Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008
Suðurland DV
NETAUPPTAKAN
BJARGAR HVÍTÁ
Ágúst R. Morthens í Veiðisporti segir að breytileg vatnshæð í
Soginu geti haft talsverð áhrif á seiðabúskap árinnar. Ágúst hef-
ur gert stangaveiðina á Suðurlandi að ævistarfi sínu. DV tók hús
á Ágústi áður en hann lagði í árlega afslöppun á Kanaríeyjum.
Ágúst R. Morthens hefur gert stanga-
veiðina á Suðurlandi að ævistarfi
sínu. Hann hefur rekið verslunina
Veiðisport á Selfossi síðan árið 1987
og ætíð verið virkur í starfi Stanga-
veiðifélags Selfoss.
„Við sækjum fyrst og fremst í Ölfu-
sána og í Hvítá við Snæfoksstaði. Svo
er Stangaveiðifélag Selfoss með Al-
viðrusvæðið í Soginu í samstarfi við
Stangaveiðifélag Reykjavíkur. Þessi
svæði okkar eru í mikilli sókn og það
hefur ugglaust hjálpað til að búið er
að kaupa upp hluta af netaveiðinni á
Hvítársvæðinu," segirÁgúst.
En Morthens? „Jú, þeir eru bræð-
ur mínir, Bubbi, Tolli, Arthúr og All-
an. Ég er elstur. Bubbi sökkti sér al-
deilis í stangaveiðina, maður."
Deilt við Landsvirkjun
Ágústi er umhugað um veiði-
svæði Sunnlendinga og einkum þá
Sogið, sem hann telur að eigi í vök að
verjast. „I Soginu er það náttúrulega
breytileg vatnshæð sem ég tel að sé
slæm fyrir seiðabúskapinn," seg-
ir Ágúst. Hann segir málið afar við-
kvæmt og varla megi minnast á það
einu orði.
„Þetta hefur með vatnsmiðlun
í virkjunum Landsvirkjunar í Sog-
inu að gera. Breytilegt vatnsmagn
í Þingvallavatni skilar sér beint í
ána þegar hleypt er framhjá stífl-
unum eða skrúfað fyrir." Ásgeir seg-
ir að alltaf þegar málið sé tekið upp
bendi Landsvirkjun á sírita sem fylg-
ist með vatnshæð í Soginu. „Málið
er bara það að það sést stundum vel
hve hátt ísalög hafa náð í ánni og þá
hve mikið vatnsborðið hefur lækkað.
Það koma líka til mín veiðimenn sem
hafa vaðið út upp undir mitti en eiga
svo erfitt með að komast aftur í land
þegar vatnsborðið hefur skyndilega
hækkað."
Fjarar undan seiðunum
En hvaða áhrif ætli breytilegt
vatnsborð hafi á seiðabúskap árinn-
ar? „Sjáðu til, mín kenning er sú að
þegar vatnið í ánni hækkar skyndi-
lega, leita seiðin upp á grynnra vatn
í volga og þægilega polla. Skyndi-
iega er lokað fyrir stífluna og þá
flæðir ógnarhratt undan seiðunum
sem komast hvergi og verða fugli og
minkum að bráð," segir Ágúst.
Þessar öru sveiflur á vatnsborði
Sogsins voru, að sögn Ágústs, mun
hægari og sjaldgæfari áður en áin
var virkjuð. „Auðvitað hækkaði vatn-
ið í stórrigningum hérna í eina tíð, en
þetta voru miklu hægari hreyfingar
og náttúrulegri." Ágúst tekur íram að
þetta séu sínar kenningar og þeim
hafi verið mótmælt harðlega. Hann
telur þó að málið ætti ekki að þurfa að
vera viðkvæmt ef allt væri með felldu.
Netaupptakan bjargar
Netaupptaka í Hvítá er Ágústi
mikið hjartans mál, en bændur við
Hvítá hafa í gegnum tíðina veitt hátt
í þrjú þúsund laxa á hverju ári í net.
„Núna eru eftir einar fimm lagnir í
Hvítánni, sem er yfirdrifið nóg. Það
eru til að mynda engin net lengur
lögð við Hraun í Ölfusi. Reyndar er
Hraun ekki sami stórveiðistaður og
það var hér áður fyrr. Hins vegar er
nokkuð greinilegt að upptaka net-
anna hefur haft mikil jákvæð áhrif í
stangaveiðinni."
Ágúst segir skilning land- og
veiðiréttareigenda við vatnasvæði
Hvítár hafa aukist til muna á því hve
mikil verðmæti liggi í stangaveið-
inni. „Það sem maður óttast núna er
fyrst og fremst það að sportið okkar
verði smám saman keypt upp af er-
lendum auðkýfingum og við venju-
legu mennirnir fáum ekki aðgang að
ánum nema með því að greiða fyrir
það aleiguna." sigtryggur@dv.is
f búðinni Ágúst Morthens
gerði stangaveiðina að
ævistarfi sínu með því að opna
veiðibúð á Selfossi árið 1987.
Toyota Rav4 GX (111597) 2/2006, bensln,
ssk, ekinn 45 þús km.aurhlífar, húddhlíf,
cd magas(n,ofl...Ásett verö 2.750 þús,
TILBOÐ 2.550 þús.stgr.
Toyota Rav4 (134779) 9/2004, bensín, ssk,
ekinn62þúskm, dráttarkr, ofl... Ásett verð
1.960 þús. Áhvílandi 1.900 þús. Fæst á
yfirtöku á láni
TOYOTA
SELFOSSI
Toyota Selfossi
Fossnes 14, 800
Sími :480 8000
www.toyotaselfossi.is
Toyota Land Cruiser 120 GX 33”(111616)
6/2005,d(sel,ssk,ekinn 64 þús km,33"
breyttur, spoiler, prófílbeisli, húddhlíf, ofl...
Ásett verð 4.790 þús.
Toyota Land Cruiser 90 GX (134497)
8/2000, dlsei,ssk,ekinn 197 þús km.drát-
tarkr, ofl... Aðeins 2 eigendur... Ásett verð
Toyota Hiace Langur4x4 (270545) 3/2004,
dísel, 5 gíra bsk,ekinn 80 þús km.VSK bíll,
plata igólfi,ofl...Ásettverö 1.890 þús.
Toyota Land Cruiser 100TDI (133304)
4/2002, disel, ssk, ekinn 114 þús km, Ijóst
ieður, samlitur, 18"felgur, topplúga, tems, ofl...
Ásett verð 3.980 þús. ATH listaverð 4.100 þús.
Toyota Land Cruiser 120 GX 33" (111677)
7/2005, dísel, ssk, ekinn 43 þús km, 33"
breyttur, aukasæti, prófílbeisli, húddhlíf,
ofl...Ásett verð 4.850 þús.
Toyota Hilux D/C 3.0L (135073) 7/2007,
dísel, ssk, ekinn 8 þús km, prófílbeisli, glug-
gavindhlífar, ofl... Ásett verð 3.250 þús.
Toyota Land Cruiser 100 VX (111635)
1/2003,d!sel,ssk,ekinn 93 þúskm.ljóst
leður, dráttarkr, spoiler.filmur, ofl... Ásett
verð 4.980 þús.
Toyota Land Cruiser 120 LX 35"(111698)
9/2005, dlsel,ssk,ekinn 59 þús km,35"
breyttur, sóllúga, þverbogar, spoiler, ofl...
Ásett verð 5.390 þús.
a Land Crulser 100 TDI (135150)
5, disel, ssk, ekinn 60 þús km, Ijóst
samlitur, topþlúga, spoller, dráttarkr,
sett verð 6.690 þús.
—
ta Land Cruiser 120 VX 35"(111614)
004,d(sel,S5k,ekinn 75 þúskm.ljóst
r, 35" breyttur á 15" felgum, topplúga,
Ásett verð 5.490 þús.
ToyotaTundra Crewmax LTD (111080)
2007, bensln, ssk, ekinn 10 þús km, Ijóst
leður, klæddur pallur, topplúga, ofl...Ásett
verð 4.790 þús.--------------------
M
Toyota Hilux D/C 3.0L 35" (191206) 4/2007,
dfsel, 5 gira bsk,ekinn 16þús km,35"
breyttur á 15"felgum, pallhús, klæddur
pallur. ofl... Ásett verð 3.890 bús.
GX (135290) 2/2006, bensín,
is km, topplúga, silsarör,
ir, aurhllfar, ofl... Ásett verð
2.970 þús.TILBOÐ 2,690 þús.stgr.