Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 Fréttír DV [ópur manna réðst á þá Timothy Branson og t Chris Lowen fyrir utan Nesti við Hringbraut i Reykjavík. Á meðan Chris var snúinn niður í | jörðina og laminn, voru setningar hlaðnar kyn- þáttafordómum hrópaðar að honum. Þeir tveir höfðu þá ekkert unnið sér til saka og höfðu aldrei hitt árásarmenn sína áður. Þeir komu til íslands í leit að betra lífi, en þeir ólust báðir upp i slæm- um hverfum í Bandaríkjunum. Þeir höfðu aldrei búist við að lenda í einhverju sem þessu. Timothy Branson Félagarnir ákváöu að kæra ekki árásina til lögreglunnar þarsem þeirtöldu lögregluna úrræðalausa. Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn hvetur alla til að kæra líkamsárásir sem þessa til lögreglunnar. .Á RÓBERT HLYNUR BALDURSSON bladcimadur skrifai: ioberthb(“dv.is „Þetta var ósköp venjulegur dag- ur hjá okkur í upphafi. Við fórum að spila körfubolta eftir vinnu. Að honum loknum komum við við á Subway í Nesti við Hringbraut. Við fórum svo út og stóðum þar þar sem Chris kveikti sér í sígarettu. Næsta sem við vitum er að rauðum bíl er keyrt að okkur. Út úr honum stigu íjórir menn. Við vissum strax þegar við sáum framan í þá að ekki var allt með felldu," segir Timothy Branson í viðtali við DV. Reyndu að komast undan Timothy varð ásamt Chris Lowen fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að hópur manna réðst að þeim fyrirvaralaust síðasta sum- ar. Þeir höfðu ekkert unnið sér til saka, en þeim varð fljótt ljóst að árásin var á grundvelli kynþátta- fordóma. Chris og Timothy eru báðir Bandaríkjamenn af afrískum uppruna. Þegar þeim varð ljóst hvað var í þann mund að gerast, reyndu þeir að komast undan. Timothy náði að komast undan á hlaupum en þrír árásarmannanna náðu að króa Chris af og réðust að honum. Einn þeirra hljóp svo á eftir Timothy. Þessir þrír náðu að snúa Chris nið- ur í jörðina og lömdu hann á með- an þeir hrópuðu setningar á borð við: „Farið aítur til Afríku." Tim segir meiðsli þeirra tveggja ekki hafa verið alvarleg, en hann segist fullviss um að árásarmenn- irnir hefðu gengið lengra ef vitni hefðu ekki verið að atvikinu. Hann segist þó telja að tilgangur árás- arinnar hafi fyrst og fremst ver- ið til þess að hræða þá tvo frekar en að meiða þá. Hið ógnvænlega sé að árásarmennirnir hafi ver- ið fullvaxnir karlmenn á aldrinum 20 til 25 ára. Þarna hafi því verið ljóst að ekki var um árás unglinga að ræða eins og oft í tilvikum sem þessum. Auk þess átti árásin sér stað um klukkan hálf ellefu að kvöldi þriðjudags, sem verði að teljast óvenjulegt. Þá segist Timot- hy sannfærður um að mennirnir hafi ekki verið undir áhrifum þegar árásin var gerð. Bjuggust ekki viö þessu á íslandi Timothy og Chris vinna báðir í veitingageiranum. Þeir komu báð- ir á sínum tíma til íslands í leit að betra lífi, en þeir höfðu alist upp í slæmum hverfum í Bandaríkj- unum. Þeir höfðu aldrei búist við einhverju sem þessu á íslandi. Að- spurður hvaða áhrif þetta atvik hafi segir Tim það vissulega hafa orðið til þess að hann sé meira á varð- bergi en áður, en hann neitar því að hann finni á einhvern hátt fyr- ir hræðslu þegar hann gangi um borgina. Hann segist munu halda áfram í þá skoðun sína að íslands sé friðsælt. „Ég læt ekki íjóra menn breyta hugsun minni á 300 þús- und manns. Ég tel að fordóm- ar hafi byggst upp, sérstaklega eftir aukinn aðflutning fólks frá Evrópusambandslöndunum. En það er einungis agnarsmár hluti sem kemur hingað til að valda ERLENDIS RÍKISBORGARAR Chris Lowen Átti sér einskis ills von þegar mennirnir fjórir komu aðvífandi. vandræðum. Yfirgnæfandi meiri- hluti vill lifa friðsamlegu lífi. Þessi litli hluti kemur aftur á móti óorði á alla hina og býr til staðalímynd- ir um þá," segir Timothy, en hann hefur komið sér vel fyrir á íslandi og á barn með íslenskri konu. Kærðu ekki árásina Timothy og Chris tóku þá ákvörðun eftir atvikið að láta lög- reglu ekki vita um hvað hafði gerst, þrátt fyrir að nokkrir hafi orðið vitni að árásinni. „Ég er gestur hér og vil ekki verða til vandræða. Það er betra að láta þetta eiga sig frekar en að styggja þá sem réðust á okk- ur. Ég komst í burtu og ég vil eng- in eftirmál vegna þessa. Vegna þess að við Chris höfðum heyrt af mörg- um mun verri málum ákváðum við Ár Fjöldl 2000 8.824 2001 9.850 2002 10.221 2003 10.180 2004 10.636 2005 13.778 2006 18.563 2007 21.278 Hlutfall af landsmönnum 13,1% 13,4% 13,5% 13,5% 13,6% 14,6% |6,0% 6,8% Inni i þessum tölum eru ekki þeir sem hafa fengið islenskan ríkisborgararétt siðar meir. Heimild: Hagstofa Islands aftur á móti að segja sögu okkar," segir Timothy. Timothy segist telja lögregluna máttíausa þegar kemur að kyn- þáttaofbeldi sem þessu. f raun þjóni engum tilgangi fyrstu fimm til sex árin sem búið er á íslandi að tilkynna slík atvik. Eftir á sér hann hins vegar eftir því að hafa ekki kært árásina. „Þetta er nokkuð sem má alltaf búast við og ég hef tekið því," segir Timothy. Hvetur alla til að kæra Friðrik Smári Björgvinsson, yf- irlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hvetur alla þá sem verða fyrir líkamsárás sem þessari að tilkynna hana til lög- reglunnar. Aðspurður hvort mik- ið sé um tilvik sem þessi, þar sem útlendingar ákveða að kæra ekki kynþáttaárásir til lögreglu vegna ótta og efasemda um að lögregl- an taki á þeim, segir Friðrik Smári ómögulegt að fullyrða um eitthvað í þeim efnum þar sem engin tölu- leg gögn séu fyrir hendi þess efn- is. „Ef um lfkamsárás er að ræða er hún rannsökuð eins og hver önn- ur. Ef þar eru svo kynþáttafordóm- ar eða ærumeiðingar er tekið á því. Þarna gildir ekkert annað um útíendinga en fslendinga," segir Friðrik Smári. Ekki ólíkt einelti í skóla Einar Skúlason, framkvæmda- stjóri Alþjóðahúss, tekur undir sjónarmið Friðriks og hvetur alla til að kæra árásir sem þessa til lög- reglu. Nokkuð er um að fólk leiti til Alþjóðahúss fyrst eftir að það verður fyrir reynslu sem þessari. Þar er í flestum tilvikum um að ræða upphrópanir og mismun- un, en þá hefur einnig verið nokk- uð um líkamsárásir. „Þetta er ekk- ert ólíkt einelti í skóla. Barn þorir ekki að klaga og vonar að um stakt tilvik sé að ræða. Það er alltaf ein- hver til staðar sem hægt er að tala við. Það er réttur hvers og eins að fá að vera í friði," segir Einar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.