Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2007, Qupperneq 25
DV Menning Sævar Karl með leiðsögn Sævar Karl Ólason klæðskeri verður með leiðsögn um sýningu Kristjáns Davíðssonar í galleríi Sævars Karls í Bankastræti á sunnudaginn kl. 14.1 spjalli sínu ætlar Sævar að segja frá löngum kynnum sínum af listamanninum, tengja frásögnina verkum hans og mun jafnframt reikna með virkri þátttöku sýningargesta í umræðunni. Rangar fullyrðingar prófessora í bókinni segir Hjálmar frá því að tveir prófessorar við Háskóla íslands hafi farið rangt með í skrifum sínum þegar þeir héldu því fram að í bók- um Elíasar standi sveit og borg sem andstæður og sveitin vafin rómant- ískum ljóma. „Þetta er dæmigert fyrir það hvað þetta tímabil er lítið rannsakað. Menn einhvern veginn gefa sér eitthvað og síðan eru há- skólakennarar að vitna hver í annan og hafa ekki fyrir því að athuga hvort þetta eigi við um Elías Mar. Þetta á augljóslega ekki við. Mér finnst þetta dæmi um að þetta tímabil, og Elías sérstaklega en örugglega fleiri höfundar líka, hafi einfaldlega ver- ið vanrækt. Ég held reyndar að þetta sé að breytast því mér skilst að nú sé allt í einu farið að kenna fullt af nám- skeiðum um þetta tímabil og ung- ir háskólastúdentar hafi heilmikinn áhuga á þessu tímabili. Þá komast loksins einhverjir aðrir að en Hall- dór Laxness og Gunnar Gunnars- son. Það var tími til kominn." Enginn tepruskapur Elías virkar nokkuð hreinskilinn í samtölum sínum við Hjálmar, meðal annars þegar hann ræðir kynhneigð sína en Elías var tvíkynhneigður, eða bísexjúal. Hann segir til að mynda frá því að hann hafi verið skotinn í strákum frá tíu, ellefu ára aldri og að hann laðaðist að ungum strákum og „vildi hafa gott undir þeim" (bls. 53). „Hann var mjög hreinskilinn, en þetta var ekkert það fyrsta sem hann sagði við mig. Við ræddum þetta og ég skrifaði upp eftir honum, og líka hvernig þetta leit við mér, en hann strikaði út ákveðna hluti sem honum fannst að kæmi engum við. En kafl- inn stendur svona eftir. Mér finnst að það þurfi að skrifa um svona án þess að vera með einhvern tepru- skap því þetta var náttúrlega snar þáttur í hans lífi og mótaði líf hans mjög mikið. En ég vildi heldur ekki gera neina sensasjón úr þessu." Hjálmar segir að Elías hafi aldrei viljað almennilega viðurkenna að það hafi verið mikið mál að vera bí- sexjúal á fslandi um og upp úr miðri 20. öld sökum fordómanna, hvorki fyrir sér né öðrum. „En kaflinn Harry og Baddi, þar sem segir frá þýskum samkynhneigðum manni sem hafði búið hér lengi og er misþyrmt mjög hrottalega og fær óhuggulega með- ferð hjá lögreglu og jafnvel læknum, sýnir veruleikann. Sýnir að þetta gat verið lífshættulegt. Elías var bara þannig maður að hann hafði ekki áhuga á að gera mikið úr ein- hverjum persónulegum hlutum hjá sér. Hann var mjög hreinskilinn en hann hefði aldrei farið að tromma upp með játningarskáldsögu um sig sem fómarlamb vondra. manna, hvað það var erfitt að vera bísexjúal á íslandi eða eitthvað í þá vem," seg- ir Hjálmar og bætir við að Elías hafi aldrei viðurkennt fyrir sér að hann hafi orðið fyrir árásum eða einhvers konar ofbeldi vegna kynhneigðar sinnar. Bjó alltaf einn Elías bjó alla tíð einn. En hann var ekki einmana að Hjálmars sögn. „Mikið af fólki var alltaf að heim- sækja hann og Elías hafði heilmikið samband við fólk í Samtökunum ‘78. Og hann var hrifnæmur fagurkeri og fékk mikla lífsfyllingu út úr því að hlusta á klassíska tónlist alltaf á viss- um tíma dagsins þannig að hann lifði innihaldsríku lífi þótt hann byggi alltaf einn og væri gleymdur og grafinn rithöfundur," segir Hjálm- ar og bætír við að Elías hafi búið í fyrsta skipti í eigin íbúð 65 ára gam- all eftír að hafa búið lengst af í leigu- herbergjum. „Það var ekki endilega vegna þess að hann væri svo óskap- lega fátækur heldur meira svona lífs- stfll." Síðustu æviárin bjó Elías í blokk- aríbúð að Birkimel 6a í Vesturbæn- um. Hann notaði alltaf leigubfla en eftír að hann fór að eiga erfitt með gang stólaði hann á vini og kunn- ingja um skutl. í hádeginu alla daga fékk hann sendan matarbakka úr eldhúsi inni á Lindargötu og át leif- amar yfir sjónvarpinu á kvöldin. El- ías fylgdist vel með því sem var að gerast í þjóðfélaginu. „Hann hafði skoðanir á flestu. Við ræddum til dæmis brottför hersins, eins og Hjálmar Sveinsson „Elías var bara þannig maður að hann hafði ekki áhuga á að gera mikið úr einhverj- um persónulegum hlutum hjá sér. Hann var mjög hreinskilinn en hann hefði aldrei farið að tromma upp með játningarskáldsögu um sig sem fórnarlamb vondra manna." slæmur dómur getí ekki hafa slegið hann svona gjörsamlega út af laginu þannig að ég einfaldlega trúi honum þegar hann segir þetta. Og ég tel að það sé líklegt því hann skrifar fjór- ar skáldsögur á milli tvítugs og þrí- tugs og er líklega búinn með sitt en- ergí. Hann lagði mjög hart að sér, var kominn í launavinnu og það er eins og hann hafi ekki haft kraft tíl að skrifa fleiri skáldsögur. Á þess- um tíma var líka komin upp ákveðin vantrú á að skáldsagan væri mikfl- vægt form til að fjalla um veruleik- Ungur rithöfundur Elías um það leyti sem skáldsögur hans komu út um miðbik 20. aldar. kemur fram í bókinni, þar sem þetta er að gerast á sama tíma. Og við tók- umst á um pólitík og eitt og annað," segir Hjálmar og nefnir í því sam- hengi tfl að mynda vinstri græna og Evrópusambandið sem Elías var al- farið á móti að Island gengi í. Elías las líka eitthvað af íslenskum sam- tímabókmenntum. „Honum fannst bók Þórarins Eldjám, Baróninn, stórkostleg bók og sömuleiðis bók Halldórs Guðmundssonar um Þór- berg og Gunnar Gunnarsson." Endurútgáfa og Megasarbók Bók Hjálmars kemur út undir merkjum bókaforlagsins Omdúrm- an sem hann og Geir Svansson bók- menntafræðingur stoínuðu nýlega. „Þetta er gamall draumur hjá okkur en við höfum unnið saman að út- gáfu undanfarin ár, gáfum út trflógíu um Rósku, Dag Sigurðarson og Me- gas og stofnuðum Atviksbókaröð- ina þar sem við fengum Reykjavík- urAkademíuna til að koma inn í það dæmi. Við komum til með að halda þeirri útgáfu áffam í nafití Omd- úrmans og við höfum einsett okkur að gefa út bækur sem aðrir hafa ekki hirt um að gefa út, ekki þorað að gefa út eða eitthvað slíkt. Þá langar okkur að endurútgefa það sem er gleymt og grafið. Við hugsum þetta sem ákveðið mótvægi við þessum einum of fátæklega og mjög einhæfa bóka- markaði. Það er tíl dæmis skandall að það skuli ekki vera til Vögguvísa og þess vegna Eftir örstuttan leik í bókabúð á Islandi," segir Hjálmar og segir það á stefnuskrá Omdúrmans að gefa þær út auk úrvals af smásög- um Elíasar. Og nýjar frumsamdar sögur og þýddar verða einnig gefnar út, með- al annars smásagnasafn eftir Me- gas sem væntanlegt er með vorinu. „Nafh forlagsins er sótt í kvæði eftír Megas og hann er svolítíð okkar höf- uðskáld. Smásagnasafnið heitir Pla- isir d'amour og er mjög stórt verk Hann var byrjaður á þessu fyrir 1970 og nokkrar sagnanna hafa birst í alls kyns tímaritum. Svo hef ég góða von um að gefa út bók tileinkaða Birgi Andréssyni og við vonumst eftir að geta gefið út bók með ljóðum og teikningum Jónasar Svafárs." En hyggst Hjálmar skrifa fleiri bækur um gleymda rithöfunda? „Það getur verið meira en verið." íslensku bókmenntaverðlaunin: Átta af tíu frá Forlaqinu Átta af þeim tíu bókum sem til- nefndar eru til íslensku bókmennta- verðlaunanna 2007 eru gefnar út hjá Forlaginu, fjórar í hvorum flokki. JPV útgáfa gefur út fimm bókanna og Mál og menning þtjár. Ein er gefin út af Bjarti og loks gefur Þjóð- minjasafnið út eina bók. I flokki skáldverka voru til- nefhdir Forlagshöfundarnir Gerð- ur Kristný fyrir ljóðabók sína Högg- staður, Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir fyrir glæpasöguna Kalt er annars blóð, fyrir skáldsöguna Rimlar hug- ans - ástarsaga fær Einar Már Guð- mundsson tilnefningu og þá er Sigurður Pálsson tilnefndur fyrir endurminningabókina Minnisbók Fimmtí höfundurinn er Sjón sem gefurúthjáBjarti. í flokki fræðirita og rita almenns eðlis er eina bókin sem ekki er gef- in út hjá Forlaginu Ijósmyndabók- in Undraböm/Extraordinary Chfld sem Mary Ellen Mark og ívar Brynj- ólfsson em aðalhöfundumir að og Þjóðminjasafnið gefur út. Forlags- höfundarnir sem tilnefndir em í þessum flokki em Vigdís Grímsdótt- ir, Pétur Gunnarsson, Þorsteinn Þor- steinsson og Danielle Kvaran fyrir bókina Erró í tímaröð - líf hans og list í þýðingu Sigurðar Pálssonar. Jóhann Páll Valdimarsson Útgáfustjóri Forlagsins gladdist vafalítið yfirtilnefningunum. Jöfnunarstyrkur til náms - Umsóknarfrestur á vorönn 2008 er til 15. febrúar nk. - Nemendur framhaldsskóla geta átt rétt á: Dvalarstyrk (verða að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni vegna náms). Styrk vegna skólaaksturs (sækja nám frá lögheimili og fjölskyldu fjarri skóla). Upplýsingar og skráning umsókna vegna vorannar/sumarannar 2008 er á www.lin.is. Þeir sem eiga umsókn fyrir allt skólaárið 2007- 2008 þurfa ekki að endurnýja umsókn vorannar. Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd Láttur okkur gera jólaliortin fyrir þig www. myndval. is mLjndvol Þönglabakka 4 - 557 4070 myndval@myndval.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.