Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Blaðsíða 29
DV Fálkið ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 29 GUÐNI OG BJÖRGVIN MÆTAST Á SELFOSSI W GAFU Þeir Guðni Ágústsson og Björgvin G. Sigurðsson mæt- ast í spurningakeppni á stefnumóti DV á Suðurlandi, næstkomandi föstudag. Hafa þeir skipað í sitthvort liðið og segjast sigurvissir. Eyþór Arnalds verður aðstoðar- dómari og ritstjórar DV verða á svæðinu. „Ég geng óragur í þessa keppni," segir Guðni Ág- ústsson alþingismaður sem keppir gegn Björgvini G. Sigurðssyni í spumingakeppni á Stefriumóti DV á Suðurlandi næstkomandi föstudag. Guðni hefur skipað í glæsilegt lið, en í því eru þau Ólaf- ur Helgi Kjartansson sýslumaður og Elsa Ingjalds- dóttir ffamkvæmdastjóri. „Ólafur er margreyndur garpur í spurningakeppnum og er auðvitað sýslu- maður Árnessýslu, þannig að andstæðingum ber að vara sig," segir Guðni, en það þýðir víst lítið að deila við dómarann. „Þau vita allt milli himins og jarðar og ég veit það sem á vantar." Lið Björgvins G. er einnig hlaðið stór- skotaliði á sviði spurn- ingakeppna, en þar sitja Guðmundur Karl Sigur- dórsson ritstjóri Sunn- lenska og Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitar- stóri Rangárþings. Er Björgvin jafiisigurviss og sveitungi hans? „Við erum með úrvalslið, sem við teljum að sé algjörlega ósigrandi. Samseming lið- isins er með þeim hætti að það þarf ekkert minna en dómaraskandal til að við töpum," segir Björgvin og er ekk- ert að spara stóru orðin. Keppn- in fer fram í Hvítahúsinu, sem stend- ur við að- algötuna á Selfossi. Dómari kvölds- ins verður Elín Ragn- arsdóttir, ffamkvæmdastjóri Birtings, en aðstoðardómari verður enginn annar en Eyþór Arnalds. „Við virð- um andstæðinga okkar og vitum að þetta er mjög alvarleg keppni, munum við leggja mikla vinnu í undirbúning því við vitum að þetta er harðgáfað lið og harðsnúið," segir Guðni Ágústsson að lokum og dregur úr yfirlýsingunum. Stefnumót DV hafa verið haldin úti um allt land við góðar unditektir. Nú er komið að Suðurlandi, en stefnumótið átti upphaflega að vera fyrir tveimur vikum, enffestaðistvegnaveð- urs. Húsið opnar átta og er búist við því að dagskrá- in taki ekki meira en tvær klukkustundir. dori@dv.is Bjorgvin G. Sigurösson Segir að aðeins dómaraskandall geti aftrað liði sínu frá því að vinna. Guðni Ágústsson Segir lið sitt hafa varið gríðarlegum tíma ( undirbúning. Hljómsveitirnar Ninjaflsh, Klakksvík og Irony of apathy halda uppi stuðinu á hinum margffæga Fimmrndagsforleik Hins hússins þar sem ungar og efnilegar hljómsveitir spreyta sig. Meðlimir Ninjafish eru að koma saman aftur eftir hlé frá því í haust og mæta því hungraðir til leiks. Klakksvík er ung og efnileg sveit frá Borgamesi sem er að stíga sín fyrstu skref en Irony of apathy er að koma fram opinberlega í sitt allra fyrsta skipti. Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og hvetur Hitt húsið fólk til að mæta og hlúa að grasrótinni í íslenskri tónlist. Útgáfufyrirtækið 12 Tónar stendur þessa dagana fýrir tónleikaferð um Þýskaland sem ber heitið Introd- ucing Iceland 12 Tónar and Cargo. Þeir listamenn sem troða upp í tón- leikaferðinni eru Gavin Portland, Pémr Ben og Jakobínarína en þetta mun vera þeirra síðasta tónleika- ferð. Sveitin lagði nýlega upp laup- ana eins og ffægt er orðið og mun því væntanlega syngja sitt síðasta í Þýskalandi. Þó nokkrum tónleikum er þegar lokið en sveitirnar spila á allt að tvennum tónleikum á dag. A ARAR I BAT: „X-ið verður áfram í loftinu," segir Ágúst Héðinsson, yfirmaður útvarpssviðs 365, en vangaveltur hafa verið uppi um framtíð út- varpsstöðvarinnar í kjölfar slakrar útkomu í nýlegri útvarpskönnun Capacent Gallup. Þar mældist X-ið 977 með 0,9% hlustun á landsvísu og 1,5% hjá fólki á aldrinum 12 til 49 ára. Ágúst segir útkomuna vera vonbrigði en stöðin haldi þó áffam í nokkuð óbreyttri mynd. „Þessi útkoma er vissulega smá vonbrigði en X-ið er þó með fína hlustun í sínum markhópi," en hann segir Ágúst aðallega vera karlmenn 34 ára og yngri á höfuðborgarsvæðinu. Ágúst segir að ráðist verði í smávægilegar breytingar á stöðinni á næstunni en hún muni þó að mestu halda sinni fyrri mynd. „Við komum til með að færa Valtý Bjöm til og mun þáttur hans byrj a klukkan 11 á næstunni í staðinn fýrir 12. Fyrir utan það eru bara svona fíniseringar í gangi. Að því undanskildu höldum við ótrauð áfram," segir Ágúst en könnunin var ekki bara neikvæð fýrir útvarpssvið 365 því Bylgjan var með langmesta hlustun í markhópi sínum, 12 til 49 ára. asgeir@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.