Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Síða 38
18 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 Sport DV ÍÞRÓTTAMOLAR VIKTOR SKORAÐI MEÐ SINNI FYRSTU SNERTINGU Viktor Bjarki Arnarson skoraði eina mark Lilleström í æfingarleik gegn Spartak Nalchiká La Manga.Viktor kom inn á sem varamaðurog skoraði með sinni fyrstu snertingu. Viktor var til reynslu hjá Gais-liðinu í Svíþjóð ekki alls fyrir löngu þrátt fyrir að vera orðinn heill heilsu. Hann hefur verið mikið meiddur eins og einkennir Islenska leikmenn sem fara út í atvinnu- mennsku og fara að æfa eins og menn. Lilleström tapaði leiknum 3-1. HANNES HINN NÝICECH Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður Vikings frá Stafangri, mun framvegis leika með hjálm að hætti Peters Cech, markvarðar Chelsea. Hannes segir I samtali við Aftenposten að hann hafi fengið heilahristing í meira en tíu skipti síðan hann vará mála hjá Viking í upphafi ferils síns og nú sé mál að linni. Hannes verður I byrjunarliði Vikings I dag þegar liðið leikur æfingaleik gegn sænska liðinu Halmstad á La Manga á Spáni. Þetta verður í fyrsta sinn sem hann er í byrjunarliðinu slðan hann varð fyrir líkamsárás I miðbæ Reykjavíkur um jólin. VALLE DEL ESTE VÖLLURINN ERF- IÐUR Ljóst er að Valle del Este-völlurinn á Spáni reynist (slensku kylfingunum erfiður ef marka má skor þeirra á fyrsta hring á Valle del Este Open, sem er hluti af Hi5 Pro-mótaröðinni. Stefán Már Stefánsson úrGR og Magnús Lárusson úrGKJ léku báðir í gær og áttu ekki sinn besta dag. Stefán lék hringinn á 76 höggum, eða 5 höggum yfir pari, og Magnús á 78 höggum. örn Ævar Hjartarson úr GS lék fyrri níu holurnar á 5 höggum yfir pari og Sigurþór Jónsson úr GR lék þær á 8 höggum yfir pari. Þess má geta að Örn Ævar lék Valle del Este-völlinn á æfingu síðastliðið haust á 65 höggum. Það er ekki það sama að spila æfingahring og vera í keppni. Daninn Brian Akstrup er á besta skori þeirra sem lokiö hafa leik í dag, kom inn á 71 höggi eða pari.Völlurinn er mjög krefjandi og má lítið út af bregða í flestum teighöggum. Ef menn eru ekki á braut er boltinn týndur og það kostar víti. MIKIÐVATN RUNNIÐTIL SJÁVAR Er eitthvað meira en lítiö athugavert viö % smannasíöustuárin? Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari Hafði miklar áhyggjur þá af meiðslum leikmanna en segir mikið vatn hafa runnið til sjávar síðan. Meiðsli handboltamanna höfðu verið mjög tíð á þessum árum og markverðirnir Einar Þorvarðarson og Gísli Felix Bjarnason höfðu báðir slit- ið krossband. Þorgils Óttar Mathie- sen, Jakob Sigurðsson, Páll Ólafsson, Bjarki Sigurðsson, Arni Friðleifsson og Júlíus Gunnarsson höfðu einn- ig orðið fýrir því óláni að slíta kross- band. Samtals höfðu þessir leilcmenn leikið 1.004 landsleiki þegar fréttin var skrifuð árið 1992. „Ég man vel eftir þessari grein," sagði Gauti og sagði að ýmislegt hefði breyst á þessum 16 árum. „Þetta var tímabil þar sem var svakalega mikið álag. Menn æfðu meira af kappi en forsjá en núna eru þjálfunaraðferðir og umgjörð orðin mun betri en var. Það hehir breytt miklu hvað allt er orðið faglegra." í greininni frá 1992 segir Gauti að átta af tólf þjálfurum í efstu deild séu ekki með íþróttafræðilega menntun en hafi þó mikla reynslu og kunnáttu úr íþróttinni. „Það er orðið algeng- ara að sjúkraþjálfarar séu með lið- unum og það hefur áhrif. Það hefur verið tekið út fullt af æfingum sem eru óheppilegar. Allur þessi hópur var af Bogdan-kynslóðinni og hann æfði mikið því þetta var mjög stíf og grimm þjálfun. Það hafði áhrif. En þetta er ekki bara álagið heldur líka tæknilegt hvernig menn ógna á markið og menn geta slitið kross- band með vitlausri beitingu. Ef mað- ur ógnar vitíaust á markið er maður aðeins að hafa áhrif á krossbandið og hnéð. Menn eru líka farnir að gera æf- ingar sem styrkja hnéð og styrkja lær- vöðvann sem eiga að koma í veg fyrir meiðsli." Krossbandaslit eru álagsmeiðsli Gauti segir að íþróttamenn stundi meira varnaraðgerðir til að reyna að koma í veg fyrir meiðsli ólíkt því sem áður tíðkaðist. „Það eru flest- HeiK landslið heffur slitið krossbönd í hné ar íþróttagreinar sem eru með eitt- hvað í gangi til þess að fylgjast betur með íþróttafólki bæði til að gæta getu þess í greininni og líka til að koma í veg fyrir meiðsli. Krossbandaslit eru í raun álagsmeiðsli. Þau koma til á löngum tíma, svo allt í einu fer allt í ldessu. Það sem var á þessum tíma var svo óvenju- legt því þetta voru svo mildð strák- ar sem lentu í þessu. Þetta var meiri stelpumeiðsh og í handboltanum var þetta þannig að menn meiddust ekki í átölcum eða samstuði. í fótbolta gerist þetta meira þannig að menn lenda í samstuði þar sem þeir keyra í hnéð og eitthvað þannig. I handbolta var þetta þannig að þetta gerðist án snertingar í rauninni sem bendir til að eitthvað sé ekki nægilega sterkt því liðbönd þjálfast með þjálfun. Einmitt núna erum við að byrja með hnéþjálfun fyrir stelpur og stráka á vaxtarskeiði, í raun hnéleik- fimi. Það er svolítið fyndið að við byrjuðum með þá leikfimi í dag. Hitt- ir dálítið vel á að 16 árum eftir þessa grein sé maður kominn með að- stöðu til að vinna í þessum meiðsl- um kerfisbundið. Ég hef verið með þessa þjálfun hjá Gróttu en núna er ég að byrja með nýja tíma í nýrri að- stöðu. Þar erum við með æfingar til að koma í veg fyrir meiðsli og ótíma- bæra hrömun því það sem gerist og hefur sýnt sig með rannsólcnum er að þegar ungir krakkar og sérstak- lega stelpur slíta krossbönd flýtír það hrörnun og sliteinkennum í hnjám seinna á lífsleiðinni." benni@dv.is Veitt voru verðlaun fyrir umferðir 10-17 í Iceland Express-deild kvenna: Valur og Grindavík sigursæl ÍDAG 16:50 SUNDERLAND - WIGAN 18:30 PREMIER LEAGUE WORLD Leikmenn heimsóttir, gömlu stjörnurnar leitaðar uppi og svipmyndiraf æðinu fyrir enska boltanum um heim allan. 19:00 COCA COLA MÖRKIN Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í leikjum síðustu umferðar í Coca Cola deildinni 19:30 ENGLISH PREMIER LEAGUE Viðbrögð þjálfara, stuðningsmanna og sérfræðinga. 20:30 44 2 Islensk dagskrárgerð eins og hún gerist best. Tvíeykið, Heimir Karlsson og Guðni Bergsson, stendur vaktina ásamt vel völdum sparkspekingum, og saman skoða þeir allt sem tengist leikjunum á skemmtilegan og nákvæman hátt. 21:55 LEIKUR VIKUNNAR 23:35 ASTON VILLA - NEWCASTLE f gær veitti Körfuknattieikssam- bandið verðlaun þeim sem skör- uðu fram úr í umferðum 10-17 í Ice- land Express-deild kvenna. Valsarar og Grindvíkingar sópuðu þar að sér verðlaunum og tóku heim öll nema eitt. Besti leikmaðurinn var valin Signý Hermannsdóttir úr Val. Með hennar framlagi ásamt Molly Peterson sem einnig var valin vann Valur sex leiki og tapaði aðeins tveimur. Með þess- um sigrum kom Valur sét-tíu stigum frá fallsæti og sú barátta nánast búin. Aðrar í liðinu voru Grindavíkur- stelpurnar Jovana Lilja Stefánsdóttir og Tiffany Roberson ásamt KR-ingn- um Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur. Besti þjálfari umferðanna var val- inn Igor Beljanski úr Grindavík. Igor stýrði liði sínu í sjö sigrum og aðeins einu tapi og það er sem stendur í öðru sæti Iceland Express-deildar- innar. Igor var eðlilega sáttur við sitt. „Ég er mjög ánægður með verðlaun- in og hvernig liðið spilaði yfir þetta tímabil. Þetta allt er að þakka mik- illi vinnu sem ég og stelpurnar höf- um lagt á okkur og nú vii ég að þetta verði framhaldið hjá okkur. Það var alltaf stefnan að ná svona langt með liðið þegar ég tók það að mér að þjálfa það. Ég vissi hvernig var í pottinn búið með að þær höfðu misst tvo lykilmenn en við fengum tvær sterkar stelpur á móti sem smell- passa í hópinn og liðsandinn er frá- bær," sagði Beljanski sem er ánægð- ur með hversu jöfn og skemmtileg deildin er en viðurkennir þó að hann vilji nú frekar vinna alla leiki. Lokabaráttan fer nú að hefjast og hún verður erfið. Við erum búin að tapa á tímabilinu jöfnum og spenn- andi leikjum og setja okkur þannig í erfiða stöðu. Við verðum að vinna helst alla leikina sem eru eftír, þar á meðal Keflavík, og vona að þær tapi allavega einum leik til viðbótar." Ásamt því að þjálfa kvenna- lið Grindavíkur er Igor lykilmaður í karlaliðinu inni á vellinum. „Það hef- ur verið mjög gaman að tvinna þetta saman. Stundum er þetta erfitt hvað varðar tímasemingar á leikjum því ég á oft leiki á miðvilcudögum með stelpunum en á svo að spila sjálf- ur með strákunum daginn eftír. Þá sleppi ég oftast lokaæfingunni með strákunum sem er skotæfing. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og hefur gefið mér persónulega mjög mikið."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.