Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 16. MAl 2008
Helgarblað DV
Jón „bóndi" Gunnarsson er þríbrotinn í andliti og hefur lagt fram kæru á hendur Magnúsi Ver Magnússyni
vegna líkamsárásar. Fjöldi lögreglumanna var kallaður að heimili Jóns á miðvikudag en þá var Magnús hvergi
sjáanlegur. Jón þurfti að leita á bráðamóttöku í kjölfarið. Magnús neitar að hafa ráðist á Jón og segist alls ekki
hafa komið heim til hans þennan dag. Jón óttast að verða fyrir árásum ef hann tjáir sig um málið.
ÞR BROTINN
IANDLITI
ERLA HLYNSDÓTTIR
blaðamadur ikrifar: erla&dv.is
„Þetta þykir ekki léttvægt hér í
húsi," segir Aðalsteinn Aðalsteins-
son, rannsóknarlögreglumaðurhjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Hann staðfestir að Jón „bóndi"
Gunnarsson kraftlyftingamaður
hafi í gærmorgun lagt fram kæru á
hendur Magnúsi Ver Magnússyni
kraítlyftingamanni vegna líkams-
árásar. Að sögn Aðalsteins er málið
litið afar alvarlegum augum af lög-
reglunni.
Flúði inn í fataskáp
Jón þurfti að leita til bráðamót-
töku Landspítalans seinni hluta
miðvikudags og kom í ljós að
hann er þríbrotinn í andliti. Eft-
ir aðhlynningu fékk hann að fara
heim en verður áfram undir eftir-
liti læknis.
Samkvæmt heimildum DV lýt-
ur kæra Jóns að því að Magnús hafi
komið á heimili hans á fjórða tím-
anum á miðvikudag og ráðist illi-
lega á hann. Sömu heimildir segja
að gestkomandi kona hjá Jóni hafi
orðið mjög skelkuð við lætin og flú-
ið inn í fataskáp. Nágrannar Jóns í
Smáíbúðahverfinu í Reykjavík voru
snarir í snúningum og hringdu á
lögreglu sem var fljót á vettvang en
Magnús var þó á bak og burt.
Þöglir sem gröfin
Vegna alvarleika áverkanna
leitaði Jón til bráðamóttöku í kjöl-
farið. Hann er mjög óásjálegur,
kinnbeinsbrotinn og með bólg-
ið auga. Jón gaf óformlega skýrslu
hjá lögreglu um atvikið sama dag
Neitar sök Magnús Ver Magnússon
neitar að hafa ráðist á Jón og segist
ekki hafa komið heim til hans
umræddan dag.
en mætti aftur á lögreglustöðina á
fimmtudag, gaf formlega skýrslu
og Iagði þá fram kæru. Ekki er vitað
til þess að konan hafi kært.
Jón bóndi vildi ekki tjá sig um
málið þegar DV ræddi við hann á
miðvikudag en staðfesti í samtali
við blaðið í gær að hann hefði lagt
fram kæru. Að öðru leyti vildi hann
ekki tjá sig um málið.
Þegar blaðamaður ræddi við
Magnús Ver á miðvikudag neitaði
hann því að hafa ráðist á Jón og að-
spurður sagðist hann ekki kann-
ast við að hafa komið heim til hans
þennan dag. Blaðamaður hafði aft-
ur samband við Magnús í gær. Þá
vísaði hann í íyrri orð sín og sagðist
ekkert mundu tjá sig við fjölmiðla
nema í gegnum lögmann sinn.
Sterkasti maður heims
Jón og Magnús þekkjast lítillega
en þeir hafa báðir verið áberandi í
kraftlyftingum síðustu áratugina.
Magnús hefur verið lengi að
og var til að mynda í þriðja sæti í
keppninni Sterkasti maður íslands
árið 1985 sem Jón Páll Sigmars-
son sigraði í. Magnús var fjórum
sinnum sterkasti maður heims á
fimm ára tímabili á árunum 1991
til 1996.
Að undanförnu hefur hann
meðal annars starfað sem fram-
kvæmdastjóri Goldfinger og verið
einkaþjálfari í World Class.
Jón er einnig vel þekktur í heimi
kraftlyftingamanna. Hann hefúr
starfað sem einkaþjálfari og var
lengi rekstraraðili líkamsræktar-
stöðvarinnar Gym 80 við Suður-
landsbraut.
Jón bóndi starfaði um tíma sem
formaður Kraftlyftingasambands-
ins en sagði af sér fyrir rúmu ári eft-
ir að tugur þúsunda steraskammta
fannst í bakgarði hans. Jón hefur
staðfastlega neitað að eiga efnið og
er það mál í vinnslu.
Sterkastur í heimi í flokki
öldunga
Jón varð heimsmeistari í kraft-
lyftingum árið 2006 þegar hann
keppti í flokki öldunga á heims-
meistaramóti á vegum Alþjóða-
kraftlyftingasambandsins sem
haldið var í Texas í Bandaríkjun-
um. Jón varð einnig heimsmeist-
ari í sama flokki árið áður. Hann
féll þó á lyfjaprófi og var sviptur
heimsmeistaratitlinum.
Jón hafði áður fallið á lyfjaprófi
þegar hann keppti á heimsmeist-
aramóti í kraftlyftingum í Aust-
urríki 1996. Þar sem fall hans í
fyrra var túlkað sem endurtekið
brot var hann úrskurðaður í ævi-
langt keppnisbann. Síðan þá hef-
& ■■ ísMsíjs
Brotinn í andliti Jón„bóndi" Gunnarsson
á að baki farsælan feril sem kraftlyftinga-
maður en hann er nú þríbrotinn í andliti og
hefur kært Magnús Ver til lögreglunnar.
ur honum ekki verið heimilt að
keppa á mótum sem tengjast Al-
þjóðakraftlyftingasambandinu
eða Ólympíuhreyfingunni, jafn-
vel þótt um aðrar íþróttagreinar
en kraftlyfdngar sé að ræða. Jón
getur eftir sem áður keppt á mót-
um þar sem lyfjapróf eru ekki við
lýði.
Hélt minningarmót með
Fáfnismönnum
Samkvæmt heimildum DV
óttast Jón að bifhjólasamtökin
Fáfnir grípi til aðgerða gegn sér
vegna málsins. Á síðasta ári komu
bæði Magnús Ver og Jón Trausti
Lúthersson, kenndur við Fáfni,
að skipulagningu Grettismótsins
í kraftlyftingum sem haldið var
til minningar um Jón Helgason
heitinn. Hann var þekktur í und-
irheimunum og lést í haldi lög-
reglu eftir átök við lögreglumenn
eins og frægt varð.
Magnús Ver er gildur
mótshaldari á vegum World
Powerlifting Congress, sem
er kraftlyftingasamband utan
Iþróttasambands Islands.
ferðafrelsi
www.ferdaval.is
i við Vesturlandsve
FGRÐAVAL Lund