Peningamál - 01.05.2000, Blaðsíða 24

Peningamál - 01.05.2000, Blaðsíða 24
PENINGAMÁL 2000/2 23 meira en í helstu viðskiptalöndum. Aðhaldssöm peningastefna leiddi og til hækkaðs nafngengis krón- unnar. Slík þróun rýrir að öðru jöfnu samkeppnis- stöðu útflutnings- og samkeppnisgreina. Raungengi fjórða ársfjórðungs 1999 var þó nálægt meðaltali síðustu 20 ára og langt undir því hámarki sem það náði á árunum 1987 og 1988. Afkoma í atvinnu- rekstri var á heildina litið góð, og athyglisvert er að útflutningur iðnaðarvöru, bæði stóriðjuafurða og annarrar vöru, óx verulega á árinu. Ekki er tilefni til að ætla að raungengi hafi hækkað umfram það sem samrýmist langtímastöðug- leika. Svo lengi sem áhrif af auknu aðhaldi í peninga- málum og í fjármálum ríkisins hafa ekki skilað sér að fullu í betra jafnvægi í þjóðarbúskapnum er óhjá- kvæmilegt að atvinnuvegirnir sætti sig um sinn við lakari samkeppnisstöðu og jafnvel hærra raungengi en nú er. Opinber fjármál Ég mun nú víkja nokkrum orðum að ríkisfjármálum, en athyglin hlýtur mjög að beinast að þeim í glím- unni við viðskiptahallann. Staða ríkisfjármála var sterk á árinu, en skýrist þó öðru fremur af miklum hagvexti. Eignasala átti hér einnig hlut að máli, en að öðru jöfnu ætti hún að draga úr þenslu. Þær aðferðir sem Seðlabankinn notar til þess að mæla aðhaldsstig ríkisfjármála benda til minnkandi aðhalds á árinu 1999. Staða sveitarfélaganna var enn erfið, en halli á rekstri þeirra virðist hafa verið rúmir 3 milljarðar króna á móti 4,3 milljörðum króna árið áður. Full- yrða má að ekki hafi verið veitt nægilegt aðhald í opinberum rekstri í heild miðað við þá þenslu sem ríkti. Á þessu ári er stefnt að auknu aðhaldi í ríkis- fjármálum með 16,7 milljarða króna afgangi. Er mjög mikilvægt að ekki verði farið fram úr útgjalda- áformum fjárlaga og að hugsanlegar auknar tekjur skili sér að fullu til bættrar afkomu ríkissjóðs. Við þá miklu þenslu, sem nú gætir, er ríkissjóður öflugasta tækið til að stuðla að bættu jafnvægi í þjóðarbú- skapnum. Útlánaþensla Árið 1999 einkenndist ekki síst af örum vexti útlána og peningamagns. Útlán lánakerfisins í heild jukust um 17,4% á árinu, en útlán innlánsstofnana mun meira eða um 23,1%. Peningamagn á mælikvarða M3 óx um 17,1%. Um miðbik ársins var þessi vöxtur enn meiri, en úr honum dró á síðari hluta ársins. Vöxtur útlána var að rúmum helmingi fjármagnaður með erlendu lánsfé. Öran vöxt í útlánum innlánsstofnana má bæði rekja til mikillar eftirspurnar og aukins framboðs lánsfjár. Aukið framboð birtist m.a. í sókn innláns- stofnana eftir aukinni markaðshlutdeild. Efnahags- reikningar banka og sparisjóða hækkuðu að mun, og í heild rýrnaði eiginfjárhlutfall án víkjandi lána, en ekki eiga allar stofnanir þar jafnan hlut að. Þetta gerðist þrátt fyrir mjög góða afkomu innlánsstofnana á árinu. Seðlabankinn ítrekar þá skoðun sína að hag- Launaþróun og raungengi 1990-1999 Mynd 3 1990 91 92 93 94 95 96 97 98 99 0 1 2 3 4 -1 -2 -3 -4 -5 -6 -7 -8 -9 -10 Raunlaun, %-breyting 0 2 4 6 8 10 12 14 -2 -4 -6 -8 -10 -12 -14 Gengi, %-breyting Innlend raunlaun Erlend raunlaun Raungengi m.v. launakostnað Nafngengi krónu %-breyting innlendra og erlendra raunlauna milli ára Vöxtur útlána lánakerfisins 1989-1999 1989 90 91 92 93 94 95 96 97 98 99 0 5 10 15 20 25 30 35 40 45 50 -5 -10 % Ríkissjóður og stofnanir Bæjar- og sveitafélög Atvinnuvegir Heimili Mynd 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.