Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Page 15
DV Sport
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 15
EMMANUEL ADEBAYOR KLIKKAÐI ÚR SANNKÖLLUÐU DAUÐAFÆRI Á ÖGURSTUNDU GEGN AC MILAN
í MEISTARADEILDINNI. ARSENAL OG MILAN GERÐU 0-0 JAFNTEFLI.
Kristján Örn, leikmaður Brann, lætur ekki gróusögur trufla sig:
Einbeitirsérað Brann
Kristj án Öm Sigurðsson hefur verið
mikið í umræðunni að undanfömu.
Hann hefur verið orðaður við
Charlton og Aston Villa á Englandi
og þá hrósaði Phil Neville, leikmaður
Everton, honum eftír fyrri leik Everton
og Brann í UEFA-bikamum fyrir um
viku. Síðari leikurinn fer fram í kvöld
og var Kristján hinn rólegastí á hóteli
í Liverpool-borg þegar DV náði í
skottíð á honum. Everton vann fyrri
leikinn 2-0 í Bergen.
„Það er alltaf möguleiki. Fyrri
leikurinn var nokkuð jafn að mínu
mati. Ég sé ekki að það ættí eitthvað
að breytast. Það var og er alltaf gaman
að fá að spreyta sig á móti stómm
liðum." Kristján hefur fengið hrós
fyrir sína frammistöðu eftír fyrri
leikinn og nýjasta liðið sem hefur
sýnt Kristjáni áhuga er Charlton sem
Hermann Hreiðarsson gerði garðinn
frægan með. „Þetta gekk ágætlega
bæði hjá mér og flestum í liðinu. Við
náðum góðum leik miðað við hvar
við stöndum á tímabilinu, við erum
í raun nýbyrjaðir aftur eftír jólafrí, og
við náðum upp góðri stemningu og
góðum leik.
Þetta var fyrsti alvöruleikurinn
okkar í ár, við vorum búnir að taka
tvo æfingarleiki fyrir leikinn en síð-
asti mótsleikurinn var í desember.
Við vissum allir í liðinu af þessum leik
þannig að við höfum haldið okkur
betur í formi en það sást undir lokin
í leiknum að þá áttum við ekki nógu
mikið eftír."
Aston Villa sendi njósnara á
leildnn í Bergen til að fýlgjast með
Kristjáni. Liðið er sagt vilja fá hann
sem arftaka Olafs Melberg sem hefur
ákveðið að fara til Juventus eftir tíma-
bilið. „Þetta er nú bara slúður held
ég og það þýðir ekki að kippa sér
upp við það. En það er alltaf gaman
að fá viðurkenningu en ég er bara að
einbeita mér að Brann og reyni bara
Úr fyrri leiknum Kristján stóð
sig vel I fyrri leik liðanna og hefur
fengið hrós víða um England.
að spila vel með liðinu," segir Kristján
og viðurkennir að hann sé ekki
blóðheitur stuðningsmaður enska
boltans eins og flestir íslendingar.
Arsenal sé þó hans lið. „En það hefur
ekki áhrif hvert maður vill fara, það
er ekki eins og maður getí valið það.
Maður stefnir samt alltaf hærra, það
gera það allir en til þess þarf maður
að spila vel fýrir Brann. Svo er bara að
bíða og sjá," sagði Kristján.
benni@dv.is