Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2008, Qupperneq 27
PV SviSslJós FIMMTUDAGUI Myndaröð sem skartar Jessicu Alba í tímaritinu Latina hefur vak- ið nokkra athygli. Þar endurleikur Jessica noklcur af þekktustu augnablikum hryllingsmyndasögunnar en hún er sjálf væntan- leg á hvíta tjaldið í hrollvekjunni The Eye. Jessica leikur eftir at- riði úr myndunum Scream, Psycho, The Birds, Rosemary's Baby og The Ring. Jessica er einnig í ítarlegu viðtali í blaðinu þar sem hún gerir lítið úr ummælum fólks um að hún sé ekki stolt af róm- önskum uppruna sínum. Spænskumælandi blaðamenn hafa oft sótt að henni fyrir að tala ekki spænsku meira og heiðra uppruna sinn. „Ég hef alltaf verið stolt af rómönskum uppruna mínum og ég er spennt yfir því að barnið mitt verði dökkt á hörund," segir Alba ákveðin. Dustarykið J afdansskónum A dögunum var tilkynnt hvaða stjörnur taka þátt í næstu þáttaröð af Dancing with the Stars. Meðal þeirra sem hyggjast dansa eru Shannon Elizabeth, Steve Gutt- enberg og Priscilla Presley. Sjónvarpsþátturinn Dancing with the Stars hefur heldur betur slegið í gegn, en meðal þeirra sem tekið hafa þátt í þættinum eru Heather Mills og hnefaleikamaðurinn Lennox Lewis. Á dögunum var tilkynnt hvaða stjörnur taka þátt í næstu þáttaröð. Meðal þeirra sem taka þátt eru leikkonan Priscilla Presley, sem eitt sinn var gift Elvis, söngvarinn Mario, leikkonan Shannon Elizabeth, leikarinn Steve Guttenberg sem margir muna eflaust eftir úr kvikmyndun- um um Lögregluskólann. Þá tekur einnig þátt ruðningsleikarinn Jason Taylor, sem spilar með liði Miami Dolphins, og Kristi Yama- guchi, sem vann gullverðlaun á ólympíuleikum fyrir skautadans. Jason Taylor sagði í viðtali við people.com að hann ætti eftir að segja liðsfélögum sínum frá uppátækinu. „Ég æda að slökkva á gemsanum mínum, þeir eiga ekki eftir að láta mig friði." Dancing with the Stars er bandarísk útgáfa af breska sjónvarpsþættinum Stricdy Come Dancing, en þátturinn hefur verið ffamleiddur um allan heim, meðal annars í Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Þýska- landi, Svíþjóð, Hollandi, Noregi, Portúgal, ísrael og ítalíu. Nýja þáttaröðin hefur göngu sína 18. mars í Bandaríkjunum og fá þá störnurnar tækifæri á að spreyta sig í valsi, rúmbu, cha cha cha, paso doble, djæv og fleiri tegundum af dönsum. dori@dv.is Shannon Elizabeth Erán nokkurs vafa glæsilegasti keppandinn í ár. Prisdlla Presley Steig villtan dans með kónginum og spreytir sig nú ásamt öðrum stjörnum. Steve Guttenberg Hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarin ár, en dansar sig aftur inn (hug og hjarta Bandaríkjamanna. Arthúr: Heillandi Hvað með að lyfta lóðum? Eða semja til hennar fallegt Ijóð? Eða gera eitthvað hugulsamt? Ég veit ekkert hvað ég get gert til að hellla þessa stelpu Já, það er ein lelð. Þú finnur eitthvað Nei, ég nenni því ekki. Eg gæti þóst samt hafa gert eitthvað, eða hvað? Auðvltað ætla ég að deita hann, hann er greinilega byrjaður að lyfta É VALA SMÍÐA HAMA HANDA ÞÉÉ! Rosemary's Baby Sonur Satans er ekkert lamb að leika sér við. The Ring Hrollvekjan sem kom japönsku hrollvekjubylgjunni af stað. Psycho Sturtuatriðið fræga sem hefur vakið óhug um allan heim Scream Unglingahrollvekjan sem sló i gegn. Jessica Alba situr fyrir i skemmtilegri myndaröð í marshefti tímaritsins Latina. Þar leikur hún eftir nokkur af þekktustu atriðum hrollvekjusögunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.