Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
Feögarnir Daníel Örn Svavarsson og Svavar Guðnason fóru til Danmerkur til þess að sækja systur og
dóttur sína til móður hennar sem þeir segja vera i mikilli óreglu. Daninn Miller Jensen reyndi að stöðva
þá en þá lentu þeir í handalögmálum. Málið komst í hámæli í dönskum fjölmiðlum en þar var sagt að feðg-
arnir hafi lamið hann með járnröri.
FEÐGAR REYNDU
AÐ BJARGA BARNI
VALUR GRETTISSON
bladamaður skriíar;
„Við ætluðum að sækja systur
mína," segir Daníel örn Svavars-
son sem fór ásamt föður sínum,
Svavari Guðnasyni, til Danmerk-
ur um helgina en þeir ætluðu að
sækja Helgu Völu Svavarsdóttur
til móður hennar, Elsu Jónsdóttur.
Hún er ekki með forsjá yfir barninu
heldur systir hennar og eiginmað-
ur. Feðgarnir fóru £ umboði þeirra
til að sækja stúlkuna en sú heim-
sókn endaði með ósköpum. Frá því
var sagt í dönskum fjölmiðlum og
var því haldið fram að þeir feðgar
hefðu ferðast 2.500 kílómetra til
þess eins að lemja Miller Jensen.
Málið er í raun harðvítug forræðis-
deila en feðgarnir segja Elsu í mik-
illi óreglu. f viðtali við DV segist
Elsa ekki vera í óreglu og ekld held-
ur maðurinn sem hún býr hjá. Hún
játar þó að hann neiti Contalgins
vegna verkja og reyki kannabis-
efni að staðaldri. Hann geri það þó
aldrei inni í húsinu.
Úr klóm óreglunnar
Það var um síðustu helgi sem
feðgarnir Svavar og Daníel fóru
til smábæjarins Langebæk í Dan-
mörku. Þar býr barnsmóðir Svavars
og móðir Daníels. Hún er núna með
hina sjö ára Helgu Völu en afi stúlk-
unnar fór með hana til mömmu
sinnar á síðasta ári. Hún er ekki
með forsjá yfir barninu, það hef-
ur systir hennar hins vegar. Ástæð-
an að sögn feðganna er sú að hún
er í mikilli óreglu. Móðir stelpunn-
ar, Elsa, vill ekld skila stelpunni og
vill meina að hún hafi aldrei skrifað
undir neina pappíra þess eðlis að
hún hafi afsalað sér forsjá barnsins
til átján ára aldurs. Feðgarnir hafa
undir höndum skjöl sem heimiluðu
þeim að sækja stúlkuna og koma
með hana til Islands.
fAGICAV TATTÖC
Vopnaður vatnsmæli
„Þegar við komum til mömmu
byrjuðu hún og maðurinn henn-
ar að öskra á okkur og reka oklcur
í burtu," segir Daníel, son- ur
Elsu, um aðstæður þegar
þeir komu heim til henn-
ar og mannsins sem hún
býr hjá, Miilers Jensen. Að
sögn Svavars, föður stúlk-
unnar, skelltu þau
hurðinni en Daníel
tókst að setja
fótinn á milli
stafs og hurð-
ar. Úr því urðu átök
sem enduðu fyrir utan húsið.
„Við slógumst á flötinni fyrir
utan húsið hjá þeim þegar Miller
gaf mér olnbogaskot," segir Daní-
el en þá ræðst hann að Miller með
vatnsmæli sem er lítið járnstykki til
þess að mæla vatnsmagn í grasinu.
Sjálfur segist Daníel aldrei hafa
beitt vopninu á Miller, heldur hafi
hann dottið í jörðina þar sem hann
var mjög drukkinn.
Feðgar handteknir
Eftir nokkra stund kom lögreglan
á svæðið. Feðgarnir reyndu að sýna
Feðgar í forræðisdeilu Feðgarnir Daníel Örn
Svavarsson og Svavar Guðnason fóru til Danmerkur til
þess að frelsa sjö ára stúlku úr óreglu móður hennar.
henni skjölin sem þeir
höfðu undir höndum um
að þeim bæri að koma með stúlk-
una aftur heim til Islands. Engu að
síður voru þeir báðir handteknir
vegna málsins. Máttu þeir dúsa í
fangelsi í tæpan sólarhring áður
en danska lögreglan útvegaði túlk.
Þá voru þeir yfirheyrðir íýrst. Þeg-
ar málsatvik voru komin á hreint
ákvað lögreglan að sleppa þeim.
Ekki var krafist gæsluvarðhalds eða
farbanns.
„Martin Jensen, lögregluþjónn,
var mjög vinalegur
þegar þeir leyfðu
okkur svo loks að fara,"
svara þeir aðspurðir hvemig viðmót
lögreglunnar hafi verið þegar þeim
var sleppt.
Sjokkerandi afleiðingar
Eftir að feðgunum var sleppt
sögðu danskir fjölmiðlar frá því að
þeir feðgar hefðu ferðast 2.500 kíló-
metra til þess að lemja Miller Jensen.
Það reyndist ekld réttendavilduþeir
HelguVölutilbaka.
,Við vorum alveg sjokkerað-
ir vegna afleið-
inganna. Okkur
óraði ekki einu sinni fyrir fjölmiðla-
umfjölluninni," segir Svavar um mál-
ið en hann er löngu skilinn við Elsu
en í DV var ranghermt að þau væru
nýskilin.
Feðgamir segjast hafa reynt að ná
stúlkunni af móðir hennar því barnið
væri ekki í heilbrigðu umhverfi:
„Hún hringdi í mig tvisvar, einu sinni
var hún ein í einhverju partíi. Hún
var grátandi og vildi komast heim,"
segir Daníel, bróðir stúlkunnar, sem
sjálfur ólst upp f óreglu hjá móður
sinni. Nú er svo komið að þeir feðgar
em f sambandi við lögfræðing í
„Við tókumst á á flötinni
fyrir utan húsið hjá þeim þegar
Miller gafmér olnbogaskot."
Danmörku um að fá Helgu Völu
aftur til fslands.
Allir drekka í Danmörku
„Þeir höfðu ekkert leyfi til þess
að koma hingað," segir Elsa Jóns-
dóttir, móðir Helgu Völu. Hún seg-
ir dóttur sína ekki hafa verið heima
þegar þeir komu og bætir við: „Guði
sé lof."
Hún segir það ekki rétt að hún sé
í óreglu en bendir samt blaðamanni
á að hún sé á ansi sterkum lyfjum á
meðan samtalið stendur til þess að
róa taugarnar. Áflogin á milli Millers
og feðganna hafi hrist mikið upp í
henni.
„Það er ekki rétt að ég sé
drykkjurútur og í óreglu. Ég meina,
það drekka allir bjór í Danmörku,"
segir Elsa.
Kærastinn á Contalgini
Aðspurð hvort Miller reyki
kannabis á heimilinu segir hún
hann gera það, en aldrei inni í
húsinu. Hún bendir á að hann sé
„pensjónisti," vegna slyss sem hann
lenti í. Þá fótbrotnaði hann á báðum
fótum og hryggurinn brotnaði.
„Hann var f átta mánuði á spítala
og tekur Contalgin-töflur, þetta er
þvílfkur sársauki," segir Erla en sjálf
segir hún Miller ekki vera kærasta
sinn. Hann leyfi henni að búa þarna
án þess að borga leigu. Hún segist
ekki hafa efni á að borga hana. Aftur
á móti væsi ekld um Helgu Völu að
hennar sögn.
„Ég hef margspurt hana og hún
vill ekki fara til Islands," segir Elsa.
Skrifaði ekki undir neitt
Þegar Elsa er innt eftir því hvort
hún hyggist koma með stelpuna
til íslands aftur segir hún það ekld
koma til greina. Hún segist ekki
hafa skrifað undir neitt þess eðlis að
systir hennar og eiginmaður fái að
hafa forræði yfir baminu til átján ára
aldurs. Þá hefur hún haft samband
við þrjá lögfræðinga en enginn vill
taka við málinu að hennar sögn.
Aðspurð hvers vegna þeir vilji það
ekki segir hún: „Þeir segja að ég
standi mig ekld og svoleiðis.
Elsa hyggst ná sér í lögfræðing
og vill að íslenska ríkið borgi allan
kosmað vegna hans. Hún segist ekki
sleppa hendinni af stúlkunni þrátt
fyrir að hún hafi ekki forræði.