Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Síða 7
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR2008 7
Bílstjóri neitaði að hlýða fyrirmælum um að keyra hættulegt tæki i álveri Alcoa á Reyðarfirði. Að hans mati var
tækið hálfbremsulaust og fyrir vikið taldi hann öryggi sínu og annarra starfsmanna ógnað. Bilstjórinn segir að
fyrir að óhlýðnast fyrirmælum hafi honum verið sagt að koma ekki aftur til vinnu. Erna Indriðadóttir, upplýs-
ingafulltrúi Alcoa, visar ásökununum alfarið á bug og segir enga bremsulausa bila á ferðinni i álverinu.
VARREKINNFYRIRAÐ
VILJA EKKIDREPA NEINN
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Bflstjóri var rekinn úr starfi sínu í ál-
veri Alcoa á Reyðarfirði fyrir að neita
að keyra bremsulítið tæki á hættu-
svæði um nýliðna helgi og honum tjáð
að hann væri ekki velkominn þangað
til starfa aftur. Hann tafdi hins vegar
verulega hættu stafa af akstri sínum
og hætti ekki á að verða sér eða öðr-
um starfsmönnum að bana.
„Mér finnst framkoma Alcoa í
minn garð, og allra þeirra starfs-
manna sem voru á gólfinu, svívirði-
leg. Fyrir það fyrsta að hafa skipað
mér að keyra hálfbremsulausan bfl-
inn innan um aðra og síðan fyrir að
reka mig fyrir að neita að hlýða stór-
hættulegum fyrirmælunum. Að stýra
þessum tækjum er vandmeðfarið svo
ekki sé talað um ef bremsurnar vant-
ar. Ef einhver lendir fyrir bflnum þarf
ekki að spyrja að leikslokum," segir
Páll Sverrisson bflstjóri.
Kom ekki til greina
Páil hefur undanfarið starfað sem
verktaki í álverinu og sinnt akstri
á svokölluðum skautbfl í álverinu.
Hann segir bremsur bflsins áður hafa
bilað þannig að úr þeim lak og því
þurftí að gera við þær. Nýverið voru
bremsurnar hins vegar aftur fam-
ar að gefa sig og farnar að leka. Páll
skilur ekkert í því hvers vegna ekki
var samstundis gert við bremsurnar í
stað þess að honum var skipað af stað
í lífshættulegan akstur. „Eg var bú-
inn að benda þeim aftur á lekann og
segja þeim að þetta gengi ekki svona.
Því miður hefur þetta verið vandi
með mörg tækin þarna. Mér var ein-
faldlega sagt að annaðhvort færi ég á
bflnum eða þeir myndu finna annan
í minn stað. Þegar stutt var í vakt hjá
mér daginn eftir hringdu þeir svo í
mig og sögðu mér að ég væri ekld vel-
kominn aftur til vinnu. Ég var bein-
h'nis rekinn fyrir að neita að skapa
öðrum hættu á bremsulitlum og
hættuiegum bfl," segir Páll.
„Þegar ég mótmæltí og neitaði að
keyra bremsulausan bflinn var mér
sagt að verkstæðið bæri ábyrgð á því
að bremsurnar væru í lagi. Þannig að
Páll með dóttur sinni „Már var einfaldlega sagt að
annaðhvortfæri ég á bílnum eða þeir myndu finna
annan (minn stað. Þegar stutt var í vakt hjá mér daginn
eftir hringdu þeir svo (mig og sögðu mér að ég væri
ekki velkominn afturtil vinnu," segir Páll.
Rekinn af svæði Alcoa I handbók Alcoa Fjarðaáls um öruggt vinnulag I álverinu
kemur skýrt fram að umhverfi, heilbrigði og öryggi sé ávallt tekið fram yfir hagnað eða
framleiðslu.,,1 mínum huga braut álverið allar reglur sem hægt var að brjóta," segir Páll.
„Við leggjum gríð-
aríega áherslu á
öryggismál og ef
bíll á svæðinu væri
bremsulaus væri
uyttf'-v 'aiCSÁjCF'" ^ ■■
hann umsvifalaust
tekinn úr umferð."
ég átti bara að halda áfram á bremsu-
litíum bflnum og skapa hættu fyr-
ir alla í kring. Málið er það að hefði
ég valdið slysi og jafnvel drepið ein-
hvern hefði ég að sjálsögðu borið
ábyrgð á því. Það vfldi ég ekki eiga
á samviskunni og sagði nei eins og
skot."
Vildi ekki drepa neinn
Þorvaldur P. Hjarðar, umdæmis-
stjóri Vinnueftirlitsins á Austurlandi,
er undrandi yfir frásögn og upplifun
bflstjórans. Hann segir reynslu sína
af öryggismálum álversins ffarn til
þessa hafa verið góða. „Ég er mjög
hissa á þessu og þetta kemur mér á
óvart miðað við fyrri reynsltí. Þetta
þurfum við að skoða til að fá botn í
málið og það munum við gera í ljósi
frásagnar starfsmannsins. Ef rétt
reynist líst mér illa á og
get ekki sagt annað en
að slflct væri mér mikil
vonbrigði. Séu tæki ekki
í lagi eiga þau ekki að
vera í notkun. Notkun
bremsulítils ökutæk-
is erhreintogklárt
bönnuð, það
eiga allir að vita.
Það væri mjög
einkennilegt að væri fr am á annað og
hafi verið grunsemdir um að tækið
væri ekki í lagi brást starfsmaðurinn
hárrétt við," segir Þorvaldur.
f handbók Alcoa Fjarðaáls um ör-
uggt vinnulag í álverinu kemur skýrt
ffam að umhverfi, heilbrigði og ör-
yggi sé ávallt tekið fram yfir hagn-
að eða ffamleiðslu. „í mínum huga
braut álverið allar reglur sem hægt
ALCOA
var að brjóta. Nú eru tals-
menn álversins vísir með
að neita þessu og segja að
allt sé í himnalagi með bfl-
inn. Uppsögnin var skelfiieg
höfnun fyrir mig þvf ég taldi
mig vera að gera hið
eina rétta í stöðunni
og tel mig ekki hafa
átt að hlýða þess-
um lífshættulegu
fýrirmælum. Ég hugsaði um það eitt
að drepa ekki neinn á staðnum," segir
hinn svekkti bflstjóri.
Engir bremsulausir bílar
Erna Indriðadóttír, upplýsinga-
fulltrúi Alcoa Fjarðaáls, vísar ásök-
unum bflstjórans alfarið á bug. Hún
hafnar því að nokkurt bremsiflaust
farartæki sé til notkunar í álverinu.
„Það sem maðurinn er að segja á ein-
faldlega ekki við rök að styðjast. Við
leggjum gríðarlega áherslu á öryggis-
mál og ef bfll á svæðinu væri bremsu-
laus væri hann umsvifalaust tekinn
úr umferð. Maðurinn hefur verið hér
sem verktaki og er því starfsmaður
fyrirtækis sem við kaupum þjónustu
af. Af margvíslegum ástæðum, sem
ég get ekki farið nánar út í, sáum við
okkur ekki fært að kaupa þjónustu
viðkomandi áfram," segir Ema.
„Ég vísamálinu á undirverktakann
sem réði manninn. Ásökunum vísa
ég alfarið á bug og frásögn bilstjórans
á ekki við nokkur rök að styðjast. Við
könnumst ekld við bremsuvandræði
í þessum bflum og því standast mála-
vextír engan veginn. Hér á álverslóð-
inni em engir bremsulausir bflar á
ferðinni."
Flest snjóflóð í um það bil áratug:
40 snjóflóð á tveimur dögum
„Það féllu 40 snjóflóð úr Súða-
víkurhlíð á tveimur dögum í síð-
ustu viku," segir Geir Sigurðsson,
rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á
ísafirði. Snjóflóð hafa verið mjög
algeng í Súðavíkurhlíð síðari hluta
vetrar og síðustu viku hefur vart
liðið sá dagur að flóð hafi ekki fallið
úr hlíðinni.
Geir segir að af þeim 40 flóð-
um sem féllu í síðustu viku hafi
26 flóð farið fram á veg eða fram
af vegi. „Það er alveg ljóst að þetta
er í meira lagi undanfarin ár. Ég
held að það sé óhætt að segja að
tíu ár séu liðin frá því að þetta var
svona mikið," segir Geir. Aðspurður
hvort ástandið sé jafnslæmt ann-
ars staðar á Vestfjörðum segir Geir
að aukningin sé nánast eingöngu
í Súðavíkurhlíð. „Það hefur verið
mikil snjóflóðahætta í Óshllíðinni
einnig en það er búið að gera varn-
■■■■■■KMSSMBBb
Snjór mokaður af vegi 26 snjóflóð
fóru fram á veginn (Súðavíkurhlíð á
tveimurdögum.
arvirki sem tekur eitthvað af flóð-
unum."
Geir segir að þessa stundina sé
veður vont á ísafirði og snjóflóða-
hættan í Súðavíkurhlíð sé enn til
staðar. „Við bíðum átekta með að
moka inn Súðavík og Bolungarvík."
Tilboðsdagar!
Ekki láta þetta
framhjá þér fara!
Ullarfatnaður í gífurlegu
úrvali, á unga sem aldna!
Ekki láta kuldann
stoppa þig!
Klæddu þig í Janus!
Janusbúðin
Bru-ómslígH, 101 Kcykjavík o. Haliiarslncti 99-101,600 Akurej-ri
s. 532-7499. fax. 562-7499 ^ x. 461 -3006. fax. 461 -3007
www.janusbudin.is