Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 Sport DV IÞR0TTAM0LAR GLITNIR STYRKIR SJÖ KONUR Glitnirog íþróttasamband Islands úthlutuðu í þriðja skiptið úr Afreks- kvennasjóði Glitnis styrkjum til íþróttakvenna. Að þessu sinni voru þaðsjökonursem hlutu styrki úr sjóðnum en heildarupphæðin nam 2,5 milljónum króna. Sjóðurinn hefur það að markmiði að styðja við bakið á afrekskonum og gera þeim kieift að stunda sina íþrótt og ná árangri. Þær konur sem fengu styrk eru Ásdís Fljálms- dóttir, frjálsíþróttakona úrÁrmanni, Embla Ágústsdóttir, sundkona úr (þróttafélagi fatlaðra, Erla Dögg Haraldsdóttir, sundkona úr (RB, Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona úr KR, Sigrún Brá Sverrisdóttir, sundkona úr Fjölni, Silja Úlfarsdóttir, frjálsiþróttakona úr FH, og Sonja Sigurðardóttir, sundkona úr íþróttafélagi fatlaðra. BIKARINN f HÓLMINN Það var glatt á hjalla á blaðamanna- fundi sem Körfuknattleikssamband (slands hélt á Hilton-hótelinu í gær fyrir úrslitaleikina í Lýsingarbikarnum sem fara fram um helgina. Þjálfari kvennaliðs Hauka, Yngvi Gunnlaugsson, sagði allar sínar stúlkur heilar og hlakkaði til leiksins. Þegar kom að Igor Beljanski kvaðst hann ekki geta svarað Yngva því hann skildi hann ekki. Hann fattaði þó hvernig var i pottinn búið og talaði um sitt lið og sagði einnig mikinn spenning (herbúðum Grindavíkur og að þar væru allir leikmenn heilir. Hlynur Bæringsson fórfyrir Snæfelli á fundinum og gamli þjálfarinn hans, Bárður Eyþórsson, fyrir Fjölni en þau mætast (úrslitum karlanna. Mikill hlátur brast á þegar Hlynur mælti til Bárðar.„Það er mikil stemning (bæjarfélaginu og við komum titlinum heim (Hólminn þar sem hann á heima," sagðir Hlynur og glotti til Bárðar. PÁLL (ÞRÓTTAMAÐUR GRINDAVÍKUR Körfuknattleiksmaðurinn Páll Axel Vilbergsson vará þriðjudag útnefndur (þróttamaður Grindavíkur fyrir árið 2007. Knattspyrnu- maðurinn Scott Ramsayvarðannar í kjörinu og Þorleifur Ólafeson, liðsfélagi Páls ( Grindavíkurliðinu, varð þriðji I kjörinu. Páll Axel er fyrirliði Grindavík- ursem leikur ( lceland Express-deild karla og vermir um þessar mundir 2. sætið (deildar- keppni úrvalsdeildar. Páll hefur meðal annars orðið (slands- og bikarmeistari með Grindvíkingum og leikur stórt hlutverk hjá (slenska A-landsliðinu sem ( haust vann magnaðan heimasigur með flautukörfu gegn Georgíumönnum. Páll Axel hefur leikið 18 deildarleiki með Grindavík á þessari leiktíð og gerir 22,1 stig að meðaltali í leik en Páll Axel er á slnu fjórtánda ári (úrvalsdeild karla og á s(nu þrettánda ári með Grindavík en hann lék eina leiktið með Skallagrími ( Borgarnesi. Landsliðsþjálfarar yngri landsliða Englands, John Peacock og Brian Eastick, héldu fyrir- lestur fyrir 50 þjálf- ara í fræðslusetri KSÍ um síðustu helgi. Þeim blöskr- aði hegðun íslensku þjálfaranna sem mættu á námskeiðið því eins og íslend- ingum sæmir mættu þeir seint og fóru snemma. ;C BENEDIKT BOAS HINRIKSSON blaðamaður skrifar: bennint>dv.is „Það var svolítið leiðinlegt við nám- skeiðið að þjálfararnir komu of seint og fóru snemma. Það fór svolítið að tínast úr hópnum og úr þessum 50 manna hópi voru ekki nema 30 allan tímann," sagði Sigurður Ragnar Eyj- ólfsson, landsliðsþjálfari kvenna og fræðslustjóri KSÍ. John Peacock og Brian Eastick héldu opinn fyrirlestur fyrir 50 þjálfara í fræðslusetri KSf síð- astliðinn laugardag. Þeir John og Bri- an eru landsliðsþjálfarar Englands í U-17, U-18, U-19 og U-20 ára aldurs- hópunum og þeim kom mjög á óvart hegðun íslensku þjálfaranna. íslendingar eru ótrúlega óstund- vísir eins og allir vita. Áhorfend- ur mæta seint, hvort sem það er á íþróttakappleiki, tónleika heims- frægra tónlistarmanna eða til vinnu. Þessi hegðun kom þeim Peacock og Eastick mjög á óvart en þegar þeir vildu byrja námskeiðið voru ekki næstum því allir þjálfararnir mættir. Og eins og sannra íslendinga er von og vísa fóru nokkrir áður en nám- skeiðið kláraðist. „Það setti leiðin- legan svip á þetta. Við höfum á okkur þann stimpil að mæta seint á völl- inn og það var fólk að tínast inn þeg- ar námskeiðið var byrjað. Það kom þeim mikið á óvart og fannst það óvenjulegt. Þeir áttu ekki von á því að námskeiðið hæfist ekki á mínút- unni því fólk var ekki komið. Þetta er eitthvað sem við þurfum að endur- skoða." Alltaf hægt að tileinka sér nýja hluti „Þetta kom til þannig að ég er nemandi á UEFA Pro-námskeiði á Englandi og John Peackock er yfir því námskeiði. Brian Eastick er kennari á námskeiðinu og það hefur verið í deiglunni hjá KSÍ að fjölga erlendum fyrirlesurum. Við höfum verið að fá einn til tvo fyrirlesara á ggBBiPHjpi Fyrirmæli cjetm John Peacock gefur leikmónnum rannars flokks Vals fyrirmæli. Guðjón fylgdist með Guöjón Þórðarson mætti til aö kíkja á þjálfarann. Komu semt og foru snemma Þjálfarar á námskeiðinu sýndu sanna islenska hegðun á námskeiðinu. ISLENSK HEGÐUN K0M Á ÓVART ári að utan og þeir tveir eru báðir mjög hæfir og hafa mikla reynslu. Þeir eru báðir góðir kennarar og með mikinn bakgrunn í þjálfun. Það er alltaf gott að sjá hvernig hlutirnir eru gerðir annars staðar því maður getur alltaf tileinkað sér nýja hluti," sagði Sigurður Ragnar og bætti við að Peacock og Eastick hefðu komið með nýjar útfærslur á æfingum sem íslenskir þjálfarar hefðu þegar séð. „Það sem mér fannst þeir standa framar um en margir þjálfarar hér á landi er að þeir eru ofsalega góðir kennarar. Þeir kenna leikinn og vinna markvisst í því að kenna leikinn frá a tíl ö. Það hefur oft skort upp á hér á Iandi, þegar maður lítur á heÚdarmyndina, að leikurinn er ekki kenndur nógu markvisst. Maður var sjálfur að læra hluti 25-27 ára sem maður áttí að læra 15 ára. Mér finnst við íslendingar ekki standa eins framarlega og við gætum gert. Það er markmið að bæta úr því og fá þá góðafyrirlesara. Enþáþurfaþjálfarar að mæta. Það komu 50 þjálfarar á þennan fyrirlestur." Þeir Peacock og Eastick voru með verklega kennslu hjá leikmönnum 2. flokks Vals í Egilshöllinni og stóð æf- ingin yfir í tvo og hálfan tíma. „Það voru nokkrir leikmenn þar sem þeim fannst efnilegir. Þeir voru ánægðir með að allir leikmennirnir lögðu sig fram og við eigum fullt af efnilegum leikmönnum hér á landi, það er ekki spurning." ÍBR og SPRON útdeildu styrkjum í gær aö andvirði 5.600.000: HELGA FÆR 30.000 KRÓNUR Á MÁNUÐI Úthlutað var í gær úr afrekssjóði Iþróttabandalags Reykjavíkur og Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis. Þetta var í sjöunda skiptíð sem íþróttabandalagið og Sparisjóðurinn útdeilda þessum styrkjum en heildarupphæðin nam 5,6 milljónum króna. Þessi sjóður var stofnaður og er starfræktur með það að markmiði að styrkja ungt og efnilegt íþróttafólk í Reykjavík. AIls bárust fimmtíu og þrjár umsóknir í sjóðinn og fýrir vahnu urðu þrjátíu og fjórir umsækjendur. Það eru félögin semsækja um styrkina fyrir affeksverkefni sín. Athöfnin fór fram á Grand Hótel í gær þar sem ÍBR og Spron veittu einnig tæplega 600 íþróttamönnum úr Reykjavík allt frá þrettán ára aldri viðurkenningu fyrir íslandsmeistaratítla sína á árinu sem leið. Handsala samninginn Helga Þorsteinsdóttir og Ólafur Haraldsson frá SPRON handsala afrekssamning- inn sem tryggir henni 30.000 krónur í mánaðarlaun á árinu 2008. Við athöfnina var einnig skrif- að undir samning við frjálsíþrótta- stúlkuna Helgu Margrétí Þor- steinsdóttur úr Ungmennasambandi Vestur-Húnvetninga. Helga sem er aðeins á sautjánda aldursári sigraði á meistaramótí íslands í fjölþraut síð- ustu helgi þar sem hún tók sig tíl og bættí íslandsmetið. f samtali við DV sagðist hún hafa stefnt að því fyrir mótið að bæta metíð sem hún og gerði. Helga bættí þá ársgamalt met Birnu Ólafsdóttur um 175 stíg og hlaut alls 4.018 stig. Samningurinn tryggir Helgu Margrétí 30.000 krónur í mánaðarlaun á árinu 2008. Eins og er með alla affekssamninga hjá ÍBR þarf Helga að uppfylla viss grundvallarsldlyrði hvað varðar ástundun og góða ffamkomu innan vaUar sem utan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.