Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Side 54
54 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008
BfLAR DV
>
i
ANDRI OTTESEN
Almannatengill Carbon Recycling Internation-
al bindur miklar vonir við fljótandi eldsneyti.
ANDRI OTTESEN, ALMANNATENGILL FYRIRTÆKIS-
INS CARBON RECYCLING INTERNATIONAL EHF., SEG-
IR ISLAND EIGA ALLA MÖGULEIKA Á ÞVÍ AÐ VERÐA
ÓHÁÐ OLI'UFRAMLEIÐSLU í FRAMTIÐINNI.
Það er alltaf gaman þegar íslenskir hugvits-
menn taka sig til og láta hendur standa fram
úr ermum. Það er þó ekki alíslenskt en um
er að ræða íslenskt-amerískt fyrirtæki, Carb-
on Recycling Intemational ehf. Fyrirtækið
er í eigu íslenskra og bandarískra fjárfesta.
Fyrirtækið vinnur nú hörðum höndum við
að byggja upp starfsemi sína. DV ræddi við
Andra Ottesen, almannatengil fyrirtækisins,
og fékk hann til að skýra frá starfsemi þess.
Fyrsta sinnar tegundar
„í samvinnu við Mannvit, Hitaveitu Suð-
umesja og Olís erum við að hanna og byggja
verksmiðju sem breytir koltvísýringsútblæstri
frá jarðvarmavirkjunum í metanól. En met-
anól er fljótandi eldsneyti fyrir bíla og önn-
ur farartæki. Þetta verður fyrsta verksmiðja
sinnar tegundar í heiminum." Að sögn Andra
er stefrit að því að verksmiðjan, sem verður
á Reykjanesi, verði tilbúin í júní á næsta ári.
Talið er að árleg afkastageta verði 4,5 milljónir
h'tra af metanóli sem blandað verður bensíni í
hlutföllimum 5% á móti 95%.
Kjöraðstæður á íslandi
„Þessi blanda hækkar oktangildi eldsneyt-
isins og stuðlar að hreinni brennslu og betri
nýtingu þess. Blandan eykur jafnframt afl
bensínbíla, janft nýrra sem eldri, án þess að
nokkurra vélarbreytinga verði þörf." Markmið
verkefiiisins er að koma á fót framleiðslu á
fljótandi eldsneyti sem byggist á þvi að koltví-
sýringsútblástur frá jarðvarmavirkjunum er
endumýttur á skilvirkan og hagkvæman hátt.
Þá er einnig í athugun að nýta koltvísýrings-
útblástur frá álverum og umbreyta honum í
orku.
Að sögn Andra eru kjöraðstæður fyrir
þessa starfsemi hérálandivegnaj arð varmans
og því er verkefnið prufúkeyrt hér. Með ffarn-
leiðslu á fljótandi eldsneyti gæti farið svo að í
ff amtíðinni verði ísland óháð olíufr amleiðslu
og getí minnkað útblástur koltvísýrings jafn-
framt því að framleiðsla jarðvarmavirkjana
verður nýtt á arðbærari hátt en áður.
berglind@dv.is
DV-MYND Sigurður Guömundsson