Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Blaðsíða 69
DV Fólkið
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 69
HAFDÍS HULD
SPILARA
TISI
Tískuvikan í London stendur nú sem hæst en Hafdís
Huld mun koma þar fram sem plötusnúður. Haf-
dís, sem um þessar mundir er stödd í Bretlandi við
undirbúning á annarri breiðskífu sinni, kemur til
með að spila þriggja tíma sett í stærstu tískuvöru-
verslun Bretlands, Topshop við Oxford Circus.
Hafdís spilar þann 15. febrúar en í tilkynningu
frá Topshop segfr að tónlist og tíska hafi alltaf
haldist í hendur og því hafi verið ákveðið að
fá nokkrar af áhugaverðustu konum borg-
arinnar til að sjá um tónlistina meðan á
Tískuvikunni stendur.
VÍDiLLÍNSKIRKJA HVETUR TIL KREFJANDI SAMTALS
OGRANDI
MYNDUST
„Við getum átt innra líf þótt líkami okkar sé
hrumur eða máttvana. Listamaðurinn er að
árétta með þessari mynd að hið innra líf þess-
arar öldnu konu er mikilvægara en ytri veru-
leiki. Það er hlutverk kirkjunnar að minna á
það að kristin þjóð getur ekki sætt sig við
félagslega einangrun fólks.“
Altaristaflan íVídalínskirkju hefúr vakið mikla
umræðu meðal sóknarbarna undanfarið, enda
stendur sóknarnefnd nú fyrir nýstárlegri tilraun.
Trékrossinum sem vanalega prýðir kórinn hef-
ur verið skipt út fýrir málverk eftir íslenska lista-
menn sem kirkjan fékk að láni frá Landsbankan-
um og hangir hvert verk uppi í ársfjórðung.
Fyrsta verkið í sýningaröðinni var „Bænin
má aldrei bresta þig" eftir Kjarval, en nú hangir
uppi verkið „Col tempo" eftir Magnús Kjartans-
son og eru um það skiptar skoðanir. Margir hafa
tekið því fagnandi, en dæmi eru um að fólk hafi
ekki getað hugsað sér að jarðsyngja ástvini sína í
kirkjunni vegna verksins. Jónu Hrönn Bolladótt-
ur, sóknarpresti í Vídalínskirkju, er hins vegar
afar annt um verkið.
„Þetta er mjög sterkt verk," segir hún. „Þegar
ég kom inn á kirkjugólfið á meðan verið var að
setja það upp, fór ég að gráta. Og það er upplifun
flestra að myndin hreyfi við tilfinningalífi áhbrf-
andans. Við vitum að öll eigum við eftir að eld-
ast og hrörna ef allt fer á besta veg. Og við meg-
um ekki gleyma hinum öldnu sem eru of mörg
einangruð í elli sinni. Ég finn að mig langar að
standa með þessari konu, það er í raun lítið pláss
fýrir þann þjáða og yfirbugaða í okkar samfélagi,"
segir Jóna Hrönn og bætir við að nú sé fastan í
kirkjuárinu þar sem við íhugum þjáningar og
dauða Jesú Krists, og að þessi mynd kalli á margt
sem fjalla má um í predikun.
Markmið sóknarnefndarinnar og presta safn-
aðarins er í senn að kynna verk eftir íslenska
listamenn og vekja innihaldsríkar umræður
innan safnaðarins.
„Hér er gerð byltingarkennd tilraun í húsi
Jesú Krists sem umbylti hugstm veraldar meir
• •
en nokkur önnur persóna á jörðinni," segir Jóna
Hrönn.
Væri hugsanlegt að taka niður verkið vegna
athafna í kirkjunni? „Nei! við gerum það ekki,"
svarar Jóna. „Þessi mynd verður út föstuna og
svo kemur upp „Sumartungl" eftir Eirík Smith
áður en fermingar hefjast. Aðalsteinn Ingólfs-
son, listfræðingur Landsbankans, hefur fjallað
um þessa mynd og hún hefur mjög mikla guð-
fræðilega slárskotun," segir Jóna Hrönn. „Þar
segir Aðalsteinn að myndin sýni gamla konu í
hljóðri og angistarfullri bæn. Konan er rækilega
mörkuð tímanum, en lokuð augu hennar árétta
að innra líf hennar er mikilvægara en ytri veru-
leiki. Við erum líka með stóran trékross inni í
kirkjuskipinu sem var á tímum Jesú hræðileg-
asta aftökutæki sem til var, þar sem mennska
hans var böðuð í blóði og taumlausri þjáningu.
En við tökum hann ekki niður."
f sýningarskrá kemur ffarn að meðal þeirra
grundvallarspurninga sem listamaðurinn varp-
ar fram sé „hvort tilhugsunin. um eilíft líf geti
nokkurn tíma sætt okkur við þjáningu, dauða og
upplausn".
.Eftir föstuna verður myndinni skipt út fyrir
verkið „Sumartungl" eftir Eirík Smith sem prýða
mun kórinn í þrjá
mánuði eða þar til
„Stekkjur" Harðar
Ágústsonar verður
sett upp í lok árs.
TOKUR
ÁRÍKINU
HAFNAR
Tökur á Ríldnu, nýjum gaman-
þáttum sem sýndir verða á Stöð
2, eru hafnar. Um er að ræða svo
kallaðan „sketsa"-þátt í sama
anda og Fóstbræður og Svína-
súpan. Silja Hauksdóttir sér um
leikstjórn, en Siguijón Kjartans-
son skrifar handritið ásamt öðr-
um þekktum grínurum. Meðal
leikara í þættinum eru Eggert
Þorleifsson, Sveppi og Auddi.
Þættirnir verða frumsýndir
næsta vetur, en þá verður einnig
Dagvaktin, framhald Næturvakt-
arinnar, á dagskrá.
ROKKA FYRIR
VEIKAN VIN
Meðlimir hljómsveitarinnar Hoff-
mans frá Vestmannaeyjum halda
tónleika í kvöld á Gauki á Stöng til
styrktar langveikum vini
sínum. Hann þjáist
af hinum alvarlega
sjúkdómi ósæða-
flysjun. Ásamt
Hoffman koma
fram hljómsveitirnar
Benny Crespos Gang,
Hookerswing, Cliff Clavin og
Æla. Húsið verður opnað klukkan
20 og fer fyrsta hljómsveit á svið
klukkutíma síðar. Það kostar þús-
und krónur inn á tónleika en einnig
verður tekið á móti frjálsum fram-
lögum tónleikagesta.
LEIKKONAN KEIRA KNIGHTLEY ER VÆNTANLEG TIL LANDSINS:
REYKJAVÍKUR-
RÓMANTÍK KEIRU
Breska leikkonan Keira Knightley sem gerir
það gott í kvikmyndahúsum um þessar mund-
ir í kvikmyndinni Atonement er væntanleg til
íslands. Fregnir herma að unnusti leikkon-
unnar, Rupert Friend, hafi komið henni á óvart
með því að bjóða henni til íslands á Valentín-
usardaginnn á morgun. Sagan segir að Rupert
hafi hvergi til sparað við undirbúning íslands-
ferðarinnar og að Keira virðist mjög spennt
fyrir ferðalaginu. Parið unga kynntist við tök-
ur á kvikmyndinni Pride and Prejudice árið
2005. Þau þurfa að leggja sig öll ffarn tíl þess
að ná góðum samverustundum vegna mikilla
anna. Þau hafa áður spókað sig saman á Bah-
ama- og Kyrrahafseyjum en taka nú stefnuna á
ísland. Rupert, sem er 26 ára, hefur ekki tekist
að fá Keiru, sem er 22 ára, upp að altarinu þótt
hontun virðist ætla að takast að draga hana í
norðangarrann til fslands en leikkonan sagði
í viðtali nýlega að hún væri ekki á leiðinni í
hjónaband á næstunni.