Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2008, Síða 62
62 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008
Ættfræði DV
TIL
HAMINGJU
MEÐ
AFMÆLIÐ
AFMÆLISBARN DAGSINS
30 Ara afmæli
■ Yulia Yudinova,
Keilugranda 4, Reykjavík.
• Grzegorz Arkadiusz Dulewicz.
Haga, Reyðarfirði.
a Hildur Gottskálksdóttir,
Álfkonuhvarfí 25, Kópavogi.
u Þóra Kristín Haraldsdóttir,
Dverghömrum 44, Reykjavik.
• Þórður Sigfússon,
Holtsgötu 15, Hafnarfírði.
a Sigurbjörg Þorvaldsdóttir,
Seilugranda 9, Reykjavik.
a Renaldo Rapheal Christians,
Ashamri 75, Vestmannaeyjum.
■ Anna Lára Zoéga,
Tjarnarstfg 6, Seltjarnarnesi.
a Hólmar Þór Eðvaldsson,
Aifhólsvegi 143a, Kópavogi.
a Haraldur Jóhann Þórðarson,
Jórsölum 4, Kópavogi.
■ Ásbjörg (sabella Magnúsdóttir,
Laugavegi 45, Reykjavlk.
■ Þóra Björk Karlsdóttir,
Frostaskjóli 101, Reykjavik.
40 ÁRA AFMÆLI
■ Robert Modzelewski,
Qerðavegi 33,.Garði.
a Guðríður Snjólfsdóttir,
Laugartúni 8, Akureyri.
a Lilja Guðjónsdóttir,
Stafnesvegi 1, Sandgerði.
a Hlynur Sturla Hrollaugsson,
Hofí 1, Egilsstöðum.
■ Nína Björk Friðriksdóttir,
Grænagarði 7, Reykjanesbæ.
a Sigurlaug Ásta Sigvaldadóttir,
Unufelli 23, Reykjavfk.
a Ásta Birna Stefánsdóttir,
Vættaborgum 62, Reykjavík.
a Arna Tryggvadóttir,
Skessugili 16,Akureyri.
a Árný Hafborg Hálfdánardóttir,
Ásabraut 3, Sandgerði.
a Björn Maríus Jónasson,
Kirkjustétt 12, Reykjavfk.
a Sigríður Hrönn Sveinsdóttir,
Neðstabergi 4, Reykjavlk.
50 Ara afmæli
■ Zofia Pruszkowska,
Birkihæð 16, Garðabæ.
a Viktors Lapenko,
Helgamagrastræti 45, Akureyri.
a Páll Jóhannesson,
Drekagili 4, Akureyri.
a Ólöf Ingþórsdóttir,
Faxatúni 34, Garðabæ.
a Ólafur Pétur Hauksson,
Heiðnabergi 9, Reykjavfk.
a Sigurður Baldursson,
Blómvöllum 23, Hafnarfirði. •
a Ágúst Sigurður Hrafnsson,
Hringbraut 93, Reykjanesbæ.
■ María Jónsdóttir,
Reynihvammi 17, Kópavogi.
a Guðný Jónasdóttir,
Ásvegi 7, Breiðdalsvfk.
a Guðjón Jónsson,
Nýbýlavegi 22, Hvolsvelli.
a Gísli Hansson Wiium,
Stekkjarholti 8, Ólafsvlk.
60 ÁRA AFMÆLI
■ Jóhanna G Sigurðardóttir,
Vesturgötu 50, Reykjavlk.
a Eiður Helgi Sigurjónsson,
Völvufelli 12, Reykjavlk.
a Sigurbjörg Guðmundsdóttir,
Krossholti 9, Reykjanesbæ.
m Anna Jónsdóttir,
Háaleiti 29, Reykjanesbæ.
■ Valgerður Ólafsdóttir,
Mánagötu 1, Reykjavlk.
m Þórir Magnússon,
Birkihvammi 11a, Kópavogi.
■ Guðlaug Helga Pétursdóttir,
Miðleiti 4 Reykjavlk.
■ SvalaTómasdóttir,
Pllutúni 8, Akureyri.
70 ÁRA AFMÆLI
■ Þorsteinn Sigfússon,
Stóragerði 22, Reykjavlk.
ALBERT PÁLSS0N
TÓNLISTARMAÐUR OG MÁLARAMEISTARI
Albert Pálsson, tónlistarmaður og
málarameistari, Fannafold 50, er
fimmtugur í dag.
STARFSFERILL
Albert fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Vesturbænum. Hann var í
Melaskóla, lauk gagnfræðaprófi frá
Hagaskóla, stundaði jafnframt nám
við Tónlistarskólann í Reykjavík á
árunum 1976-1979, stundaði síðan
nám við Iðnskólann í Reykjavík og
lauk sveinsprófi í málaraiðn 1979.
Hann öðlaðist síðan meistararéttindi
nokkru síðar.
Albert starfaði Við húsamálun
frá 1979 við fyrirtæki föður sins, tók
síðan við rekstri þess 1989 og hefur
starfrækt það síðan.
Albert er hljómborðsleikari og
hefur leikið með ýmsum dægurlaga-
og danshljómsveitum íf á 1975. Hann
hefur leikið með hljómsveitinni Saga
Class sl. fimmtán ár, einkum á Hótel
Sögu en aukþess víðar.
FJÖLSKYLDA
Albert kvæntist 1986 Eddu Júlíönu
Georgsdóttur, f. 10.4. 1960, bók-
ara. Hún er dóttir Georgs Jónssonar,
bliklcsmiðs í Reykjavík, og k.h., Gyðju
-Eyjólfsdóttur húsmóður sem nú er
látin.
Börn Alberts og Eddu Júlíönu
eru Róbert Örn Albertsson, f. 22.11.
1983, málari; Albert Guðni Alberts-
son, f. 25.4.1987, öryggisvörður; Gil-
bert Daníel AJbertsson, f. 25.1. 1992,
grunnskólanemi.
Dóttir Alberts frá fyrra hjóna-
bandi er Sigurlilja Albertsdóttir, f.
16.2.1977, háskólanemi.
Bróðir Alberts var Guðmundur
Elías Pálsson, f. 24.3. 1952, d. 13.1.
1998, málarameistari og íþrótta-
kennari í Reykjavík.
JJfs
Foreldrar Alberts eru Páll H. Guð-
mundsson, f. 22.7. 1925, málara-
meistari í Reykjavík, og k.h., Gróa
Sigurlilja Guðnadóttir, f. 24.11. 1930,
kjólameistari.
ÆTT
Páll er sonur Guðmundar, sjómanns
og síðar sundlaugavarðar á Isafirði
Pálssonar, b. á Bæjum á Snæfjalla-
strönd og á Höfða í Grunnavíkur-
hreppi Halldórssonar, b. á Naut-
eyri og í Bæjum Hermannsson, b. í
Hattardalshúsum Halldórssonar, b. í
Hattardalskoti og á Stakkanesi Jóns-
sonar. Móðir Hermanns var Rann-
veig Hermannsdóttir frá Görðum í
Aðalvík. Móðir Halldórs Hermanns-
sonar var Guðrún Jónsdóttir, b. á
Marðareyri Bjarnasonar og Guðfinnu
Jónsdóttur. Móðir Páls var María Re-
bekka Kristjánsdóttir, dannebrogs-
manns og bónda, Ebeneserssonar,
b. í Innri-Hjarðardal, Guðmunds-
sonar. Móðir Kristjáns var Margrét
Bjarnadóttir frá Marðareyri. Móðir
Maríu Rebekku var Kristín Pálsdótt-
ir, b. í Arnardal, Halldórssonar og
Margrétar Guðmundsdóttur. Móðir
Guðmundar á ísafirði var Steinunn,
dóttir Jóhanns, b. á Svanshóli, Jóns-
sonar, b. í Grananesi, Níelssonar, b. á
Kleifum, Sveinssonar. Móðir Jóns var
Sesselja Jónsdóttir frá Barmi. Móð-
ir Jóhanns var Helga Jónsdóttir, b. á
Grananesi, Jónssonar og Helgu Jóns-
dóttur frá Djúpa-dal. Móðir Stein-
unnar var Guðrún Stefánsdóttir, b.
á Hrófbergi, Stefánssonar, b. á Mel-
stað, Guðmundssonar.
Móðir Stefáns Stefánssonar var
Guðrún Árnadóttir frá Hömrum í
Haukadal. Móðir Guðrúnar Stef-
ánsdóttur var Engilráð Ólafsdóttir,
b. á Brandsstöðum og á Skerðings-
stöðum, og Þorbjargar Aradóttur
frá Reykhólum.Móðir Páls málara-
meistara var Elísa G. Einarsdóttir
frá Dynjanda.
Gróa Sigurlilja er dóttir Guðna
Jóns, b. í Botni í Súgandafirði og í
Kvíanesi Þorleifssonar, b. á Norð-
ureyri í Súgandafirði Sigurðsson-
ar, bróður Valdimars, afa Einars S.
Einarssonar, fyrrv. forstjóra VISA
ísland og fyrrv. forseta Skáasam-
bands íslands, og langafa Sigurðar
Salvarssonar, fyrrv. fjölmiðamanns
og Einars Kárasonar rithöfundar.
Móðir Guðna Jóns var Gunnjóna
Einarsdóttir frá Mýrahreppi í Dýra-
firði.
Móðir Gróu Sigurlilju var Al-
bertína Jóhannesdóttir, b. í Kvía-
nesi Guðmundssonar, og Guðrún-
ar Jónsdóttur.
Albert og Edda Júlíana verða að
heiman á afmælisdaginn.
Skúli Björn Jónsson
RÁÐGJAFI OG HÖNNUÐUR
Skúli Björn fæddist f
Reykjavík og ólst þar upp.
Að loknu grunnskóla-
námi stundaði hann nám
við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti og lauk það-
an sveinsprófi í rafvirkjun
1999. Hann stundaði síðan
nám við frumgreinadeild
Tækniháskóla íslands
1999-2001 og -lauk auk
þess fyrsta ári í rafmagns-
tæknifræði frá Tæknihá-
skóla Islands 2002. Þá
stundaði hann nám við
Odense Teknikum og lauk
þaðan B.Sc.-prófi sem rafmagns-
tæknifræðingur 2004. Lokaverkefni
hans í námi var unnið fyrir Lands-
virkjun en hann hannaði fýrir hana
rafmagnshluta dælustöðvar á Búr-
fellssvæðinu.
30
Skúli Björn starfaði hjá
Eyjólfi Rósmundsyni, löggilt-
um rafverktaka, með skóla
og á sumrin frá árinu 1997
við alla almenna rafvirkjun.
Hann starfaði hjá E. Phil &
Son sumarið 2002. Hann er
nú ráðgjafi og hönnuður hjá
RTS Verkfræðistofu.
FJÖLSKYLDA
Eiginkona Skúla Björns
er Ágústa Sigurjónsdóttir, f.
30.10.1981, sjúkraþjálfari.
Sonur Skúla Björns og
Ágústu er Tryggvi Þór Skúla-
son, f. 18.6.2005.
Foreldrar Skúla Björns: Jón
Barðason, f. 28.7. 1949, kennari,
og Ragnheiður Skúladóttir, f. 21.3.
1951, d. 27.10.1981, læknir.
Skúli Björn er í útlöndum.
Sigurbaldur Kristinsson
BÍLSTJÓRI AÐ GRÖF í SKILMANNAHREPPI
Sigurbaldur fæddist
í Reykjavík en ólst upp á
Akranesi. Hann var í Barna-
skóla Akraness, stundaði
nám við Gagnfræðaskóla
Akraness og við Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akra-
nesi, og lauk þar sveins-
prófi í blikksmíði.
Sigurbaldur starfaði hjá
Arctic á Akranesi á ungl-
ingsárunum í fjögur ár,
var síðan sendibflstjóri við
Kaupfélag Borgamess á
Akranesi í tvö ár, starfaði
í flögur ár við Blikksmíöa-
verkstæði Guðmundar J. Hallgríms-
sonar á Akranesi, var við virkjun-
arfiamkvæmdir hjá Hagvirki við
Sultartanga og víðar. Hann gerði
út eigin vörubfl á Akranesi á árun-
um 1988-92, starfaði síðan í tvö ár
50
dekkjaverkstæði, var síðan
vaktmaður við Sements-
verksmiðjuna en hefur gert
út eigin vömflutningabif-
reið frá 2002.
FJÖLSKYLDA
Sambýliskona Sigurbald-
urs er Halldóra Halla Jóns-
dóttir, f. 1.12. 1956, sjúkra-
liði við geðdeild Landspítala
- Háskólasjúkrahúss.
Börn Sigurbaldurs og
Halldóm Höllu em Stella
Eyrún, f. 13.3.1995, og Sindri
Már,f. 19.12.1996.
Böm Höllu frá því áður em Guð-
ný, Jón, Hreinn og Marín.
Foreldrar Sigurbaldurs em Krist-
inn S. Karlsson, f. 30.10.1932, d. 2004,
sjómaður á Akranesi, og Stella Eyrún
Clausen, f. 9.1.1934, húsmóðir.
Ásta Birna Stefánsdóttir er fertug í dag:
Skrítin tilfinninq
„Þetta er ferlega skrítin tilfinning því manni
finnst alltaf að maður sé svo ungur. Ég hef hugs-
að svolítið um þetta frá áramótum og mér fannst
svolítið erfitt að kveðja gamla árið," segir Ásta
Birna Stefánsdóttir sem er fertug í dag. Hún seg-
ist fyrst og fremst ætla að láta sér líða vel á af-
mælisdaginn. „Ég ætla með manninum mínum
í sumarbústaðinn okkar. Krakkarnir verða bara
skildir eftir hjá ömmu og afa. Svo verð ég með
smá veislu heima á föstudaginn," segir Ásta en
hún býr í höfuðborginni.
Að sögn Ástu varð maðurinn hennar fertugur
á síðasta ári. „Það er akkúrat hálft ár á milli okk-
ar. Hann gat því aðeins miðlað af reynslu sinni
en ég held að honum hafi ekki fundist þetta
jafnerfitt og mér," segir Ásta og hlær.
Þegar Ásta varð þrítug segist hún hafa farið
út að borða með vinkonum sínum. Hana rekur
ekki minni til þess að það hafi verið jafnskrítin
tímamót og þessi. „Mér fannst það ekkert erfitt,
að minnsta kosti ekki jafnmikið sjokk og þetta,"
segir afmælisbarnið og skellihlær. „En ég er ung
í anda og dreif mig í að koma með eitt lítið barn
svo ég fýndi ekki jafnmikið fyrir þessu," segir
Ásta og hlær enn.
1wi
Ásta Birna Stefánsdóttir Ætlar að verja afmælis-
deginum uppi í sumarbústað með bóndanum.