Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 Suöurland DV Ólafur Sigurjónsson á Forsæti í Villingaholtshreppi mótmælir áformum um virkjun við Urriðafoss harð- lega. Hann segir það vera óskoraðan rétt íbúa og landeigenda að mótmæla gegn stórfyrirtæki sem hafi ráð á skipulögðu áróðursstríði. Hann telur að Landsvirkjun hafi beitt blekkingum í vegferð sinni við að fá að virkja neðri hluta Þjórsár. 'H- - ‘ z^jSssS - ísSHbs ' Urriðafoss Verði Þjórsá virkjuð við Urriðafoss mun vatni verða veitt um jarðgöng framhjá þessum vatnsmesta fossi (slands V - Ólafur Sigurjónsson, húsasmið- ur og bóndi á Forsæti III í Villinga- holtshreppi heíúr beitt sér ötullega gegn áformum Landsvirkjunar um að virkja Urriðafoss í Þjórsá, skammt neðan þjóðvegar. Hann segir Lands- virkjun hafa rekið kerfisbundið áróð- ursstríð sem miði að því að virkja foss- inn, hvað sem það kostar. „Það sem gerist hér ef áin verð- ur virkjuð er ekld aðeins það að búið verður til uppistöðulón í sjálfum Þjórsárdal, heldur verður fossinn sjálfur meira og minna vatnslaus, árið um kring," segir Ólafur. Þetta mun, að hans mati, hafa veruleg áhrif á ferða- þjónustu á svæðinu sem margir Þjórs- árbændur hafa tekið upp sem aðalat- vinnuveg. „Landsvirkjun hefur farið hér með fúlltrúa sína manna á milli og treyst á það að við töluðum ekki mikið saman okkar á milli. Þannig hefúr verið látið í veðri vaka að bónd- inn á næsta bæ sé tilbúinn til þess að semja um vatnshæð og varnargarða, án þess jafnvel að fótur sé fyrir því," segir hann. Váin er ný Á kynningarfundi um málið sem haldinn var í haust var greint frá því að með nýju uppstöðulóni í Þjórsár- dal yrðu bændur við ána mun örugg- ari gegn flóðum og annarri vá sem kanna að stafa af ánni. „Okkur var tjáð að héryrðu byggðir varnargarðar meðfram ánni. Farsímasamband yrði stórbætt og viðvörunarlúðrum yrði komið fyrir þannig að við gætum bet- ur varið okkur gegn stórflóðum." Við þetta kýs Ólafur að reisa spurningar. „Hvemig stendur á því að öryggi okkar eykst svona mikið ef þörf er á öllum þessum varúðarráðstöfúnum? Fólk hefúr búið hér við ána í gegn- um aldirnar án þess að vorflóð eða brostnar klakastíflur gerðu okkur sér- stakt mein. Það er væntanlega verið að verja okkur gegn brostnum stífl- um, þar sem flóðin geta orðið miklum mun hættulegri," segir hann og bætir við að fýrst árið 1977 hafi borið á erf- iðum flóðum í ánni, í kjölfar virkjana á hálendinu. Sjálfstæðisbaráttan „Við lítum í rauninni á þetta sem sjálfstæðisbaráttuna, alveg upp á nýtt. Þetta hefur verið þreytandi og erfið barátta og oft á tíðum er komið ffam við okkur eins og við séum ein- hvers konar fifL Landsvirkjun er stórt Nýtt íVogue/butabaer.is Selfossi Yfir 200 sortir af svarovski hringum, eyrnalokkum og hálsmenum á mjög góðu verði hringar á kr. 5.200.- stk. Nýkomnar countryvörur t.d. fallcgir lampar einnig erum við með fataefni, gardínuefni og bútasaumsefni. Selfossi • Eyravegur 15 • 800 Selfoss • Slmi 4822930 • butabaer@simnet.is Bóndinn á Forsæti Ólafur segir Landsvirkjun hafa beitt blekkingum í áróðri sínum fyrir því að fá að virkja Urriðafoss. fyrirtæki sem hefur greiðan aðgang að peningum og spunameisturum, og það þarf því kannski ekki að koma á óvart þegar heilu kirkjukórarnir í sveitinni geta farið í utanlandsferðir með styrk frá Landsvirkjun," segir Ól- afur. Hann segir að ekki megi gera lít- ið úr rétt almennings til þess að mót- mæla jafh alvarlegum og róttækum áformum eins og virkjun Urriðafoss. „Sú aðferð er stundum notuð að gera lítið úr þeim sem mótmæla. Þetta er hins vegar bæði réttur okkar og skylda. Það var ekki endilega bara skríll sem kaus að taka sér stöðu á Torgi hins himneska friðar í Kína." Pólitískur stuðningur Minna hefur borið á þeim sem eru hlynntir Urriðafossvirkjun á svæðinu í kring um Þjórsá. Ólafur telur að þeir séu þó til en láti sjálfsagt litið fýrir sér fara. „Það er mögulegt að í þessum hóp sé yngra fólk sem jafnvel á eitt- hvað af tækjum og getur fengið góð atvinnutækifæri á meðan virkjun er reist. Hins vegar held ég að fólk sé al- mennt vel meðvitað um hvað þetta mál snýst í heild sinni. Þegar upp er staðið þá snýst málið ekki um pen- inga. Það snýstum framtíðina ogvirð- ingu fyrir náttúrunni og umhverfinu." Ólafur segir að jafnvel þótt Lands- virkjun sem rfldsfyrirtæld hafi verið harsnúin í áróðri sínum fýrir virkjun- inni, þá séu Þjórsárbændum ekki öll sund lokuð í pólitfldnni. „Við höfúm fengið góðan hljómgrunn frá bæði Björgvin G. Sigurðssyni viðskiptaráð- herra og Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra. Svo eigum við vit- anlega hauk í horni hjá Atla Gíslasyni og Vintrihreyfingunni - grænu fram- boði." Ólafur og kona hans, Bergþóra Guðbergsdóttir, reka nú ferðaþjón- ustu á bænum og hafa í sameiningu reist þar safn þar sem handverks- munir eru til sýnis. „Við höfúm í raun- inni kosið að reyna að halda þessari ferðaþjónustu fyrir utan þessa baráttu okkar sem er í eðli sínu pólitísk. En framtíð ferðaþjónustunnar á svæðinu byggist að nokkru leytí á því að nátt- úran fái að halda sinni upprunalegu mynd," Ólafúr að lokum. sigtryggur&dv.is rr ÞAÐ ÞARF ÞVÍ KANNSKIEKKIAÐ KOMA Á ÓVART ÞEGAR HEILU KIRKJUKÓRARNIR í SVEITINNIGETA (UTANLANDSFERÐIR MEÐ STYRK FRÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.