Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
GUÐNA DREYMIR
AÐSTJÓRNINVA
Ríkisstjórnin hefur verið sinnulaus um kjarasamninga ef marka má stjórn-
arandstæðinga. Stjórnarliðum finnst hún hins vegar hafa vakað yfir kjara-
samningum af mikilli ábyrgð. Þingmenn tókust á um hlutverk stjórnvalda
í komandi kjarasamningum á Alþingi í gær. Þeir óttast verðbólgu og vilja
hækka lægstu laun. Geir og Ingibjörg vilja ekkert segja fyrr en um helgina.
brynjOlfur þór guðmundsson
fréttastjóri skrifar: brynjolfur&dv.is
„Ég man atvinnuleysið, ég man
gjaldþrotin og ég á mér aðeins einn
draum, að þessi ríkisstjórn vakni,"
sagði Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins, á Alþingi í
gær þegar þingmenn stjórnarand-
stöðunnar gagnrýndu stjórnarliða
fyrir sinnuleysi og andvaraleysi í
kjarasamningamálum. Guðni rifjaði
upp þá tíma þeg-
ar Al-
Til þegar á þarf að halda
Ingibjörg Sólrún sagði
ríkisstjórnina taka a málinu 5?
þegar til þess kænii.
þýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur
voru saman í stjórn og atvinnuá-
standið var slæmt.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra fannst hins vegar lítið til orða
Guðna koma. „Maður sem á draum
er sjálfur sofandi en ríkisstjórnin er
vakandi."
Hvað á að gera?
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, var
upphafsmaður utandagskrárum-
ræðu um kjarasamninga og að-
komu ríkisins að þeim. Til marks
um það hversu mikla áherslu stjórn-
málamenn leggja á kjarasamning-
ana tóku formenn allra stjórn-
málaflokkanna til máls í
umræðunni. Forystu-
menn stjórnarflokkanna
lýstu því hversu ábyrgð-
arfull afstaða þeirra væri
og stjórnarandstæðingar
vændu þá um andvaraleysi,
að sýna kjarasamningum
ekki næga athygli.
Guðjón krafði for-
sætisráðherra svara um
hvað stjórnvöld ætíuðu
að gera til að liðka fyr-
ir samningum og koma til
móts við landsbyggðarfólki
og þá sem hafa orðið illa úti
vegna kvótaniðurskurð-
arins. Hann óskaði
eftir upplýsingum
um aðstoð við
hitunarkostnað
og flutnings-
kostnað og
spurði hvað
liði end-
urskoð-
un á
mótvægisaðgerðum stjórnvalda
vegna kvótaniðurskurðarins. „Er
þorskkvótinn svo heilagur að ekki
megi endurskoða þá röngu ákvörð-
un?" spurði Guðjón.
Sinnuleysi stjórnvalda
„Sinnuleysi ríkisstjórnarinnar
í þessum kjaramálum hefur ekki
farið ffam hjá nokkrum manni,"
sagði Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri-grænna. Hann sagði
að stjórnvöld ættu ekki að sam-
þykkja allar kröfur sem fram kæmu
í samningagerðinni en að það væri
kæruleysi hjá ríkisstjórninni ef hún
missti þessi mál frá sér með því að
standa ekki að því að tryggja hag-
kvæma niðurstöðu.
Bæði Steingrímur og flokkssystir
hans Álfhildur Ingadóttir mótmæltu
kröfum forsvarsmanna Samtaka at-
vinnulífsins um átak í stóriðju og að
tryggt yrði að ekki yrði samið um
meiri hækkanir í öðrum kjarasamn-
ingum en þeim sem þeir standa í
núna. Þau lögðu hins vegar áherslu
á að laun þeirra lægst launuðu yrðu
hækkuð verulega. Það gerðu flest-
ir þeir sem tóku til máls í umræð-
unni.
Standa vaktina
Geir H. Haarde forsætisráðherra
vísaði því á bug að ríkisstjórnin
stæði aðgerðalaus hjá. Þvert á móti
fýlgdust ráðamenn með gangi kjara-
samninga og væru viðbúnir því að
fulltrúar semjandi fylkinga gengju á
þeirra fund. Það myndi væntanlega
gerast í kringum næstu helgi. Geir
sagðist hvorki geta né vilja segja ffá
því hvað stjórnvöld kynnu að gera
til að koma til móts við samninga-
menn vinnuveitenda og launþega.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir ut-
anríkisráð-
herra mót-
mælti því
harð-
lega að
ríkis-
stjórnin hefði sinnt
sinnuleysi í kjara-
samningum. Það
hefðihún alls ekki
gert en heldur
ekki viljað taka
kjaraviðræð-
ur í fang sér og
axla eitt ábyrgð
á þeim.
Rýrnar
launaforð-
inn
„Óðum
rýrnar launa-
forðinn,
endurvakin
liðin saga, verð-
bólgan er aftur
orðin, eins og
hún var í gamla
daga." Svona
hóf Guðni Ág-
ústsson, formað-
ur Framsóknar-
flokksins, ræðu sína.
Hann sagðist óttast mjög
afleiðingarnar fyrir launa-
fólk ef víxlhækkanir launa og
verðbólgu hæfust á nýjan
leik. „Það er ábyrgðarlaust
eins og hér hefur verið hjá
stjórnarliðum ogjafnvel
hæstvirtum ráðherr-
um að ganga fram
og bjóða einr'
stétt kaup-
hækkun í dag
og annarr'
á morg-
un."
Hættuleg verðbolga
Guðni Ágústsson óttast
áhrif verðbólgunnar á
hag almennings.
„Sinnuleysi ríkisstjórnar-
innar í þessum kjaramál-
um hefur ekki farið fram
hjá nokkrum manni.'
Sinnulaus i ikisstjorn Steingrímui
gagi n n ji livc su ntið stjornvöld
heín. . .n ð an ki.nasamingum.
Vantarfyrirheit
Formaður Friálslynda