Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 50
- 50 FÖSTUDAGUR 16. MAf 2008 Helgarblað DV •« Courjault-hjónin Segja niðurstöður suðurkóresku lögreglunnar ekki standast. Ekkert lík - ekkertmorð John George Haigh hélt að hann gæti komist upp með morð árið 1948. Hann viður- kenndi að hafa myrt átta manns, þar á meðal þriggja manna fjölskyldu. Haigh hafði losað sig við líkin með því að leggja þau í sýrubað. „Þið getið ekki sannað morð án líka," sagði hann við lögregluna. Aðferð Haighs var að skjóta fórnarlömbin og hann hélt að með því að eyða þeim í sýru fremdi hann hinn fullkomna glæp. Hann hafði rangt fyrir sér og endaði daga sína í gálganum. Hann kannaði pokana nánar og komu þá í Ijós lítil lífvana and- ^Jitsemstörðu brostnumaug- umútítómið. Raunverulegur Sherlock Sumir telja að fyrirmynd Arthurs Conan Doyle að Sher- lock Holmes hafi verið skoskur prófessor sem hét Bell. Hvað sem því líður telja aðrir að ef einhvern tímann hafi verið uppi raunverulegur Sherlock hafi það verið Jerome Caminada, lög- reglumaður sem barðist gegn glæpum um þrjátíu ára skeið í Manchester á Viktoríutímanum. Um leið og hann fékk stöðu rannsóknarlögreglumanns varð hann sérfræðingur í dulargerv- um sem gerði honum kleift að komast inn í undirheima borg- arinnar. Hæfileiki hans til að tileinka sér ólíka persónuleika varð grundvöllur að lausn ótal ráðgátna og jók við hróður hans sem lifir enn. Jean-Louis Courjault taldi sig himin höndum hafa tekið þegar honum bauðst tímabundið starf í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu árið 2005. Sökum vinnu sinnar var hann vanur að ferðast heimshorna á milli, en nú bauðst honum að taka eiginkonu sína og tvö börn með sér. Launin voru góð og fjölskyldan bjó í glæsihýsi í eigu suðurkóreska fyr- irtældsins í útjaðri höfúðborgarinn- ar. Þau höfðu bifreið til umráða og fengu reglulega launuð frí. Venju samkvæmt ákváðu þau að fara heim til Frakklands í sumarfrí í júlí og ág- úst. Fjölskyldan var vart komin heim þegar hringt var í Jean-Louis. Vinnu- veitendur hans í Suður-Kóreu vildu að hann kæmi eins fljótt og auðið var til að leysa úr noklcrum vand- ræðum sem upp höfðu komið. Þar sem hann reiknaði með stuttri dvöl í Seúl að þessu sinni skildi hann fjölskylduna eftir í Frakklandi. Eftir nokkra daga í villunni í Suður-Kór- eu var hann að verða uppiskroppa með mat og pantaði því fisk til að eiga í frystinum. Þegar hann opn- aði frystinn sá hann tvo plastpoka sem hann kannaðist ekki við. Hann kannaði pokana nánar og komu þá í ljós lítil lífvana andlit sem störðu brostnum augum út í tómið. Tvíeggja tvíburar Jean-Louis hafði þegar samband við lögregluna og sagði sínar far- ir ekki sléttar. Krufning leiddi í ljós að um var að ræða tvíeggja tvíbura sem ekki höfðu fæðst andvana. Þeir höfðu aldrei verið nærðir, voru ekld af austurlenskum uppruna, voru hvítir og höfðu verið vafðir í serv- íettur, settir í plastpoka og kom- ið fyrir í frystinum. Útilokað var að Jean-Louis og Veronika, eiginkona hans, væru viðriðin málið því Ver- onika hafði undirgengist skurðað- gerð þremur árum fyrr sem kom í veg fyrir frekari barneignir af henn- ar hálfu. Lítlar líkur voru taldar á því að börnunum hefði verið komið fyr- ir eftir að hjónin fóru í sumarfrí til Frakklands því fjölmargar eftirlits- myndavélar voru í kringum villuna og engin þeirra sýndi mannaferðir á veröndinni við húsið. Lífsýni var tekið úr Jean-Louis og honum síðan leyft að snúa í faðm fjölskyldunnar í Frakklandi. hefði falið meðgönguna fyrir eigin- manni sínum eftir að hún komst að ástarævintýrum hans. Sú staðreynd að Veronika hefði ekki getað eignast börn síðan 2002 vegna aðgerðar var týnd og tröllum gefin. Samsæriskenning Kóreska pressan staðhæfði að börnin hefðu getað fæðst skömmu fyrir ófrjósemisaðgerð Veroniku. Hjónin höfðu flutt í nýjan bæjar- hluta í Seúl skömmu eftir aðgerð- ina og ef kenning kóresku blað- anna stenst hefði hún þurft að flytja lík tvíburanna með sér á nýja heimilið. Ólíklegasta kenningin hljóðar á þann veg að Jean-Louis sé fórnar- lamb einhverrarleyniþjónustu, sem vilji koma honum á bak við lás og slá vegna einhvers sem hann kann að hafa gert. Sú kenning fékk ekki mikinn hljómgrunn á meðal þeirra sem þekkja Courjault-hjónin, sem segja að þau séu venjulegt miðstétt- arfólk sem hafi ekkert óhreint mjöl í pokahorninu. En hver settí tvíburana í fryst- inn? Fjölmiðlafár Vart var Jean-Louis lentur í Frakkiandi þegar lögregluyfirvöld í Suður-Kóreu höfðu samband við hann. Rannsókn á lífsýni hans hafði að sögn lögreglunnar leitt í ljós að hann og Veronika væru foreldr- ar tvíburanna úr frystínum. Hann hafði þegar samband við lögregl- una og sagði þetta ekki geta stað- ist. Hann sagðist geta fært sönnur á að eiginkona hans hefði ekki verið með barni síðastliðin tíu ár. Franska lögreglan fór fram á að fá lífsýni úr tvíburunum og skýrslu vegna máls- ins frá suðurkóreskum starfsfélög- um sínum. Þetta undarlega mál hefði senni- lega fengið eðlilega framvindu ef eldd hefði verið fyrir kóreska blaða- menn. Þeir fjölmenntu til Frakk- lands og fréttaflutningur þeirra af málinu lét bresku pressuna líta út eins og skólablað. Jean-Louis var sakaður um að eiga viðhald og sagt var að Veronika hefði myrt tvíbur- ana í hefndarskyni. Sagt var að hún Efnislítið dress Lögreglan og líkið Laumufarþeginn lifði ferðina af, en ekki fallið. Efhislítíll gylltur kjóll Mörchu Taylor, menntaskólanema í Madison-skólanum í Banda- ríkjunum, varð henni dýrkeypt- ur. f fyrsta lagi þóttí klæðnaður hennar of djarfur og henni því meinaður aðgangur að stærsta skóladansleik ársins og í öðru lagi þurfti hún að eyða nóttínni á bak við lás og slá. Lögreglan var fengin til að færa hana á brott í jámum eftír að hún lenti í handalögmálum við kennarann sem vísaði henni fáklæddri á dyr. Ákvörðun skólayfirvalda er sldlningi Mörchu gjörsamlega ofviða: „Mér líkar þessi kjóll mjög vel. öllum finnst kjóllinn flottur." Skólayfirvöld lém sig litlu varða hvað Mörchu fannst um kjólinn, að þeirra matí var hann of efnislítill fyrir háti'ð á vegum skólans. John Wayne Gacy frá Chicago var smiður og vel metinn fjölskyldumaður. Hann var þekktur fyrir að heimsækja barnadeildir nálægra sjúkrahúsa og skemmta börnunum sem trúðurinn Pogo. En hann átti aðra hlið sem ekki varð kunn fyrr en síðar. Á sex ára tímabili frá 1972 til 1978 nauðgaði hann og myrti þrjátíu og þrjá unga karlmenn og drengi. Hann ók um og leitaði fórnarlamba sinna, svæfði þau með klóróformi og fór með þau á heimili sitt. Þar nauðgaði hann drengjunum og kyrkti síðan. Gacy vartekinn af lífi árið 1994. Innihald frystisins kom Jean-Louis i opna skjöldu, enda átti hann að innihalda mat- væli en ekki barnalík. Hann hafði strax samband við lögreglu. Skömmu siðar fullyrti lögreglan að hann væri faðir tviburanna sem hann fann í frystinum. Dvöl Zouheirs i Frakklandi var ekki löng Landbúnaðarverkamaðurinn skýldi aug- um sínum fyrir geislum sólarinnar sem var að hníga til viðar. Ilann renndi augunum yfir ræktarlandið sem hann hafði síðast séð þremur mánuðum fyrr og hugnaðist ekki það sem hann sá. 1 lann var þess fullviss að ójafnan senr hann sá ekki langt frá var mannslík. Skömmu síðar var grunur hans staðfestur og hljóp hann sem fætur toguðu lieim að bæ og hringdi í lögregl- una. „Morð" hvíslaði hann móður og másandi þegar hann náði sambandi við lögregluna. En manngreyið hafði hrapað að ályktunum því þrátt fyrir illa útleikið líkið var ekki um morð að ræða. I.ögreglan sem mætti á svæðið rannsak- aði jarðveginn í kringum líkið sem var af karl- manni um tvítugt. Eftir að hala litið niður lyrir fætur sér litu lögreglumennirnir upp til himins þar sem gat að líta flugvélar í aðflugi til lending ar á Charles de Caulle-flugvellinum. Ilinn látni var ólöglegur innflytjandi frá Al- sír. Lögreglan komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði falið sig viö hjólabúnað flugvélar fyrir fiugtak, en þegar vélin kom inn til lend- ingar og lendingarhjólin voru sett niður féll laumufarþeginn til jarðar. Þrátt fyrir nístandi kulda, allt að fimmtíu gráðu frost, og mikil þrengsli hafði manngrey- inu tekist að iifa af sennilega tveggja klukku- stunda flugferð. En það hafði veriö skammgóð- ur vermir, þannig séð, því maðurinn hafði ekki lifað fallið af. Krufning leiddi í ljós að Zouheir, nítján ára Alsírbúi, lést afvöldum margvíslegra áverka sökum falls úr mikilli hæö.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.