Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008
Sport PV
Carlos Tevez kom af varamannabekk Manchester United og skoraði jöfnunarmark liðs-
ins gegn Lyon. Markið gæti reynst gulls ígildi. Arsenal og AC Milan gerðu einnig jafntefli.
MEISTARAD. EVRÓPU
Lyon - Man. United 1-1
1-0 Benzema (54.), 1-1 Tevez (87.)
Arsenal - AC Milan 0-0
Celtlc - Barcelona 2-2
1- 0 Hesselink(16.), 1-1 Messi (18.),
2- 1 Robson (38.), 2-2 Henry (52.), 2-3
Messi (80.)
Fenerbache - Sevilla 3-2
1 -0 Kezman (17.), 1-1 Edu (sm 23.),
2-1 Lugano (57.), 2-2 Escude (66.), 3-2
Senturk (87.)
ICE EXPRESS. KVK
UMFG - Keflavík 101-106
Haukar-Valur 61-67
Stig Hauka: Kristrún Sigurjónsdóttir
24, Kiera Hardy 21, Unnur Jónsdót-
tir 7, Bára Hálfdánardóttir 4,Telma
Fjalarsdóttir 3, Ragna Brynjarsdóttir
2.
Stig Vals: Molly Peterman 21, Þórunn
Bjarnadóttir 15,Tinna Sigmundsdót-
tir 10, Signý Hermannsdóttir 9, Hafdís
Helgadóttir 7, Lovísa Guðmundsdót-
tir 5.
KR - Fjölnir 74-64
Staðan
Lið L U T Skor St
1. Keflavík 20 16 4 1798:1499 32
2. UMFG 21 15 61721:1563 30
3.KR 19 14 5 1542:1389 28
4. Haukar 20 12 81587:1588 24
5. Valur 20 9 11 1426:1510 18
6. Hamar 20 3 17 1356:1533 6
7. Fjölnir 20 1 19 1275:1623 2
Bent burt í sumar
Verstu kaup ensku úrvalsdeildarinnar (ár
eru vafalítið kaupTottenham á Darren
Bent Hið fáránlega verð sem nam yfir
tveimur milljörðum króna skilaði
nákvæmlega engu þv( Bent meiddist
snemma og hefurekki leikið mikið.
Hann átti ekki upp á pallborðið hjá
fráfarandi þjálfara, Martin Jol, og
núverandi þjálfari, Juande Ramos, sér
litla ástæðu til að nota drenginn enda
aðrir menn (
betra formi.
Stjómarmenn
Tottenham vilja
eflaust reyna að
vinna sem mest
af peningunum
til baka og hafa
settverðmiðann
áBent(1,6
milljarða króna.
Talið er að West Ham, Aston Villa og
Newcastle muni berjast um leikmanninn
í sumar.
Sigurinn á Arsanal heiðraði
minninguna
Leikmenn Manchester United fóru flatt á
því að heiðra minningu leikmannanna
sem létust (flugslysinu (Munchen þegar
þeirtöpuðu leiknum gegn grönnunum í
Manchester City. Gamlir leikmenn
Manchester United og stjórnarmenn
hafa hins vegar þakkað liðinu fyrir að
rúlla upp Arsenal (bikarnum í 16 liða
úrslitum. Þeir segja að sá leikur og þau
úrslit hafi verið það sem heiðraði
minningu allra sem urðu fyrir
harmleiknum í Munchen árið 1958.
Manchester United sigraði þá Arsenal 4-
0 með tveimur mörkum frá Darren
Fletcherog sitt hvoru markinu frá
Rooneyog Nani.
Jamos æfir hugann fyrir laiki
Sú var tíðin að David James,
markvöröur Portsmouth, var þekktur
fyrir lítið annað en heimskuleg mistök.
Upp á slðkastið hefur hann samt verið
hreint stórkostlegur (markinu og gengið
í endumýjun Kfdaga. Astæðu þess segir
James vera nýjar hugaræfmgar sínar.„Ég
geri þær á hótelinu fýrir leiki, í rútunni á
leiðinni á völlinn og (leiknum sjálfum. Ég
ætla samt ekki að
segja neinum
hvað það ersem
ég geri," segir
James. Þessa
æfingarvirðast
hafa virkað full
komlega fýrir
James sem hefur
sýnt snilli sína
slðustu vikur. (
dejldarleikgegn Bolton (síðustu umferð
var hann ástæða þess að Portsmouth
hafði sigur (leiknum þar sem hann varði
urmul dauðafæra og þar á meðal gott
skot frá Grétari Rafni Steinssyni.
c
BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON
bladamadui skrifai: btmni^dv.is
Ryan Giggs spilaði sinn 100. Meist-
aradeildarleik fyrir Manchester
United sem mætti Lyon í Frakk-
landi. Ronaldo, Scholes og Hargra-
ves komu einnig inn á en þeir voru
ekki með á móti Arsenal um síð-
ustu helgi. Tevez var á bekknum en
Ferguson stillti upp 5 manna miðju.
Heimamenn byrjuðu með stór-
sókn og tóku nærri forystuna þeg-
ar skot Sydneys Govou var varið.
Skömmu síðar var Rio Ferdinand
heppinn að setja ekki boltann í sitt
eigið net en boltinn rúllaði hægt en
örugglega framhjá. Wayne Roon-
ey gerði síðan vel þegar hann slapp
einn í gegn en Gregory Coupet kom
út á hárréttum tíma og varði vel. 0-0
í tíðindalitlum fyrri hálfleik.
Gestirnir byrjuðu betur í síðari
hálfleik en það var Karem Benz-
ema sem skoraði fyrsta markið með
góðu skoti. Hristi af sér varnarmenn
Manchester-liðsins og skaut óverj-
andi fyrir Edwin van der Saar. Lít-
ið gekk hjá Manchester United fyrir
framan markið, Tevez var hent inn
á og hann setti nýtt líf í Manchest-
er. Þremur mínútum fyrir leikslok
fékk Nani boltann, sendi fallega
sendingu inn þar sem klafs í teign-
um orsakaði að boltinn hrökk til Te-
vez sem skoraði. Markið gæti reynst
Þrír leikir fóru fram í Iceland
Express-deild kvenna í körfubolta
í gærkvöldi. Mikil dramatík var í
Grindavík þar sem heimastúlkur
töpuðu í framlengingu fyrir toppliði
Keflavíkur. Valur náði að sigra Hauka
en sigurinn var ekki nægur til að
koma þeim úrslitakeppnina og þá
unnu KR-stúlkur tíu stiga skyldusigur
á Fjölni, 74-64.
TeKesha Watson virtist hafa tryggt
Keflavík sigurinn í Röstinni í Grindavík
í gær þegar hún skoraði góða körfu
með aðeins sex sekúndur eftir af
klukkunni. Grindavík tók þá leikhlé
og eftír það brunaði leikstjórnandinn
Joanna Skiba upp að körfunni og kom
leiknum í framlengingu, 89-89, með
góðu sniðskotí.
Það var reynsluboltinn Birna
Valgarðsdóttír hjá Keflavík sem átti
mikilvægustutilþrifleiksins.ístöðunni
gulls ígildi því mark á útivelli gildir
jú tvöfalt.
(talskur varnarsigur
Arsene Wenger setti þá Emm-
anuel Adebayor og Mathieu Flamini
aftur í byrjunarliðið en þeir voru á
bekknum í 4-0 tapi liðsins í bikarn-
um. Pato byrjaði hjá AC Milan í sín-
um fyrsta Meistaradeildarleik en
þetta var 100. Meistaradeildarleikur
Arsenal.
Heimamenn urðu fyrir áfalli
strax á 7. mínútu þegar Kolo Toure
meiddist og þurfti að yfirgefa völl-
inn. Lítið var um opin færi og það
helsta sem gladdi augað var ótrúlegt
kast Jens Lehman á Adebayor. Rúm-
lega 40 metra kast sem leikstjórn-
andi í ameríska fótboltanum yrði
stoltur af. Adebayor klúðraði þó fær-
101-102 tók hún sóknarfrákast og
fór upp hinum megin, skoraði sjálf
og kom Keflavík í 101-104 og aðeins
inu. 0-0 í hálfleik þar sem enn á ný
náði Arsenal ekki að nýta stöðuyfir-
burði sína.
Arsenal byrjaði síðari hálfleikinn
einnig betur þar sem boltinn gekk
hraðar á milli manna en Milan-vörn-
in stóð af sér storminn. Voru rólegir
og lokuðu svæðunum vel. Adebayor
fékk síðan dauða, dauða, dauða-
færi undir lokin en skallaði einhvern
veginn í slá. „Hvernig fór hann að
þessu?" sagði Hörður Magnússon
sem lýsti leiknum á Sýn en Hörður
hefði að öllum líkindum sett bolt-
ann í netið. 0-0 endaði leikurinn þar
sem vörn AC Milan stóð uppi sem
sigurvegari
Eiður á bekknum allan tímann
Eiður Smári sat allan tímann á
varamannabekk Barcelona sem lék
örfáar sekúndur eftir. Skiba gerði aðra
tilraun til sniðskots en geigaði í næstu
sókn Grindavíkur og leikurinn búinn.
gegn Celtíc í Skotlandi. Heimamenn
byrjuðu bemr og komust yflr eftir
stundarfjórðung. Jan Vennegoor Of
Hesselink skallaði í netið eftir frá-
bæra fyrirgjöf. Gestírnir voru ekki
lengi að jafna sig og skoruðu nán-
ast í næstu sókn. Lio Messi tók létt-
an þríhyrning við Deco og skoraði
fallegt mark.
Þegar rúmur hálftími var lið-
inn fékk Thierry Henry sannkallað
dauðafæri en skautyfir. Celtic-menn
brunuðu í sókn og Barry Robson
skoraði eftir fallegan undirbúning
McGeadys. Þetta var fýrsti Meistara-
deildarleikur Robsons. Victor Vald-
ez, markvörður Barca, leit ekki vel út
í markinu.
Henry var ákveðin í því að kvitta
fýrir færið sem hann klikkaði úr og
skoraði mark þegar 52 mínútur voru
liðnar. Fékk sendingu frá Ronaldin-
ho eftir að Gary Caldwell hafði misst
boltann klaufalega.
Mikill vill meira sagði einhver og
Barca sóttist eftir sigri. Eto'o gerði
vel og losaði um Messi. Téður Cald-
well ætlaði að þruma í burtu en bolt-
inn fór í samherja og þaðan til Messis
sem skoraði 3-2 sem urðu lokatölur.
Fenerbahce og Sevilla mættust í
Tyrklandi og var það Mateja Kezman
sem kom Fenerbahce yfir en Luis
Edu Dracena skoraði síðan sjálfs-
mark og jafnaði leikinn. Diego Luga-
no kom heimamönnum aftur yfir en
Julien Escude jafnaði þegar hálftími
var eftir og þar við sat.
Grindavíkur-stúlkur sendu Keflavík
á vítalínuna þar sem úrslitín réðust,
101-106, í mögnuðum leik.
Valsstúlkur gerðu góða ferð á
Ásvelli og lögðu þar heimastúlkur í
Haukum með sex stíga mun, 67-61.
Haukar voru yfir í hálfleik með sjö
stigum, 36-29, en seinni hálfleikurinn
var Vals sem vann leildnn sanngjamt
á endanum. Kristrún Sigurjónsdóttír
var stígahæst hjá heimastúlkum
með tuttugu og fjögur stíg en Molly
Peterman var öflug að vanda í
Valsliðinu og skoraði tuttugu og eitt
stig.
Sigur Vals var þó ekki nægilega
stór en þær þuftu að vinna með meiri
mun ætluðu þær sér að komast í
úrslitakeppnina. Þrátt fýrir tapið eru
Hauka-stúlkur því búnar að tryggja
sér sæti í úrslitakeppninni en fjögur
efstu liðin fara í hana.
FALLEGT MARK JanVennegoor
of Hesselink kom Celtic yfir.
Keflavík er áfram á toppi Iceland Express-deildar kvenna í körfubolta:
Haukar í úrslitakeppnina þrátt fyrir tap
Ætlarðu aö setja eins og eina körfu?
Þjálfarinn Jóhannes Eðvaldsson leiðbeinir
TeKeshu Watson.
J