Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Blaðsíða 70
70 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007
Síðast en ekki síst DV
»
VIKUNNAR
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála-
ráðherra faer fullt hús stjarna fyrir að
beita sérötullega (málefnum aldraðra
og öryrkja. Ríkisstjórnin kynnti á
dögunum löngu tímabæra aðgerðaá-
ætlun til að bæta stöðu þeirra með því
að verja 5 milljörðum í málaflokkinn á
komandi árum. I þessu sambandi verður
skerðing tryggingabóta vegna tekna
maka loksins
afnumin og
frítekjumark
vegna atvinnu-
tekna ellilífeyris-
þega hækkað.
Freyja Haraldsdóttir fær þrjár stjörnur
fyrir að hafa vakið fólk til umhugsunar
um stöðu fatlaðra í samfélaginu. Hún
fékk á dögunum Hvatningarverðlaun
Öryrkjabandalagsins og var vel að þeim
komin. Freyja hefur sýnt og sannað að
fatiaðir eru fullgildir samfélagsþegnar.
Meðal afreka hennar er að þræða
framhaldsskólana og fræða nemendur
undir yfirskrift-
inni: Það eru
forréttindi að lifa
með fötlun.
Hope Knútsdóttir, formaður
Siðmenntar, læturekki deigan síga þrátt
fyrir ofstækisfullar persónuárásir að
undanförnu og fær hún því eina stjörnu.
Fólk sem er ósátt við þaráttu Siðmennt-
ar gegn trúboði (skólum hefur hringt (
Hope með skömmum dag og nótt. (
samtali við DV sagðist hún hafa verið
kölluð bæði anarkisti og nasisti af fólki
sem vill halda kristnu trúboði í
grunnskólum.
fslenska kvennalandsliðið í handbolta
hefur sannarlega staðið sig vel að
undanförnu og fær heilar tvær stjörnur.
Liðið lenti (öðru sæti síns riðils í
undankeppni Evrópumeistaramótsins
og tryggði sér rétt til umspils um laust
sæti í lokakeppninni. Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir, línumaður úr Gróttu,
fór þar fremst í flokki en hún var valin í
úrvalslið mótsins.
LANGAÐIAÐEINSAÐ
HEYRAÍ KARLINUM
Vífíll AtlaSOn, ungur hrekkjalómur,
hringdi í ritara sjáfs George W. Bush Banda-
ríkjaforseta, kynnti sig sem Ólaf Ragnar Gríms-
son og óskaði eftir samtali við Bush. Ritari for-
setans bókaði símafund milli„Ólafs" og Bush
síðasliðinn mánudag. Eins og dv.is greindi frá
fékk Vífill aftur á móti heimsókn frá íslenskum
löggæsluyfirvöldum í staðinn. Hafði þá banda-
ríska leyniþjónustan CIA verið í sambandi við
lögregluna um að maðkur væri í mysunni.
Hver er maðurinn?
„Víflll Atlason hrekkjalómur."
Hvað gerir þú?
„Ég er nemi í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi."
Hver eru þín áhugamál?
„Ég kann að meta góðan mat, góða
tónlist og svo auðvitað vini mína."
Stundar þú einhverjar íþróttir?
„Neibb, ég er samt ekki feitur."
Hefur þú búið erlendis?
„Nei, því miður, en mig dreymir
um að búa í Finnlandi."
Uppáhaldsstaður?
„Finnland."
Besti matur?
„12" bræðingur frá Subway í ít-
ölsku brauði með aukabeikoni, káii,
gúrkum, lauk, ólífum, léttmajónesi,
barbeque-sósu og ostasósu."
Uppáhaldshljómsveitin þín?
„Ríó tríó."
Neyðarlegasta atvikið sem þú
hefur lent í?
„Einu sinni var tekið smá viðtal
við mig í fréttunum á sjómannadag-
inn og ég rann til og datt alveg hrika-
lega klaufalega og þeir sýndu það í
sjónvarpinu."
Hvernig kom það til að þú
ákvaðst að hringja í Bush?
„Mig langaði bara aðeins að heyra
í karlinum."
Hvað hefðir þú sagt við Bush?
„Ég ætlaði að bjóða honum til fs-
lands, spjalla svolítið og fara jafnvel
með honum til Finnlands ef það væri
hægt."
Sérð þú ekkert eftir þessu?
„Nei, það er eitthvað lítið."
Óttast þú afleiðingar hrekksins?
„Nei, alls ekki, lögreglan kom og
sótti mig og fór með mig niður á stöð
en þeir höfðu nú bara lúmskt gaman
afþessu."
Hver er þín fyrirmynd?
„Tarja Hcdonen, forseti Finn-
lands."
Hver er draumurinn?
„Fara til Finnlands, fara í gufu og
hafa það gott.“
SANDKORN
■ Fjöldi fólks mætti á Gauk á
Stöng á föstudaginn þar sem
rapptónleikar áttu að fara fram.
Því miður
varð her-
singinnað
snúa við á
punktinum
þar sem tón-
leikahaldari
hafði ekki til-
skilin leyfi til
skemmtana-
halds. Meðal þeirra sem áttu að
spila á tónleikunum voru rappar-
inn Dabbi T sem gaf út plötuna
Óheflað málfar í haust, Skábræð-
ur, Óskar Axel og Stebbi HD. Sá
síðastnefndi er æfur út af málinu
og segist hafa æft sig í fleiri vikur
fyrir giggið og íhugar að lögsækja
tónieikahaldarann. Það verður
víst hægara sagt en gert þar sem
sá er aðeins 15 ára.
■ Bardagakappinn Gunnar Nel-
son komst nýlega á síður blaðsins
þegar hann gerði sér lítið fyrir og
lagði hinn
þrautreynda i ^
Hollending
Niek Tromp
í keppni á ír-
landi. Gunn-
arkemur
heim til ís-
lands fyrir jól,
en hann hef-
ur dvalið á Bretlandseyjum við æf-
ingar frá því í haust. Tókst Gunn-
ari að fá einn bardaga til viðbótar
áður en haldið verður heim á leið.
Gunnar keppir næstkomandi
sunnudag í keppni sem ber heitir
Angerrr management. Andstæð-
ingurinn að þessu sinni er breskur
að nafni Barry Mairs. Er það hald
manna að Gunnar fari létt með
drenginn, en taka verður þó ffarn
að enginn bardagi í blönduðum
bardagalistum er auðveldur.
■ Hljómsveitin Hjaltalín var í við-
tali hjá þeim Capone-bræðrum í
gærmorgun. Þar barst umræðan
að plötu-
dómum og
gagnrýnií
íslenskum
dagblöð-
umogvoru
menn á einu
máliumþað
að íslenskir
gagnrýnend-
ur væru gríðarlega mjúkir. Meðal
annars höfðú menn orð á því að
varla væri hægt að opna dagblöð-
in án þess að reka augun í fjögurra
og fimm stjömu dóma um geisla-
diska eða tónleika. Andri minntist
meira að segja á það að það væri
eins og íslenskar hijómsveitir
fengju strax eina stjömu bara fyrir
ómaJdð að nenna að búa til tónlist
á íslandi. Þess má geta að Hjalta-
lín fékk einmitt fimm stjömu dóm
í Fréttablaðinu fyrir plötu sína
Sleepdrunk Seasons.
dori@dv.is
Vinalega vetrarveðrátta
„Það kom að því að veðrið róaðist og
það kom líka að því að lægðunum var
beint í áttina til Bretlandseyja.Tími til
kominn segja sumir," segir Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur.„Hér
uppi á Islandi þýðir þessi breyting að
kaldara loft úr norðri og vestri á
greiðari aðgang. Um helgina kólnar
heldur, en vart hægt að tala um annað
en að vægt frost verði á landinu.
Vindur víðast hvar mjög hægur, sums
staðar einhver él eða minniháttar
snjókoma um tíma, einkum nærri
sjávarsiðunni en að öðru leyti fremur
lítið um ský og það sem sumir mundu
kalla fallegt vetrarveður og aðrir
draumajólaveður, (í það minnsta þar
sem snjór er yfir!). Hið aðgerðarlitla
ástand mun að öllum líkindum var
fram á mánudag, en á þriðjudag má
vænta suðaustanáttar með
blota, en sú þýða lítur núna út í
fyrir að verða minniháttar,
hvað svo sem síðar verður. 1'
Einar Sveinujörnsson,
vedurfræðingur