaratitilinn 1989 hélt Júlíus í atvinnumennsku, á 25. aldursári. Fyrsti viðkomustaður hans Handboltakappinn Júlíus Jónasson hefur víöa komið við á löngum ferli sem leik- maður og þjálfari. Hann vann tvo íslandsmeistaratitla með Valsmönnum og einn bikarmeistaratitil með félaginu, bikarmeistaratitil sem þjálfari ÍR og varð Evr- ópumeistari árið 1994 með spænska liðinu CBM Alzira Avidesa, skömmu áður en liðiö varð gjaldþrota. Hann stýrir nú íslenska kvennalandsliðinu í handbolta sem náði á dögunum frábærum árangri í undankeppni EM. Dagur Sveinn Dagbjarts- son settist í vikunni niður með Júlíusi og fór yfir litríkan feril kappans. var Frakkland og liðið var Paris-Asni- eres, þar sem hann lék meðal annars með ungum og efnilegum handbolta- manni að nafni Jackson Richardson. Júlíus lék samtals í þrjú ár í París en á síðasta tímabili hans hjá félaginu var nafni félagsins breytt í Paris St. Ger- main. „Ég taldi þetta vera rétta tím- ann og áttí möguleika á að fara fyrr út, tveimur árum fyrr. Jú, jú, mann langaði, en ég taldi að það væri ekld rétta augnablikið og vildi verða meist- ari með Val áður. Eftír að við urðum meistarar fyrra árið opnaðist mögu- leiki en ég ákvað að vera eitt ár í við- bót. Ég sé ekkert eftir því og ég held að ég hafi alveg gert rétt, því maður var hálfgerður kjúklingur. Á þessum tíma var umhverfið öðruvísi en núna. I fyrsta lagi var bara leyft að einn útlendingur væri hjá hverju liði og ég var því eini útlend- ingurinn. Mesti peningurinn var lagð- ur í útlendinginn og mesta pressan og það hefði ekki verið neitt grín að fara tvítugur eða rétt rúmlega tvítugur út. Þú þurftir að geta þolað álagið. Miðað við aldur, þá fór ég á góðum tíma. Ég fór kannski óhefðbundna leið. Ég áttí möguleika á að fara á árun- um áður tíl Þýskalands. Ég tók þessa ákvörðun, að vera fyrsti íslendingur-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.