Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 Sport DV Valur þurfti að tjalda öllu til þess að leggja 1. deildar lið Vikmgs 1 Eim- skipabikarnum í gærkvöldi, 32-38. Tölurnar segja nákvæmlega ekkert um leikinn sem var hreint út sagt magnaður og einfaldlega stórkostleg skemmtun. Bikarleikur eins og þeir gerast allra bestir. - Valur vann sex marka sigur á Vík- ingi, 32-38, í Víkinni í Eimskipabik- arnum í gærkvöldi. Víkingar sem leika í 1. deild börðust eins og ljón og geta vel við unað en á endanum áttu þeir ekki nóg til að klára Islands- meistarana. Besti leikur ársins svo einfalt er það. Það var eins og að stíga aftur til fortíðar í Víkinni í gærkvöld. Þetta forna stórveldi í handboltanum á muna sinn fífil fegurri en ieikurinn í gær minnti óneitanlega á gamla tíma. Stemningin var gríðarleg og í raun ágætis innsýn á hversu skemmtilegt getur verið á íslenskum handbolta- leikjum. Víkingar urðu fyrir áfalli á fyrstu mínútum leiksins þegar lykilmaður þeirra, Sverrir Hermannson, þurfti að ljúka leik vegna meiðsla. Sverrir er gríðarlega mikilvægur íyrir Vík- ingsliðið og er fyrir utan það eina örvhenta skyttan í liðinu. Strax frá fyrstu mínútu sást að Víkingar voru ekki komnir til þess eins að vera með. Þeir sýndu fs- landsmeisturunum enga virðingu og tóku hart á þeim í vörninni. Öll- um að óvörum var það fyrstu deild- ar liðið sem leiddi í hálfleik tveimur mörkum, 14-12. Víkingur gaf ekkert eftir Valsmenn komu mun ákveðnari til leiks í seinni hálfleik staðráðnir í að keyra upp hraðann og skilja Vík- inga eftir. Þeir náðu að jafna fljótleg í 18-18 og virtist sem svo að tími Vík- ingaværi úti. Svo var nú aldeilis ekki því Vík- ingar skoruðu þrjú mörk í röð og breyttu stöðunni í 21-18. Heima- menn urðu svo fyrir öðru áfalli þeg- ar hin stórskyttan, Sveinn Þorgeirs- son, var sendur í bað með sína þriðju brottvísun eftir glórulausan dóm. Áhorfendur trúðu vart eigin aug- um þegar staðan var 25-25 og að- eins tvær og hálf mínúta eftir. Það voru Valsarar sem fengu tækifæri til að klára leikinn en fengu dæmdan á sig ruðning þegar 20 sekúndur voru eftir og Víkingar gátu allt í einu skor- að draumamarkið. Það tókst þó ekki en aukakast Þóris Júlíussonar eftir að leiktíma lauk, fór í stöngina, aftan í Pálmar í markinu og út og því þurfti að framlengja. Spennan í algleymingi Þórir Júlíusson var þó hetjan eft- ir fýrri framlenginguna þegar hann jafnaði leikinn með undirhand- arskoti f sama mund og lokaflaut- an gall. Valur var með unninn leik í höndunum, marki yfir og með bolt- ann þegar 40 sekúndur voru eftir. En til þess að stemma stigu við spennuna sem var í leiknum létu þeir dæma af sér boltann. Víldngar fóru í sókn og áttu 20 sekúndur til að bæta við framlenginu. Það tókst eins og greintr er frá hér að ofan. Staðan var 30-30 þegar seinni framlenging hófst. Það var farið að sjást í fyrri fram- lengingunni að Vfldngarnir ættu ekki meira inni. Aðeins gríðarlegur vilji og dugnaður fleytti þeim áfram um sinn en þegar á leið var búið á tank- num. Valsmenn skoruðu þrjú fyrstu mörkin í síðari framlengingunni en áffam fóru Víkingar á viljanum sem yfirgnæfði hina gífurlegu þreytu sem var komin í liðið og skoruðu þeir tvö mörk í röð og minnkuðu muninn í eitt mark, 32-33. Undir lokin átti Valur einfaldlega meira inni og kláraði leikinn örugg- lega með sex marka sigri, 32-38. Vík- ingar geta þó borið höfuð hátt fyr- ir frammistöðu sína í gærkvöldi og greinilega er framtíðarlið þarna á ferð. tomas@dv.is Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, fagnar framtaki ÍBR og Atorku Viduka hefur enn hlutverk Kevin Keegan stjórl Newcastle hefur sagt að Mark Viduka sóknarmaður liðsins sé enn (sínum framtíðarplön- um. Viduka hefur sagt að leikmenn liðsins verði að spila fyrir stoltið það sem eftir er af tímabilinu því ekki koma bikarar í hús hjá liðinu. Keegan hefur ekki mikið verið að nota stóra Ástralan en segir að hann hafi enn hlutverki að gegna hjá liðinu.„Hann hefur verið að glíma við smá meiðsli undanfarið en nú er því lokið og hann hefur verið frábær á æfingum. Þegar hann verður orðinn alveg heill þá er ekki spurning að hann hefur enn hlutverki að gegna hjá þessu liði. Hann er einn besti leikmaður heims þegar kemur að því að halda boltanum upp á topp. Ef hann fær boltan í fæturnar missir hann boltan sjaldan." Newcastle er í 13 sæti deildarinnar, sex stigum frá fallsvæðinu. Gat vel spllað með Lampard Þjóðverjinn Michael Ballack segir það af og frá að hann og Frank Lampard geti ekki spilað saman á miðjunni. Margir hafa bent á að Ballack sé að gera Lampard það sama og Steven Gerrard geri við hann hjá enska landsliðinu, þeir séu of líkir. „Frank er frábær leikmaðurog hvaða lið vildi ekki hafa Frank Lampard í sínu liði. Hann skorar mörk og leggur þau upp. Ég get vel spilað með hverjum sem er á miðjunni og það hjálpar að hafa góðan leikmann í stað lélegs leikmanns, það segir sig sjálft. Við höfum spilað áður saman þannig ég skil ekki alveg hvaðan þetta kemur," sagði Ballck rólegur. Sagan að endurtaka sig Fyrir fjórum tímabilum var Scott nokkur Parker að blómstra með Charlton. Hann skoraði falleg mörk, tæklaði allt sem hreyfðist og tapaði boltanum sjaldan. Hann var kallaður íenska landsliðið og fórtil Chelsea á 10 milljónir punda. Það sem átti að vera drauma félagaskipti breyttist fljótt í martröð þar sem Parker var meiddur mikið og spilaði aðeins fáeina leiki fyrirfélagið. Þaðan hefur hann síðan farið til Newcastle og svo til West Ham þar sem hann situr í stúkunni meiddur. Fyrir tveimur árum var Steve nokkur Sidwell að blómstra hjá Reading. Hann skoraði falleg mörk, tæklaði allt sem hreyfðist og tapaði boltanum sjaldan. Nú er hann hjá Chelsea og er dottinn úr leikmannahóp liðsins í Meistaradeildinni. Minnir óneytan- lega á söguna hér á undan. Ofurtilboð Read Madrid í Berbatov Enn leita áhugasamir menn logandi Ijósi að nýju liði handa Dimitar Berbatov. Sama þó engar fréttir berist úr herbúðum Tottenham eru fjölmiðlar alltaf tilbúnir að leita uppi nýjustu liðin sem hafa áhuga á framherjanum magnaða. Nú er það Real Madrid sem vilja fá Búlgarann og munTottenham fá ríkulega greitt fyrir hann. Peningaupp- hæðin á víst að vera f einhverju eðlilegu samhengi en auk seðlanna ætla Spánarmeistararnir að láta í skiptum þrjá leikmenn. I þessum félagaskiptum sem líkjast helst þeim sem ganga á (körfuboltanum á Berbatov að fara til Madrid en til Lundúna fara þeir Julio Babtista, Roy- ston Drenthe og Gabriel Heinze. Hjartastuðtæki um alla Reykjavík íþróttabandalag Reykjavíkur og Átorka kynntu á blaðamanna- fundi í húsi slökkviliðsins í gær nýtt átak sem hafið er. Átakið felst í því að tBR með dyggilegu framlagi At- orku gefur öllum íþróttahúsum á Reykjavíkursvæðinu handtækt hjartastuðtæki. Alls fá tuttugu og tvö íþróttamannvirki að gjöf þetta merka tæki. „Svona er nú alvara lífsins," voru orð að sönnu hjá slökkviliðstjóran- um Jón Viðari Mathíassyni þegar hann talaði um hversu mikilvægt tækið væri. Hann hafði vart sleppt orðunum þegar sjúkrabíll sem staddur var í skemmunni var kall- aður út. Slökkviliðið mun sjá um þjálfun aðstandenda íþróttahús- anna við notkun tækjanna og sér um eftirlit með því. Mörg íþróttahúsin sem fá þetta góða tæki eru með deild innan vé- banda KSf og formaðurinn, Geir Þorsteinsson, var ánægður við af- hendinguna. „Þetta er frábært framtak hjá ÍBR og Atorku sem ég fagna mjög. Þetta er ekki einung- is mikilvægt fyrir leikmennina því hvað knattspyrnuna varðar eru mjög margir áhorfendur sem mæta á leiki og þetta mun engu síður þjóna þeim jafnvel. Ég þekki það vel sjálfur að í langri sögu knatt- spyrnunnar hafa orðið dauðsföll á áhorfendapöllunum. Hvað leikmennina varðar er þetta mjög mikilvægt og í fyrra ákváðum við á Laugardalsvelli að koma okkur upp svona tæki. Þetta tæki er mikilvægt til að halda áfram að styrkja okkar öryggisnet í kring- um okkur íþróttafólk. Við erum svo heppin að í Reykjavík er stutt að fara á sjúkrahús en þetta mun auka enn meira öryggið við okkar íþrótta- fólk," segir Geir Þorsteinsson. tomas@dv.is BESTILEIKUR ARSINS Hart barist Mikil barátta einkenndi leik Víkings ogVals.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.