Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
ReynirTraustason og Sigurjón M. Egilsson ábm.
FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Asmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins á stafraenu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Oll viötöl blaösins eru hljóðrituö.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40.
SAIVDKORIV
■ Kolbrún Halldórsdóttir gerði
illt verra þegar hún spurðist íyrir
um litinn á klæðnaði nýbura.
Fólki fannst
Kolbrún eiga
að nota tím-
ann sem hún
hefur til betri
°g gagnlegri
hluta. Kol-
brún er dæmi
um hversu
illa er hægt
að fara með ágætan málflutning.
Skaut sig í fótinn. Eflaust meinar
hún vel. Mikið skortir á jafnrétti
hjá okkur og margt þarf að gera
til að laga það sem ekki er í lagi.
Þess vegna er svo mikilsvert að
halda umræðunni þannig að allir
skilji og allir vilji taka þátt. Kol-
brúnu mistókst.
■ Sama má segja um trúleys-
ingja. Þeir hafa eðlilega margt til
síns máls. Nútíminn krefst þess
að kristið fólk og trúað hlusti
eftir því sem trúleysingjar segja.
Annað er barasta fráleitt. Það
er í höndum gagnrýnendanna,
þeirra trúlausu, að stýra umræð-
unni. Það
erujúþeir
sem gagn-
rýnaþað
sem fyrir er.
Þeirvirðast
sækja í anda
Kolbrúnar.
Þegar þeir
meira að
segja finna að íslenska fánanum
eru þeir að skjóta sig í fótinn. Þó
krossinn í fánanum sé í upphafi
tákn kristinnar trúar er íjarri að
okkur þykir fáninn vera trúar-
tákn.
■ Svo er annað. í umræðunni
hafa margir blandað saman trú
og trúarbrögðum. Þær lífsreglur
sem má lesa úr boðorðunum eru
fínar og vonandi er að sem flestir
tileinki sér þær og lifi samkvæmt
þeim. Það segir aftur ekkert um
stöðu kristinnar kirkju í samfé-
laginu. Þó flest okkar tileinki sér
umburðarlyndi, kærleik, vænt-
umþykju, auðmýkt og annað það
góða sem í okkur býr þarf það
ekki endilega að hafa nokkuð
með Þjóðkirkjuna að gera. Ekkert
frekar. Trúlaus maður getur verið
jafn góður þeim trúaða.
■ Kirkjan er nauðsynleg. Hlut-
verk hennar er margþætt. Þegar
raunir verða og við eigum bágt
gegnir kirkjan miklu máli. Einnig
á mörgum gleðistundum. Samt
verður kirkjan og þjónar hennar
að gæta að stöðu sinni. Hún er
viðkvæm þar
sem hér eru
mörg önnur
trúarbrögð
en hún
boðar. Það
verður að
koma fram
við minni-
hlutann
af virðingu. Það gemm við við
samkynhneigða, fadaða, útíend-
inga og allt það fólk sem með
einhverjum hætti telst til minni-
hlutahópa. Kirkjan og málsvarar
hennar verða að gera það gagn-
vart trúleysingjum. Eins verða
þeir að koma fram við kirkjuna
og kristíð fólk af virðingu og
skilningi. -sme
f !
j Harmleilair í Grímsey
LEIÐARI
REYNIR TRAUSTASON RITSTJORI SKRIFAR
Glicpamenn framtidarinnar mcga vita ad um þeirra mál verdurjjallad afsaniigirni.
Samfélagið í Grímsey er harmi lostið eftir að sveitarstjór-
inn þar varð uppvís að þjófnaði á olíu og er grunaður um
stórsfelld svik gagnvart sveitarsjóði og þar með íbúum
þorpsins. Grímseyingar eru aðeins um 100 talsins og af-
brot sveitarstjórans snerta hvern einasta þeirra með einhverjum
hætti. Sá sársauki er því miður nauðsynlegur og ekki við neinn
annan að sakast en þann sem braut gegn lögum og varð uppvís
að því að bregðast samfélagi sínu. Mál sveitarstjórans veu1 fyrst
opinberað á síðun DV þar sem fjallað var um játningu hans á
olíuþjófnaðinum. Nokkur umræða spratt í kjölfarið um birtingu
á nöfnum og myndum sakamanna. Jafnvel var ýjað að því að DV
hefði farið of langt með því að iýsa athæfi sveitarstjórans sem þó
hafði játað þjófnaðinn. Nafnlaus innhringjandi á útvarpsstöð
gekk svo langt að tengja málið við svokallað ísafjarðarmál þar
sem meintur gerandi í kynferðisbrotamáli fyrirfór sér sama dag
og hann var á forsíðu DV. Sú samlíking er einkar ósmekkleg þar
sem núverandi ritstjórn hefur allt önnur viðmið í fréttamennsku
og framsetningu en sú sem var í þá daga. Engin hefur dregið dul
á að stórfelld mistök voru gerð með því að gera út á fötlun manns
sem borinn var alvarlegum sökum. Þáverandi ritstjórar viður-
kenndu mistök sín með því að segja sig frá störfum sínum.
DV mun sem fyrr birta nöfn og myndir þeirra sem uppvísir verða
að glæpum þótt um eðlilegar undantekningar verði að ræða. Það
væri hræsni að nálgast málin með öðrum hætti. Slíkt kynni að
losa ritstjómir undan skömmum glæpamanna og aðstandenda
þeirra en jafnframt leiðir þetta af sér það vandamál að kjafta-
sögur rísa um það hver sé nafnlausi þrjóturinn í umfjölluninni.
Grímseyjarmálið er einkar dapurlegt vegna smæðar samfélags-
ins og þess að forsvarsmaður þess missteig sig á vegi dyggðar-
innar. En það er óumflýjanlegt að fjalla um slík mál undir nafni
þess sem verknaðinn fremur. Glæpamenn framtíðarinnar mega
vita að um þeirra mál verður fjallað af sanngirni þar sem nöfn
eru uppi á borðinu. En þeir verða ekki uppnefndir eða reynt að
niðurlægja þá með umfjölluninni.
G0TT ER BLESSAÐ ÍHALDIÐ
Sæmd er hverri þjóð að góðu
íhaldi. Mikið er gott að vita
hversu vel menn geta verið
innmúraðir og innvígðir. Það er
vegna þeirra eiginleika sem allt
spilast jafn vel og það gerir. Bless-
að íhaldið, blessað íhaldið. Nú hef-
ur það fundið sér sérstakt, verðugt
og göfugt verkefni. Ekki gleymist
hið fornkveðna; blessað stríðið
sem gerði syni mína ríka. Þó stríðið
sé búið, herinn farinn og allt það
er ekki of seint að græða. Ó, nei,
ó, nei. Það kann íhaldið best og
meira að segja betur en Framsókn.
Þá er reyndar mikið sagt. En það
er satt, sennilegast er það
Það voru ekki
ein eða tvær
íbúðir sem
íhaldsmennirn-
ir tryggðu sér á
lægsta verði sem
þekkist. Nei, ó
nei. Vel á annað
þúsund. Svo stórt er
íhaldið og svo gott er að vera inn-
múraður og innvígður. Það gef-
ur vel af sér. íhaldið sér um sína.
Alþingi Islendinga logaði vegna
íbúðakaupa innvígðra og innmúr-
aðra. Þingmenn kepptust við að
lýsa yfir forundran og ósætti með
forgang íhaldsmannanna. Það
hvessti á þingi. Þingmenn vilja fá
að sjá allt heila klabbið. Ekkert á
að verða útundan. Ekkert og alls
ekkert. Umræðan var hvöss. Það
var hvasst á Alþingi.
þeirra innvígðu.
Það segir frá
þegar íhalds-
menn kaupa
og kaupa og
kaupa eignir
af ríkinu. Hirða
síðasta stríðs-
góssið. Innmúrað-
ir og innvígðir kunna leikinn. Þeir
þegja bara. Þannig lýkur þessu.
Þeir halda eignunum, íhaldsblöðin
þegja og allir strákarnir, það hefur
engin kona komið nálægt þessu,
bíða bara og bíða. Þeir kunna leik-
inn. íhaldið sér um sína.
einn stafur, hvergi
í íhaldsblöðunum.
Ekki í Mogganum,
sem er heimavöllur inn-
vígðra og innmúraðra, ekki í 24
stundum sem er hjáleiga Mogg-
ans og ekki heldur í Fréttablað-
inu. Ekki orð. Þannig er íhaldið.
Það passar sitt og það passar sína.
Þannig hefur það verið og þannig
verður það. Ef íhaldið passar ekki
sig og sína er næsta vonlaust að
aðrir geri það. Þetta vita innmúr-
aðir og innvígðir. Lok, lok og læs.
Má vera að ef það fram-
sóknarmenn væru að
kaupa allt og ekkert
af ríkinu væri umræðan önn-
ur. Ætli Mogginn, 24 stundir
og Fréttablaðið hefðu áhuga á
fréttunum ef Björn Ingi og félag-
ar hefðu keypt hálft annað þús-
und íbúða af ríkinu? Já, trúlegast.
Enda mætti þaði ekki kyrrt liggja.
Ekki eina mínútu. Fáar skýring-
ar kunna að vera á þögn íhalds-
blaðanna, þögn þeirra innmúruðu
og innvígðu. Samtrygging. Gott
er blessað íhaldið. Sama verður
að segja um DV. Gott er blessað
DV. Það hefur ekki flækst í múra
SUIVDA
DÓMSTÓLL GÖTUIVNAH
SKIPTA ADGERDIR RÍKISSTIÓRNARINNAR SKÖPUM FYRIR ALDRADA OG ÖRYRKJA?
„Þetta gerist nú ekki fyrr en á næsta ári.
Vonandi er þetta eitthvað meira en
auglýsing fyrir stjórnina til að skrá sig í
söguna."
Sveinn Magnússon,
59 ára vélvirki
„Þetta er jákvæð byrjun. Þeir gera nú
ekki allt (einu en þetta ferað koma.
Skerðingin sem var fyrir að vinna sér
inn pening fyrir þá duglegu var
ósanngjörn. Ég er bjartsýn."
Dóra Ruf,
52 ára bóndakona
„Þetta hlýtur að hafa góð áhrif. Þetta
fólk er góðra gjalda vert og á ekkert
nema gott skilið."
Guðmundur Jóelsson,
59 ára endurskoðandi
„Þetta verður örugglega gott. Það veit
svo sem enginn hvernig þetta verður
en það má ekki bara vera jólagjöf og
svo búið."
Herdís Sigurjónsdóttir,
58 ára móttökuritari