Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 16. MA( 2008 FerOir DV gÁ FERÐINNI Vissir þú að... ... það er Letti sem á þann vafasama heiður að eiga heimsmet í ölvun. Fyrir nokkrum árum fannst ónefndur útigangsmaður meðvitundarlaus og flutti lögreglan hann á sjúkrahús. Áfengismagnið sem maeldist i blóðinu var ótrúlega mikið en fram að þessu hafði verið talið að svo mikið magn af áfengi hefði drepið hvern sem er. Fólk er að sjálfsögðu varað við þvl að reyna ekki að toppa metið. Allir vegir leiða til Evrópu Það eru tveir gallar við að ferðast um Eystrasaltslöndin með rútu. Eitt er rútubílstjórarnir, en sagt er að allir bllstjórar I Eistlandi sem haldist undir stýri eða kunni yfirhöfuð að keyra séu fluttir til Finnlands og farnir að keyra rútur og strætóa þar. Eiga þeir sér þá llklega sama draum og maðurinn I mynd Kaurismákis, „Ský á reiki", sem fékk vinnu við að keyra til Pétursborgar, en missti hana reyndar jafnóðum. Eitthvað hafa menn þó verið ósáttir við kjör sín þar, fyrir tveimur árum þegar ég var á leiðinni I klaustur f Austur- Finnlandi skall á verkfall rútubílstjóra og var ég því fastur I bænum Joensuu I viku, sem annars er þekktur sem helsta vlgi nýnasista I Finnlandi. Líklega hefur þó eitthvað ræst úr kjörum þeirra slðan. Að minnsta kosti eru laun enn mun hærri norðan Finnlandsflóa, þráttfyrir mikinn efnahagsuppgang I Eistlandi. Hinn gallinn við að ferðast með rútu er svo vegirnir sjálfir. Æskuminningar af íslenskum malarvegum spretta fram, þó er eins og mig minni að þeir hafi aldrei verið svona slæmir. Bjórinn frussast upp úr flösk- unni, heyrnartólin á mp3- spilaranum haldast ekki I eyrunum. Ég vildi að ég ætti eitthvað af þeim sjóveikistöflum sem gengu manna á milli á Spilatorgi I gamla daga. Þar til við sjóndeildarhringinn að maður sér glitta I himinbláan fána Evrópusambandsins, og maður veit að manni er borgið. Það er erfitt að elska ekki Evrópusambandið þegar maður er staddur I Eistlandi. Hafi einhver hús verið byggð upp eða endurnýjuð eftir 50 ára ham- farir heimsstyrjaldar og kommúnisma er oftar en ekki skilti rétt hjá skreytt Evrópu- fánanum til að sýna fram á hver borgaði brúsann. Sérstaklega þakklátur er maður fyrir Evrópuvegina, sem hvað úr hverju eru að gera ferðalög hér bærileg. Það er góður vegur á milli höfuðborgarinnarTallinn og næststærstu borgarinnar Tartu. FráTartu til Riga, höfuð- borgar Lettlands, eru kaflar sem mjög erfitt er að komast I gegnum, eins og ættartölurnar I íslendingasögunum. Það er annars merkilegt hvað lestar hér eru lltið notaðar. Þó að lest sé mun þægilegri ferðamáti þykja þær gamaldags og fara sjaldan á milli borga, og þá ekki nema þeirra allra stærstu. Rúturnar fara hins vegar reglulegar oftar hina tveggja og hálfs klukkutfma vegalengd á milliTartu ogTallinn en strætisvagnar Reykjavlkur fara á milli Reykjavlkur og Hafnarfjarð- ar. Kannski ætti maður að setja Evrópusambandið I málið, og láta það taka strætókerfi Reykjavíkur I gegn? Ferðastofan Trex ætlar í haustferð um Helsinki, Lappand og Norður-Noreg. Fararstjóri er Kristján M. Baldursson. Saminn Mikkel Nils Ferðalangar fræddir um menningu Sama og þeim boðið til kvöldverðar að hætti Sama. Myndúreirtkasafni Nordkap Þarna verður tappinn tekinn úr kampavínsflöskunni, enda ekki á hverjum degi sem staldrað er við á nyrsta odda Evrópu. Dagana 5.-12. september verður farin ferð á vegum ferðaskrifstof- unnar Trex um Helsinki, Lappland og Norður-Noreg. Fararstjóri ferð- arinnar er Kristján M. Baldursson. „Við fórum á þessar slóðir í fyrsta sinn í fyrra og heilluðumst af feg- urðinni. Þetta er haustlitaferð en haustin eru gjarnan álitin fegursti árstíminn á þessum slóðum. Ferð- in byrjar í Helsinki með skoðunar- ferð um borgina. Eftir fyrstu nótt- ina verður flogið til bæjarins Ivalo í finnska Lapplandi, norðan heim- skautsbaugs. Á þessum slóðum munum við fræðast um Sama og menningu þeirra," segir Kristján. Menning Sama Kristján segir áhugavert að kynna sér menningu Sama sem reyna hvað þeir geta til að halda í sín sérkenni. „Þeir eru líka farnir að gera mikið út á túrisma. Það er eins hjá þeim og öllum öðrum. Það er allt til sölu. Þeir verða auðvit- að að hafa eitthvert lífsviðurværi. Þeir byggja á mikilli sögu og fólk er því auðvitað mjög áhugasamt um þeirra menningu." Kristján segir að eitt af því sem gert verður í ferðinni sé að heimsækja Samafjölskyldu og kynnast þeirra matarsiðum og söngmenningu sem er mjög sér- stök. Nyrsti oddi Evrópu Eftir að hafa séð örlítið af finnska Lapplandi verður haldið til Norð- ur-Noregs með rútu. Þar verður meðal annars ekið um Finnmerk- urheiðarnar og stoppað á ýms- um áhugaverðum stöðum þar til komið verður til Hammerfest en þar verður gist í þrjár nætur. Með- al annars verður farið í skoðunar- ferð til Nordkap sem er nyrstí oddi Evrópu. „Þar verður tappinn tekinn úr kampavínsflöskunni og kaví- ar dreginn fram tíl að fagna þeim áfanga. Auk þess fá allir litprentað skjal því til sönnunar." ÓtaJ margt annað verður boðið upp á í þess- Kristján M. Baldursson Fararstjór- inn stillir sér upp fyrir myndavélina á nyrsta odda Evrópu. ari ferð og margt að sjá og upplifa. Áhugasömum um ferðina er bent á að hafa samband við ferðaskrifstof- una Trex. baidur@dv.ii Nokkrar staðreyndir um Sama og Lappland ■ Töluð eru tíu samísk tungu- mál ■ Það algengasta tala um þrjátíu þúsund manns ■ Samfska tungumálið á fjögur hundruð orð yfir hreindýr ■ Samar eru dýratrúar en það er trúin á að allt í náttúrinni hafi sál ■ Lappland er nafn ytír land- svæði sem tilheyrir Noregi, Sví- þjóð, Finnlandi og Rússlandi ■ Veðrið í Lapplandi er fremur milt á sumrin og er hitastigið í kringum 20°C. Vetur eru snjó- þungir og í köldustu mánuðum fer hitastígið niður í allt að 30°C. ■ Samar settust að í Norður- Skandinavíu fýrir um það bil fjögur þúsund árum. ■ Á sautjándu öld reyndu kon- ungsveldi Svíþjóðar og Noregs að útrýma samískri menningu. Það gerðu þau með því að neyða Sama til kristíndóms og banna tungumál þeirra. ■ Þegar landamærin milli Sví- þjóðar, Noregs og Finnlands voru kunngerð þurftu Samar að aðlaga sig menningu þess lands sem þeir tilheyrðu. ■ NordicSamiCouncilvarstofh- að árið 1956 milli Sama í Finn- landi, Noregi og Sviþjóð ■ Þó svo að í dag sé enn deilt um rétt Sama til náttúruauðlinda eru Samar og menning þeirra viður- kennd í Lapplandi. Sami og hreindýr Þessi sýn er ekki óalgeng á slóöum Sama í Lapplandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.