Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Side 54
54 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 Suðurland DV Leikfélag Selfoss fagnar um þessar mundir 50 ára afmæli. Alls hafa verið sett upp 67 leikrit á þeim árum sem félagið hefur starfað. Verið er að sýna nýtt afmælisverk núna, en það er Með táning í tölvunni, framhald gamanleiksins Með vífið í lúkunum. DV ræddi við Guðfinnu Gunnarsdóttur, formann Leikfélagsins. SUNNLENSI LEIKLIST 150 AR " • 1 Með táning í tölvunni Verið er að sýna afmælisverk félagsins. Um er að ræða framhald gamanleiksins Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney. I • Slll dori@dv.is ■■ Guðfinna Gunnarsdottir, formaður leikfélags Selfoss Segir sýningar félagsins vinsælar á Suðurlandi. W7íl X-, 1 m.:, pm „Það var stofnað 9. janúar árið 1958 í gamla Iðnaðarmannahúsinu á Selfossi, en svo skemmtilega vill til að þar erum við með aðstöðu í dag fyrir félagið, en við köllum húsið Litla leikhúsið við Sigtún," segir Guðfinna Gunnarsdóttir, formaður Leikfélagsins á Selfossi, sem fagnar um þessar mundir 50 ára afmæli. Leikfélagið er feiki- lega öflugt og hefur sett upp 67 verkefni á þeim 50 árum sem það hefur starfað. „Þar má finna skemmtilega blöndu af íslenskum og erlendum verkum og síðustu ár höfum við frumflutt mörg verk. Tvær sýningar, Smáborgarabrúðkaup og Þuríður og Kambsránið, hafa verið valdar athyglisverðasta áhugasýning ársins, en það felur í sér að verkið er sýnt í Þjóðleikhúsinu," segir Guðfinna. Afmælissýning í gangi Uppsetningar leikfélagsins eru vinsælar á Suðurlandi og er um þessar mundir afmælisverkið, Með táning í tölvunni eftir Ray Cooney, í fullum gangi. Leikritið er framhald gamanleiksins Með vífið í lúkunum, sem fjallaði um leigubflstjóra í London sem var giftur tveimur konum, sem vissu ekki af hvor annarri. „Þetta verk gerist 18 árum síðar og enn er hann með tvö heimili, nema nú á hann sitt hvorn unglinginn, strák og stelpu, með konunum sín- um og þau hittast á netinu. Þá fer allt á hvolf þegar hann reynir að koma í veg fyrir að þau hittist, mikill misskilningur á misskilning ofan, hurðaskellir, óvænt símtöl og almenn læti." Það er Jón Stefán Kristjánsson sem bæði leikstýrir og þýðir verkið, en það hefur ekki verið flutt áður hér á íslandi. Ferðast með sýningar „Áður íýrr var miklu algengara að farið væri með sýning- ar út um allar trissur, það hefur breyst," segir Guðfinna. Leikfélagið hefur þó ferðastyfir hafið pieð leiksýning- ar. „Við fórum með sýninguna Hnerrinn, gamanleik- rit samansett úr verkum eftir Tsjekov, á leiklistar- hátíð í Litháen í íýrra og félagið hefur áður farið á viðlíka hátíðir í Færeyjum og á Irlandi." I kjölfar afmælisins var gefið út sérsakt af- mælisblað og var því dreift í öll hús á Suðurlandi. í mars mun svo leikfélagið bjóða upp á ýmis námskeið. „Það sem er athyglisvert við svona félag og sögu þess er að sjá hversu margir í samfé- laginu hér hafa tekið þátt á einn eða annan hátt í starfsemi félagsins í gegnum tíðina." Þeim sem hafa áhuga á því að sjá Með táning í tölvunni er bent á að hringja í síma 482 2787, en sýningar verða út þessa viku að minnsta kosti. Hoflandsetrið er notalegur veitingastaður í Hveragerði. Við bjóðum uppá PIZZUR og ýmsa smárétti. Boltinn og aðrir viðburðir á breiðtjaldi. Tökum vel á móti hópum stórum sem smáum. Komið við á Setrinu leggið ekki svöng í heiði. Mæðgunar Gullý og Linda Hofland eiga staðinn og reka, þarna eru konur við stjórnvöld HOFLANDSSETRIÐ Heiðmörk 58. 810 Hveragerði ■ S:483-4467 ■ www.hoflandssetrid.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.