Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 27
DV Menning FÖSTUDAGUR 16. MA( 2008 27 Síðasta leiðsögnin Þriðja og síðasta leiðsögn Einars Fals Ingólfssonar um sýningu sína, Staðir - Úr dagbók 1988-2008, fer fram í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag, föstudag. Viðfangs- efni sýningarinnar er að finna í dagbók Ijósmyndarans sem hann hefur haldið frá árinu 1988 en sem skrásetn- ingartæki notar hann myndavél i stað penna. VIÐIAL „Það er nokkuð sem Hans Ul- rich hefur sérstakan áhuga á. Hann langar ekki lengur til að vinna ein- staka hluti sem bara lifna og deyja, eins og leiksýning sem fer á fjalimar og er ekki til lengur eftir að sýning- um lýkur nema í hugum fólks. Hann langar að sjá meiri fr amvindu í verk- efnunum, taka leifarnar af gömlum verkefnum inn í þau nýju þannig að þetta verði einhvers konar amaba sem flýtur áfram. Þetta tilrauna- maraþon byggist meðal annars á sýningu sem heitír Laboratorium ffá árinu 1999 sem Hans stýrði í Hollandi." Hugmynd sem rúllar áfram Að sögn Markúsar fjaliaði sýn- ingin í Hollandi fyrir níu árum um hvemig vísindi og myndlist skarast þar sem vísinda- og myndlistarmenn settu upp verk sem vom eins konar tilraunastofur. „Síðan rúllar þessi hugmynd áfram," segir Markús. „Seinna fékk Hans svo hugmynd um að taka við viðtöl við fjölda fólks í tuttugu og fjór- ar klukkustundir. Út frá því þróast svo hugmynd að því gera tilraunamar- aþon þar sem vísindamenn og lista- menn koma saman og gera tilraunir í tuttugu og fjóra tíma. Það áttí sér stað í Serpentíne í október síðastliðnum og er nýjasta forsagan að þessu verk- efni. Sambland af þessu öllu er svo sýningin og maraþonið sem gestir fá nú að sjá í Hafnarhúsinu," segir Mark- ús. Þess ber að geta að maraþonið stendur yfir í dag, föstudag, og aftur á sunnudag. Af praktískum ástæðum, sérstaklega vegna þess að svo marg- ir em að opna sýningar þessa sömu helgi, var ákveðið að skipta maraþon- inu niður á tvo daga. Eitthvað undursamlegt Bæði listamenn sem eiga verk á sýningunni og arkitektar og vísinda- menn, íslensldr og erlendir, taka þátt í maraþoninu. Hver fær sínar fimmtán mínútur til að sýna fram á „eitthvað undursamlegt" eins og Markús orðar það kfrninn. Þá gildir einu hvort við- komandi geri eitthvað eingöngu með höndunum, stingi einhverju tæki í samband, vinni með salnum eða hvað eina. Sýningin og tilraunamaraþon- ið em stóm póstamir á sýningunni. Við þá tvinnast svo sýningarskrá og upplýsingasöfn um Laboratorium- sýninguna og maraþonið í Serpent- ine í haust sem verða hiutí af heild- armyndinni og sett verða fram á nýstárlegan hátt. Skáli, hannaður af Ólafi og arkitektinum Einari Þorsteini Ásgeirssyni í samstarfi við Teiknistof- una Svalir, er á meðal þess sem þar kemurvið sögu. Samleiðing þekkingarframleiðslu „Þetta hljómar kannski gríðarlega flóldð og viðamildð," segir Markús, „en til að einfalda hlutina má kannski segja að þetta sé verkefni sem geng- ur út á að leiða saman ólíka þekldng- arframleiðslu. Innan myndlistarinn- ar er náttúrlega heilmikil framleiðsla á þekkingu og kunnáttu, eins og á við um vísindaheiminn. Allir em auðvit- að að gera þetta á sínum forsendum, með sína skólun og sitt tungumál, en þegar þessir tveir heimar mætast getur kannski átt sér stað einhvers konar skörun og eitthvað nýstárlegt getur gerst. Það er kannsld grunnur- inn að þessu öllu saman." Að sögn Markúsar fannst öll- um vísindamönnunum það ein- hvem veginn sjálfsagt að leitað væri til þeirra að taka þátt í listasýningu. Marina Abramovic Ein þeirra fjörutíu lista- og myndlistarmanna sem láta Ijós sitt skína í Hafnarhúsinu. Hér sést Abramovic í miðri tilraun í Serpentine Gallery í London í fyrrahaust. ffæðiþekking sem er sett inn í verk- efnið, sem maður hefur jú heyrt af að íslendingar séu að fást við, en það verður gaman að sjá þetta aug- lití til auglitis," segir Markús. Freistandi vitleysa Markús kom inn í verkefnið ásamt konu sinni, Dorothée Kirch, fýrir hálfu ári. Verkefnið hefur hins vegar verið í undirbúningi í um það bil ár og fjölmargir komið að því. Markús kveðst heldur betur hafa verið tíl í að taka þátt í verkefninu þegar eftir því var falast. „Já, já, já, það er ekki annað hægt en að taka þátt í svona vitleysu þeg- ar það stendur tíl boða," segir Mark- ús og hlær. „Mér finnst mjög gaman og spennandi að taka þátt í tilraun- um, einhverju sem er ekki fýrirfram ákveðið, þótt það að setja sam- an sýningu sem margir listamenn koma að sé alltaf tilraun í eðli sínu." Hans Ulrich Obrist sýningarstjóri „Hann langar ekki lengur til að vinna einstaka hluti sem bara lifna og deyja, eins og leiksýning sem fer á fjalirnar og er ekki til lengur eftir að sýningum lýkur nema í hugum fólks," segir Markús. Hús Bjarna Katrín Sigurðardóttir hefur hús Bjarna Jónssonar við Sóleyjargötu 13 til hliðsjónar í einu verka sinna. „Það voru allir mjög ánægðir og opnir fýrir því," segir hann. Á meðal íslenskra vísinda- manna sem taka þátt má nefiia sér- fræðing á sviði gervilima frá Öss- uri, annan sérfræðing í því hvemig sálin og lfkaminn vinna með hlátur og þann þriðja sem er á heimavelli þegar kemur að vetnisframleiðslu. „Það er því líka ákveðin lókalsér- Ekki afbrýðisamur Markús hefur sjálfur starfað sem myndlistarmaður. Hann kveðst ekkert afbrýðisamur að fá ekki að taka þátt í sjálfri listsköpuninni. „Þetta er alveg nógu skapandi fyr- ir mig. Mín myndlist hefur verið á hillunni lengi þar sem ég hef ver- ið að sinna öðrum. Þar liggur minn áhugi núna, að koma á framfæri því sem verið er að gera og stuðla að tilurð nýrrar þekkingar með samspili ólíkra þátta." Tilraunum fylgja gjarnan ein- hvers konar niðurstöður. Von- ar Markús að tilraunamaraþonið skili einhverjum niðurstöðum? „Ég held að niðurstaðan í svona ævin- týri hljóti bara að kalla á fleiri tíl- raunir. Eins og tilefnið er, að þetta rúlli áfram," segir Markús í léttum dúr, en bætir við ívið alvarlegri: „En ætli niðurstöðurnar verði ekki eins margar og gestirnir eru margir sem koma að skoða sýninguna. Að hver komist að þeirri niðurstöðu sem hann eygir fyrir sig." kristjanh@dv.is m Fjórar sýningar veröa opnaðar á Kjarvalsstöðum á sunnudag: Störskotalið á Kjarvalsstöðum Kjarvalsstaðir fara ekki var- hluta af Listahátíð í Reykjavík frek- ar en önnur söfn borgarinnar um helgina. Á sunnudaginn klukkan 16 verða þar opnaðar fjórar sýn- ingar í tengslum við hátíðina. Á sýningunni Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist verða sýnd fjölmörg ný verk eftír framsæknustu listamenn lands- ins. Þar á meðal eru Ólafur Elías- son, Hrafnkell Sigurðsson, Olga Bergmann, Hreinn Friðfinnsson, Gjörningaklúbburinn og Ragnar Kjartansson. Hin gríðarstóra innsetning I hate nature / ‘aluminati’ er önn- ur sýning sem verður opnuð á sunnudaginn. Hún fyllir nán- ast upp í garð Kjarvalsstaða. Inn- semingin er eftír einn kunnasta landslagsarkitekt heims, Mörthu Scwhartz, og er gerð í tilefni af 30 ára afmæli Félags íslenskra lands- lagsaridtekta. Þá verður opnuð sýning á lykil- verkum Kjarvals í eigu Listasafns- ins, auk verka sem fengin eru að láni hjá Listasafni íslands. Loks verður opnuð sýning í norður- salnum þar sem börn og fullorðnir geta velt fyrir sér hnettinum, land- inu og kennileitum í umhverfinu. Viðfangsefnin og þrautirnar má einnig nota tíl að kynnast verkum á öðrum sýningum safnsins. Frítt er á allar sýningarnar eins og raunin hefur verið frá áramót- um. Opnun í Kling ogBang Sirra Sigrún Sigurðardótt- ir opnar einkasýningu í Kling og Bang gallerí í dag, fostudag, klukkan 17. Sýningin ber heitið Óvissulögmálið og byggist á rannsóknarvinnu í formheim- inum. Sirra hefur unnið að því tengja saman ólíkar hugmyndir og sögu fræðihugtakanna með táknum og teikningum. Sýning- in mun standa til 22. júní og er Kling og Bang opið fimmmdaga til sunnudaga frá 14 til 18. Að- gangur er ókeypis. Ástin á tímum kólerunnar í kilju Hin seiðandi ástarsaga Ástín á tfrnum kólerunnar eftír Márquez er komin út í kilju. Sag- an er meðal óvenjulegustu | ástarsagna sem samd- ar hafa verið. Húngeristí litskrúðugri hafharborg undir lok 19. aldar. Florentíno Aríza verður ástfanginn af Fermínu Daza og bíður hennar í hálfa öld. Les- endur njóta stórbrotínna ævin- týra sem Márquez reiðir fram á listílegan hátt. Bókin er hlutí af kiljuseríunni „erlend klassík" en Guðbergur Bergsson þýðir bókina. Ragnar Kjartansson Á verk á sýningunni Draumar um ægifegurð. Kiippimyndir, ljósmyndir og þrykk Sýningin Listamaðurinn í verkinu verður opnuð í Lista- safrti Árnesinga í Hveragerði á sunnudaginn klukkan 18. Sýnd verða verk eftír Magnús Kjart- ansson sem hann vann á papp- ír milli 1982 og 1988. Magnús lést um aldur fr am árið 2006 en hafði á ferli sínum tekist á við klippimyndir, skúlptúr, ljós myndir og jjrykk. Með hverju verki sýndi hann ekki aðeins nýverkheldur nýja hugsun og nýja tækni. Sýningin verður opin til 20. júlí og er aðgangur ókeypis. Ðisney, djass og djöflar Boðið verður upp á íslenska söngveislu á Norðurbryggju í Kaup mannahöfn laugardaginn 17. maí. Söngveislan ber heitið Disney, djass og djöflar og munu nokkrir frumlegir söngvarar stíga á svið. Meðal þeirra eru Mr. Silia og Mongoose, Nina Björk Elíasson Group, Silja Heilmann meðTeppop og Sigríður Eyþórsdóttir ásamtTine Louise Kortermand.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.