Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Blaðsíða 17
PV Sport
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 17
Útlit er fyrir niðurskurð til íþróttamannvirkja samkvæmt nýrri þriggja ára fjárhags-
áætlun borgarstjórnar.
HÆGAGANGUR?
Útlit er fyrir niðurskurð í
fjárhagsáætlun borgarstjórnartil
íþróttamannvirkja næstu þrjú árin.
~P
VIÐAR GUÐJÓNSSON
blaðamadur skrifar: vidartfpd/.is
Iþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu
eru uggandi í kjölfar nýrrar fjárhags-
áætlunar borgaryfirvalda sem nýlega
var samþykkt á borgarráðsfundi. Þar
kemur fram að umtalsvert lægri upp-
hæðir eru ætíaðar til uppbyggingar
íþróttamannvirkja í borginni en var í
áætlunum fýrir ári.
Á þriggja ára áætíun fyrir árin
2009-2011 er gert ráð fýrir um 1.200-
1.300 milljónum króna á ári til fram-
kvæmda við íþróttamannvirki en það
er nokkuð frá þeim fjármunum sem
ætluð voru þessum málaflokki í upp-
hafi kjörtímabils.
Á þriggja ára fjárhagsáætíun Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
fýrir árin 2008-2010 kemur fram að á
þeim tíma hafi borgaryfirvöld ætlað
um 1.730 milljónir til ffamkvæmda
á nýjum íþróttamannvirkjum árið
2009 og um 1.650 milljónir árið 2010.
Ef marka má þessar tölur er hægt að
gera ráð fýrir tæpum 800 milljóna
króna niðurskurði til íþróttamann-
virkja á næstu tveimur árum.
Dagur B. Eggertsson borgarfull-
trúi telur að um milljarð króna vanti
upp á frá fýrri fjárhagsáætlunum og
uppbygging á íþróttamannvirkjum í
Reykjavík sé í uppnámi. Bolli Thor-
odssen, formaður ÍTR, segir nýja
borgarstjórn standa fýrir ábyrgri fjár-
málastjórn.
Uggur er meðal forsvarsmanna
þeirra íþróttafélaga sem hvað mest
eru stórhuga í framkvæmdum á
íþróttamannvirkjum. Fjölnir Fram,
Fylkir {R og KR eru meðal þeirra fé-
laga sem stefna í framkvæmdir á fé-
lagssvæðum sínum á næstu árum.
Áfall ef ekki verður
staðið við loforð
Knattspyrnufélagið Fram stefnir
að flutningi úr Safamýri í Úlfarsfell
á næstu árum og fýrirhuguð er upp-
bygging félagsaðstöðu, íþróttahúss
og knattspyrnuvalla.
Steinar Guðgeirsson, formaður
Fram, segir félagið bíða eftir skýrum
svörum fr á borgaryfirvöldum en sam-
kvæmt tímaáætlun var gert ráð fýrir
því að uppbyggingu á svæði félags-
ins myndi ljúka árið 2011. „Við köll-
um eftir skýrum svörum frá borgar-
yfirvöldum því okkur hefur ekki verið
tilkynnt um að til standi að hægja á
framkvæmdum," segir Steinar.
Ragnar Þór Guðgeirsson, forráða-
maður Fjölnis, tekur í sama streng.
„Það var búið að setja inn á plön
ákveðna fjármuni til framkvæmda."
Umtalsverðum fjárhæðum var
ætlað til byggingar nýs íþróttahúss
hjá ÍR í Breiðholti og Hörður Heið-
ar Guðbjörnsson, ffamkvæmdastjóri
aðalstjórnar félagsins, segir félaginu
hafa verið lofað miklum fjármunum.
„Ég trúi því og treysti að við munum
fá þá fjármuni sem okkur var lofað á
þessu kjörtímabili. Ég trúi því ekki að
borgaryfirvöld ætíi að taka fjármuni
sem ætiað er til forvarna og uppbygg-
ingar hér í Breiðholti. Þetta er ekki
síður spurning um forvarnir," segir
Hörður.
Að sögn Arnars Hafsteinsson-
ar, framkvæmdastjóra Fylkis, hafði
borgarstjórnarflokkur Vilhjálms Vil-
hjálmssonar séð að þeir fjármunir
sem Fylki hafði áður verið heitið, um
300 milljónir króna, væru ekki nægir.
„Það var talað um að hækka styrkinn
upp í ríflega 800 milljónir. Vilhjálmur
Vilhjálmsson og Björn Ingi Hrafns-
son lýstu því svo yfir á herrakvöldi
Fylkis í janúar 2007 að félagið yrði
styrkt. Það eru nú ekki nema 800 vitni
að því. Þegar nýr meirihluti Dags B.
Eggertssonar tók svo við virtumst
við vera enn í framtíðaráformunum
og allt virkaði mjög jákvætt. Það yrði
því mikið áfall fyrir okkur verði þetta
skert svona til muna," sagði Örn við
DV í gær.
Ósanngjarnt að segja uppbygg-
ingu í uppnámi
Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi
borgastjóri, segir að samkvæmt nú-
verandi fjárhagsáætlun vanti í það
minnsta milljarð króna til að uppfýlla
þann loforðalista sem ætiaður var til
uppbyggingar íþróttamannvirkja í
Reykjavaík. „ Ég er búinn að vera að
taka við símtölum frá forviða forráða-
mönnum íþróttafélaga og ég tel ljóst
að framkvæmdir Fram, Fylkis, KR,
fR og að einhverju leyti Fjölnis séu í
uppnámi,“ segir Dagur.
Bolli Thorodssen, formaður
Iþrótta og tómstundaráðráðs Reykja-
víkur, segir vinnu að þessum málum
standa yfir en mjög margt er óunn-
ið í skipulagsvinnu og samningum
við félögin. Málin munu skýrast eft-
ir því sem líður á árið. „Lykilatriði er
að við ætlum að ljúka vinnu og gerð
samninga við uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja. Þessi atriði liggja fyr-
ir,“ segir Bolli. Hann viðurkenn-
ir að lægri upphæð sé sett í þennan
málaflokk en áður var gert ráð fýrir
1.200-1.300 milljónum á ári næstu
þrjú árin. „Þessa upphæð erum við
tilbúnir til skuldbinda okkur til að
setja í þennan málaflokk á þessari
stundu. Mér finnst því ósanngjamt
hjá Degi að segja að þessi mál séu í
uppnámi. Ný borgarstjórn vill ábyrga
fjármálastjóm. Hún er lykilatriði í
stefriu núverandi meirihluta og miða
þarf útgjöld borgarinnar við áætíaðar
ffamtíðartekjur" segir Bolli.
Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real mörðu eins marks sigur í gær:
hársbreidd frá siqri
Gummersbach
Ólafur Stefánsson skoraði tvö
mörk fýrir spænska liðið Ciudad
Real sem vann íslendingaliðið
Gummersbach með einu marki, 28-
27, í meistaradeildinni í handbolta
í gærkvöldi. Sveinar Alfreðs Gísla-
sonar í Gummersbach spiluðu vel
og gáfu Ciudad-liðinu ekkert eftir
sem er af mörgum talið það besta
í heimi. Guðjón Valur Sigurðsson
skoraði sex mörk, þar af fjögur af
vítalínunni, fyrir Gummersbach og
Róbert Gunnarsson skoraði fjögur.
Þjóðverjarnir voru yfir í hálfleik
með einu marki, 15-14, en flestallt
gekk upp í sóknarleiknum og nýt-
ingin hjá Gummersbach með af-
brigðum góð. Serbneska stórskytt-
an Momir Ilic sem lítið hefur getað
undanfarið var meira að segja næst-
um því með hundrað prósent nýt-
ingu, nokkuð sem sést sjaldan.
Ciudad komst þremur mörk-
um yfir eftir tíu mínútur í seinni
hálfleik, 18-21, og virtist líklegt til
að klára leikinn. Gummersbach-
menn gáfu hins vegar ekkert eftir
og jöfnuðu leikinn aftur í 21-21. Þá
lét Sverre Jacobsson reka sig út af
við litia hrifningu áhorfenda í Köln-
höllinni sem voru ekki sáttir við
dómara leiksins.
Ciudad fékk hvert tækifærið á
fætur öðru til að bæta við mörkum
en ungverski landsliðsmarkvörður-
inn, Nándor Fazekas, sem var kom-
inn í markið varði gjörsamlega allt
sem á markið kom. Fazekas er ekki
Islendingum ókunnugur því honum
hefur ekki leiðst í gegnum tíðina að
verja frá íslenska landsliðinu.
Jafnt var á öllum tölum eftir þetta
og staðan 27-27 þegar örskammt var
til leiksloka. Því miður fyrir Alfreð og
félaga en til lukku fýrir Ólaf Stefáns-
son var það spænska landsliðsskytt-
an Alberto Entrerrios sem skoraði
síðasta mark leiksins og tryggði Ciu-
dad sigur. Spánverjarnir eru því sem
fyrr á toppi riðilsins með sex stig en
Gummersbach er með tvö stig.
tomas@dv.is
Skemmdarverk á æfingasvæði
Liverpool
Á meðan leikmenn Liverpool undir-
bjuggu sig fyrir meistaradeildarslaginn
gegn Inter voru nokkrir stuðningsmenn
þeirra uppteknir
viðannað. Reiðir
áhangendur
liðsins voru ekki
búniraðfyrirgefa
Rafa Benítez
fyrir bikartapið
um helgina gegn
Barnsley. Þeir
tóku sig til og
spreyjuðu vegg á
æfingasvæði félagsins með fukyrðum út
í liðið og leikmenn. Ekki var þó
stafsetning drengjanna sem best. Dæmi
þess sem ritað var á borð við„Spilaðu
alltaf þfnu besta liði, Rafa",„Þið eruð ekki
nógu góðirtil að spila fyrir Liverpool" og
„Kewell og Riise eru drasl".
RólegurAlves
Framherjanum Afonso Alves hefur ekki
tekist að skora í þeim tveimur leikjum
sem hann hefur leikið með Middles-
brough síðan
hanngekkíraðir
liðsins. Stewart
Downingvirðist
vera orðinn
pabbinn (
hópnum því
hann hefúrsagt
Alves að vera
rólegur.„Ég sagði
honum að slaka
á. Hann er ekki í góðu leikformi enda
fékk hann ekkert að spila hjá sínu gamla
liði. Hann þarf að koma sér í leikform
aftur og þá fer þetta að detta hjá honum.
Fyrir utan það eru framherjarnir okkar
núna f góðu formi þannig að hann þarf
nú fyrst að vinna sér inn sæti í
byrjunariiðinu," segir Stewart Downing.
Ipswich vill Nugent
Það virðist ætla að bætast við enn einn
kaflinn (eina mestu ef ekki allra mestu
vonbrigðasögu úrvalsdeildarinnar, sögu
Davids Nugent
hjá Portsmouth.
Nú eru það
Ipswich-menn
sem vilja fá
ffamherjann
knáa á láni og
Portsmouth-
menn vísa þeirri
hugmynd alls
ekki á bug.
Gamia liðið hans Hermanns Hreiðars-
sonar hefur í huga þriggja mánaða
lánssamning fyrir hinn 22 ára gamla
Nugent.„Það ergóður möguleiki að
Nugent komi til okkar.Við höfum spurst
fyrir um hann hjá Portsmouth og þeir
eru jákvæðir. Nugent elskar heimavöll-
inn okkar og að skora mörk þannig það
getur ekki verið nema góð blanda," sagði
stjóri Ipswich, Jim Magilton.
Drogba vill betri spílamennsku
Didier Drogba, framherji Chelsea, var
ekki fyrr kominn heim til Lundúna eftir
Afríkumótið en hannfóraðtjásigí
■ fjölmiðlum. Drog-
ba varekki
ánægðurmeð
spilamennsku
Chelsea (leiknum
gegn Olympiakos
í meistaradeild-
inni og segir liðið
þurfa að spila
munbeturá
öllum vígstöðv-
um ætli það sér að vinna titla í ár. Drogba
lékeinnig við hlið Nicolas Anelka í
leiknum.„Við spiluðum alls ekki vel og
verðum að lyfta leik okkar á miklu hærra
plan ætlum við okkur lengra í þessari
keppni. Það var einnig gaman að spila
með Anelka og ég hlakka til samstarfs
okkar í ffamtfðinni," segir Drogba sem
hefur sjaldan óttast samkeppni.
Vill titil í fyrsta leik
Brasilíski bakvörðurinn Gilberto sem
gekk í raðirTottenham f janúarmánuði
getur ekki beðið eftir fyrsta leik sínum.
Miklarlfkureruá
því að hann byrji
ekki í minna
mikilvægum leik
en úrslitaleik
deildarbikarsins
oglangarhann
gríðarlega til að
vinna titil í sínum
fyrsta leik með
nýjafélaginu.