Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Side 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008
Suöurland DV
*
Ragnheiður
bæjarstjóri
I bæjarstjóm Árborgar starfar
meirihluti Framsóknarflokks-
ins, Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna. Þeir flokkar stofnuðu til
samstarfs í desember á þarsíðasta
ári þegar meirihluti Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar sprakk vegna
ágreinings um skipulagsmál. Bæj-
arstjóri er Ragnheiður Hergeirs-
dóttir, sem er Selfossbúi í húð og
hár.
Þorsteinn
ogDavíð
Fjölmargir einstakiingar sem setja
svip sinn á íslenskt samfélag em
frá Selfossi - eða hafa einhver
tengsl við bæinn. Þar ber líkilega
hæst nöfn Þorsteins Pálssonar og
Davíð Oddssonar. Þeir em æsku-
félagar og ólust upp í húsum sitt
hvoru megin
við Austurveg-
inn, aðalgötu
bæjarins. Þeir
fluttu báð-
ir ungir til
Reykjavíkur, en
æskuvináttan
lagði grunn að
nánu samstarfi
þeirra félaga
sem lengi varði, eða ailt að for-
mannskjörinu á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins árið 1991 þarsem
Þorsteinn tapaði formennskunni
fyrir Davíð.
En líflð er meira en pólítík. Nokkr-
ir fjölmiðlamenn eru frá Sel-
fossi og má þar nefna Valgerði A.
Jóhannsdóttur varafréttastjóra
Sjónvarpsins, Guðjón Arngríms-
son blaðafulltrúa Icelandair og
Svein Helgason umsjónarmann
Morgunvaktar Útvarpsins. Auk
þeirra má nefna
Kristjönu Stef-
ánsdóttur djass-
söngkonu og
Guðlaugu Elísa-
betu Ólafsdótt-
ur leikonu sem
er velþekkt fyrir
leik sinn í þætt-
inum Stelpurnar
á Stöð 2.
NÚGETURÞÚ LESIÐ
DVÁDV.IS DVer
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr.á
mánuði
íslendingar þekkja flestir eitthvað til Selfoss. Leiðir margra liggja í gegnum þennan
fagra og flatlenda bæ. Mikill uppgangur er á Selfossi, sem er stærsti byggðarkjarni
sveitarfélagsins Árborgar.
Þar sem leiðir á Suðurlandi skerast
við ölfsárbrú er Selfoss. Byggðarlag
sem tók að myndast af aívöru um
1930, þegar Mjólkurbú Flóamanna
og Kaupfélag Árnesinga hófu þar
starfsemi sína. í samræmi við þann
vöxt og viðgang þessara fyrirtækja
sem lengi var fjölgaði íbúum jafnt og
þétt - og hefur ekkert bakslag komið í
þá þróun. Nú er raunar svo komið að
Selfoss og nærliggjandi byggðir telj-
ast orðið hluti af höfuðborgarsvæð-
inu, enda sækja margir sem búa
eystra vinnu sína daglega til Reykja-
víkur - jafnframt því sem mörgum
sem búa syðra þykir ekkert tiltöku-
mál að sækja vinnu austur fyrir fjall.
Hálfgert Klondyke
Selfoss er um margt sérstakur bær.
Það er fyrst á seinni árum sem hægt
er að tala um innfædda Selfossbúa,
fólk sem þar er fætt og á þar allar sínar
rætur. Framan af áttu allflestir bæjar-
búar bakland sitt og heimaslóð í nær-
liggjandi sveitum eða annars staðar á
landinu, en settu sig niður á Selfossi
vegna atvinnu. Bærinn er með öðr-
um orðum afsprengi þeirra miklu
breytinga sem urðu í búsetuháttum
þjóðarinnar á síðustu öld, þegar fólk-
ið fór að flytjast úr sveitunum á möl-
ina í leit að skárri afkomu og betra
lífi. Að því leyti varð Selfossi hálfgerð-
ur gullgrafarabær - Klondyke - enda
þótt meðaltekjur á Selfossi haíi aidrei
verið tiltakanlega háar.
Það var smíði Ölfusárbrúarinnar
árið 1891 sem lagði grundvöllinn að
þéttbýlismyndun á Selfossi. Rétt eins
og brúin hefur jafnan verið tákn-
mynd bæjarins var byggðin fyrstu
áratugina ævinlega kennd við brúna
og talað um húsin „við Ölfusárbrú",
eins og menn komust að orði. Það
að bærinn væri nefndur Selfoss kom
ekki fyrr en löngu síðar og ef til vill
öðlaðist sú nafngift ekki fullan þegn-
rétt fyrr en með stofnun Selfoss-
hrepps árið 1947. Til hans voru lagð-
ar sneiðar úr þremur sveitarfélögum,
það er Sandvíkur-, Hraungerðis- og
Ölfushreppi.
Á þeim tíma var byggðin á Selfossi
orðin nokkuð blómleg, íbúar nokk-
ur hundruð og allmörg fyrirtæki og
stofnanir í sveitaþorpinu sem með
tímanum breyttist í borg. Fékk Sel-
foss kaupstaðarréttindi í maíbyrjun
árið 1978ogþávorubæjarbúar orðn-
ir 3.199. Árið 1998 sameinuðust Sel-
foss, Sandvíkurhreppur, Eyrarbakki
og Stokkseyri svo í Sveitarfélagið Ár-
borg árið 1998. íbúar þess eru í dag
nærri 7.565 og þar af búa á Selfossi
6.253 manns; það er samkvæmt töl-
um frá 1. desember 2007.
Þetta er góður staður
Hafa mætti hér yfir langan fróðleikum
ýmsa merkiskarla- og kerlingar sem
búið hafa á Selfossi og lagt sinn skerf
af mörkum til uppbyggingar samfé-
lagsins. Við skulum sleppa upptaln-
ingu og löngum lista; sá Selfyssingur
sem mest ber á í dag er án vafa Guðni
Ágústsson, formaður Framsóknar-
flokksins. Hann hefur búið á Selfossi í
meira en þrjátíu ár - og á með
fjölskyldu
sinni fal-
hús sem er áberandi á vinstri hönd
þegar komið er að Ölfusárbrú úr
norðurátt. Upphaflega var ætlun
Guðna að verða bóndi í sveit, en sú
ætlan gekk ekki eftir. í viðtali við DV
fyrir nokkrum árum rifjaði hann þá
sögu upp og sagði:
„Þá varð að taka næstbesta kost-
inn og við settum okkur niður á Sel-
fossi [...] Þetta er góður staður; sam-
heldið samfélag og fjölskylduvænn
bær. Félagshyggja hefur alltaf ein-
kennt mannlífið hér öðru fremur. Sel-
foss hefur líka upp á að bjóða allt það
sem hvert samfélag þarf og eru gerðar
kröfur um. Mér finnst líka gott að búa í
samfélagi þar sem ég þekki fólkið, það
er mikilvægt fyrir stjórn-
málamann sem þarf
að hafa slík tengsl við
grasrótina."
Guðni Ágústsson
„Þetta er góður
staður.samheldið
samfélag og
fjölskylduvænn
bær."
Tónlistin gegnir stóru hlutverki á Selfossi:
Frá Steina spil til Skítamórals
Margar þekktar hljómsveitir sem náð
hafa miklum vinsældum hafa kom-
ið frá Selfossi. Þannig hefur á Suður-
landi verið sterk hefð fyrir sveitaböll-
um og hafa hljómsveitirnar öðrum
þræði sprottið upp úr þeim jarðvegi.
Þannig gerði Hljómsveit Þorsteins
Guðmundssonar - Steina spil - garð-
inn frægan í kringum 1970 - og átti
aðdáendur um landið þvert og endi-
langt. Önnur sveit sem naut mikilla
vinsælda á svipuðum tíma var Mán-
ar; þar sem stórsöngvarinn Labbi sem
margir þekkja fór fremstur í fylkingu.
Mánar léku einkum þunga rokktón-
list, eins og hefð þess tíma bauð. Sveit-
in gaf út nokkrar hljómplötur og hefur
stöku sinnum komið saman á síðustu
árum, meðal annars í tengslum við
tónleika Deep Purple sem haldnir
voru í Laugardalshöll fyrir nokkrum
árum. Þriðja Selfosssveitin sem riðið
hefur á öldufaldi vinsælda meðal al-
mennings er Skítamórall. Sveitin var
á toppnum fyrir um um árið 2000 og
meðal vinsælla laga hennar má nefna
Skjóttu mig, Haltu á mér hita, Drakúla
og Farin - sem var án vafa vinsælasta
lag ársins 1998. Á heimasíðu Skíta-
mórals segir: „Lagið Farin eftir Einar
Bárðarson var frumlutt í 19:20, frétta-
þætti Stöðvar 2, kvöldið fyrir skírdag
og áður en bandið vissi af var lagið
orðið það vinsælasta á íslandi. Farin
sat á toppi íslenska listans samfleytt
í 3 vikur, leiðin ffá Selfossi var orðin
greið á toppinn. Platan Nákvæmlega
leit dagsins ljós í sumarbyrjun 1998 og
varð strax mest selda plata landsins og
seinna um sumarið rauf Skítamórall
5.000 eintaka múrinn og fékk afhenta
sína fyrstu gullplötu."