Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 16. MA( 2008 HelgarblaB PV Tónlistarakademía DV segir: Hlustaðu á þessa! The Slip - Nine Inch Nails Exiting Arm - Subtle Siient Movie - Quiet Village I Wish That I Couid See You Soon - Herman Dúne Otis Blue: Otis Redding Sings Soul - Otis Redding Fjórarsveitír tUviðbótar Hróarskelduhátíðin tilkynnti á dögunum um fjórar hljómsveitir til viðbótar sem spila á hátiðinni (ár. Sveitirnar sem um ræðir eru breska þungarokksveitin Bullet for my Valentine, soul-konungurinn Solomon Burke, indísveitin og Islandsvinirnir (CocoRosie og hip- hopparinn Lupe Fiasco frá Chicago. Hins vegar neyðist breska hljóm- sveitinThe Cult til að aflýsa öllum Evróputúr slnum í sumar en sveitin hafði þegar bókað sig á Hróarskeldu. Hróarskelda 2008ferfram dagana 3. til 6. júlí en upphitun hefst 29. jún(. Enn eru einhverjir miðar eftir á hátíöina inni á midi.is en nú fer hver að verða síðastur þar sem uppselt hefur verið á hátíðina síðastliðin ár. Platafyrir feðradaginn Guns N' Roses hefur nú staðfest að sveitin muni senda frá sér plötu fyrir feðradaginn. En það er þó ekki hin langþráða Chinese Democracy heldur ætla þeir að endurútgefa Greatest Hits-plötuna s(na þann 2. júní.„Platan verðurgefin út sérstaklega fyrir feðradaginn enda eina alvöru gjöfin fyrir alla alvöru rokkpabba heimsins," segir í fréttatilkynningu frá hljómsveitinni. Enn hafa þeir hins vegar ekkert gefið upp um það hvort Chinese Democ- racy komi út í ár þrátt fyrir sögusagnir um að platan sé tilbúin og bíði þess að fara (dreifingu. Andiásveimi Einhver illur andi virðist sv(fa yfir æfingarhúsnæði landsins þessa dagana. Á stuttum tlma hafa tónlistarmenn orðið fyrir töluverðu tjóni vegna leka I æfingarhúsnæði sfnu. Fyrst var það æfingarhúsnæði Mfnuss og Jakobínurínu í Hliðunum. Varð töluvert tjón á græjum liðsmanna. Illi andinn færði sig þá yfir á Kleppsveg þar sem hljómsveitirnar Kimono, JeffWho?, Jan Mayen og fleiri æfa. Nokkurt tjón varð á græjum en beturfóren á horfðist. Nýjasti viðkomustaður andans illa er á Smiðjustíg þar sem hljómsveitirnar Reykjavlki, Amiina, Ólöf Arnalds og fleiri æfa sína tónskala. Ekkert tjón varð á græjum en margar æfingar hafa fallið niður sökum þessa. Ólafur Arnalds sendir frá sér sína aöra breiðskífu á mánudaginn, Variation of Static. Af þvi tilefni heldur hann útgáfutónleika í Iönó á sunnudagskvöldiö og heldur svo í hálfs árs túr á fimmtudaginn, um Evrópu, Bandaríkin og Asíu. Ólafur Arnalds Sendirfrá sér nýja plötu á mánudaginn. DV-mynd Sigurður ---------- // / s Á mánudaginn kemur í verslanir önnur breiðskífa tónlistarmannsins Ólafs Arnalds. Platan hefur hlotið nafnið Variation of Static og ætlar Ólafur að fagna útgáfunni með tónleikum í Iðnó á sunnudagskvöldið. „Það er kannski aðeins minna um epíkina á þessari plötu og meira um mínímalík. Ég er líka byrjaður að nota meiri elektróník en ann- ars er tónlistin bara svipuð og ég hef verið að gera þótt maður reyni alltaf að þróast aðeins," segir Ólafur um tónlistina á nýju plötunni. „Það er strengjakvartett sem spilar með mér inn á plötuna og líka á tónleikunum á sunnu- daginn," svarar Ólafur aðspurður hvort hann hafi fengið einhverja gesti til liðs við sig á plöt- unni. Fyrri breiðskífa Ólafs, Eulogy for Evolution, kom út á síðasta ári og fékk víðast hvar góð- ar viðtökur. „Ég hef túrað mjög mikið síðan í desember og er að fara út á fimmtudaginn aftur að túra um Evrópu, Bandaríkin og Asíu og verð eiginlega bara á túr í hálft ár. Strengjakvartett- inn fer með mér út og eina viku í júní hitar ís- lenska svieitn Rökkurró upp fyrir okkur. Annars eru alltaf bara mismunandi sveitir sem sjá um upphitunina." Sjálfur gefur Ólafur plöturnar sínar út hérlend- is en erlendis eru það útgáfufyrirtækin Erase Tap- es Records og Progression Records sem sjá um útgáfu og dreifingu. „Það hefur gengið mjög vel að gefa sjáifur út hérna heima. Tólf tónar sjá um dreifinguna en ég held að það sé eina vitið að gera þetta sjálfur hérna heima. Ef maður hefur tíma til þess og nennir því held ég að það sé bara miklu betra og mér finnst það líka mjög skemmtilegt." Á útgáfutónleikimum á sunnudaginn kem- ur söngvarinn Svavar Knútur úr hljómsveitinni Hraun til með að hita upp fyrir Ólaf. „Hann verður bara sóló svo þetta verða svona rólegheitatónleik- ar. Tónleikamir hefjast klukkan átta og það kostar þúsund krónur inn við dymar." krista@dv.is Fyrstur til að endurhljóðblanda Pink Floyd Hinn heimsfrægi sænski danstónlistarmaður Eric Prydz spilar á tvennum tónleikum á Broadway. Danstónlistarmaðurinn og plötusnúður- inn Eric Prydz sem einhverjir þekkja sem Pryda og Cirez D er funheitur þessa stund- ina. Þessi heimsfrægi Svíi sló rækilega í gegn með slagaranum Call on Me en ein- staklega eftirminnilegt og erótískt tónlist- armyndband fylgdi laginu. Eric Prydz kemur til með að skemmta dansglöðum fslendingum á Broadway á laugardagskvöld með tvennum tónleik- um. Annars vegar fyrir sextán ára og eldri og seinna um kvöldið fyrir tuttugu ára og eldri. Prydz er væntanlegur til landsins í dag en hann ætlar að verja helginni á fs- landi með kæmstunni og skella sér meðal annars á Gullfoss og Geysi og í jöklaferð. Eric Prydz hefur beðið um að fá plötuspil- ara til afnota á kvöldinu en í dag er mun algengara að Dj-ar notist við geislaspilara á klúbbakvöldum. „Eric Prydz minnti rækilega á sig í fyrra þegar hann fékk leyfi til þess að verða sá fyrsti og eini í heiminum til þess að end- urhljóðblanda lag með Pink Floyd. Lagið Proper Education setti hann í dansbún- ing og rataði það lag beint inn á vinsælda- lista útvarpsstöðva á fslandi sem og ann- ars staðar," segir Kristinn Bjarnason hjá Flex Music sem sér um að flytja Prydz tíl landsins. Miðasala fer fram í Skífunni, BT og á midi.is sem og í miðasölu Broadway. Að sögn tónleikahaldara rjúka miðarnir út og því fer hver að verða síðastur að næla sér í miða á þennan einstaka viðburð. krista@dv.is SEM ERIC PRYDZ GERÐI GARÐINN FRÆGAN MEÐ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.