Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 17
PV Helgarblaö
FÖSTUDAGUR 16.MAÍ2008 17
Stjornarsattmali Geir Haarde og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir semja
stjórnarsáttmála. í honum er ákvæði
um breytingar á eftirlaunalögum.
.
Við töldum málið vera það stórt að það
ætti fullt erindi í aðra umræðu á Alþingi/
FORRETTINDANNA
ALLSHERJARNEFND
STOPPAR FRUMVARPIÐ
Frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur um afnám á eftirlaunalög-
um um alþingismenn, ráöherra og dómara situr fast í allsherj-
arnefnd. Gunnar Svavarsson segir enga þörf á nýju frumvarpi.
Nefndin ætti aö geta lagt til breytingar og afgreitt frumvarpið.
Samfylkingarfólk er óánægt meö að Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir fái skammir fyrri linkind í málinu. Sjálfstæðismenn séu
hinir raunverulegu varðmenn forréttindanna.
SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON f
bladamadur skrifar: sigtryggur@dv.is
Frumvarp um afnám sérstakra for-
réttinda ráðherra, þingmanna og
hæstaréttardómara, sem lagt var
fram á Alþingi í haust situr fast í alls-
herjarnefnd Alþingis. f frumvarpinu
leggja fjórir þingmenn Samfylking-
arinnar til að þessir æðstu embætt-
ismenn þjóðarinnar greiði í a-deild
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
og hafi þannig sömu lífeyrisréttindi
og aðrir ríkisstarfsmenn. Óeining er
um þetta í nefndinni og frumvarp-
ið fæst ekki afgreitt til annarrar um-
ræðu.
Valgerður Bjarnadóttir, fyrsti
flutningsmaður frumvarpsins, segir
að það megi skilja á Birgi Ármanns-
syni, formanni allsherjarnefndar, að
ekki sé vilji til þess að breyta þess-
um eftirlaunakjörum. „Ég er í raun-
inni engu nær um það hvort það eigi
að láta þetta frumvarp daga uppi
eða leggja til breytingar á því,“ seg-
ir hún.
Þverpólitísk óeining
Gunnar Svavarsson, meðflutn-
ingsmaður Valgerðar á frumvarp-
inu, bendir á að deilur um breyt-
ingar á eftirlaunum ráðamanna séu
líkast til þverpólitískar og þess vegna
sé mun erflðara að ná samstöðu um
breytingar. Samstaða um forréttindi
ráðamanna í lífeyrsmálum var enda
þverpólitísk þegar málið var afgreitt
á sínum tíma. Frjálslyndi flokkurinn
og Vinstihreyfingin - grænt fram-
boð studdu ekki frumvarpið. For-
menn þessara flokka voru þó utan
seilingar á meðan frumvarpið var
samþykkt. Guðjón Arnar Kristjáns-
son, formaður frálslyndra, var í út-
löndum. Steingrímur J. Sigfússon
■ var í fríi.
„Það er út af þessu sem það er
mikilvægt að svona umdeilt mál fái
umfjöllun í þinginu," segir Gunnar
Svavarsson. „Við töldum málið vera
það stórt að það ætti fullt erindi
í aðra umræðu á Alþingi. Önnur
hindrun í þessu gæti verið sú hvort
þingmannaffumvarp fái yfirhöfuð
afgreiðslu," heldur hann áfram.
Breytingar strax
í utandagskrárumræðu á Alþingi
á fimmtudag kallaði Siv Friðleifs-
dóttir eftir samráði milli allra flokka
um afgreiðslu málsins. Ögmundur
Jónasson vildi fara hraðar í sakirn-
ar og sagði ekkert því til fyrirstöðu
að afgreiða málið í snatri. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, formaður Sam-
fýlkingarinnar, varð til svara. Hún
tók undir það með Ögmundi og Siv
að frumvarp um sérréttindi ráðherra
og þingmanna væri meingallað og
sátt þyrfti að nást um breytingar.
Ingibjörg Sólrún talaði um það á
landsfundi Samfylkingar að flokkur-
inn myndi vinna ötullega að því að
breyta eftirlaunalögunum. Frétta-
stofa Stöðvar 2 hefur ítrekað minnt
á þetta loforð Ingibjargar á undan-
förnum vikum. Ingibjörg Sólrún
brást við með því að saka fréttastof-
una um póliu'ska áróðursstarfsemi.
Talað er um það í röðum Samfylk-
ingarfólks að mögulega vilji alls-
herjarnefnd ekki afgreiða frumvarp
Valgerðar vegna þess að í stjóm-
arsáttmála Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar frá því síðasta vor sé
ákvæði um breytingar á eftirlauna-
lögunum.
Taka ekki á málinu
„Allsherjarnefnd hefur haft hart-
nær átta mánuði til þess að kynna
sér innihald frumvarpsins," segir
Gunnar Svavarsson. „Það er í raun
engin sérstökástæða til þess að gera
nýtt frumvarp. Það ætti bara að gera
þær breytingar sem þarf á frumvap-
inu sem við lögðum fram til þess að
um það náist sátt og afgreiða það
svo úr nefndinni."
Valgerður Bjamadóttir telur að
þær breytingar sem Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir og Geir Haarde vilji
sjá á eftirlaunalögum ráðmanna
gangi ekki jafnlangt og þær breyt-
ingar sem hún boðar í frumvarpinu.
„Mér heyrist að ekki eigi að taka á
lífeyrisréttindunum sem slíkum,
heldur eigi aðeins að breyta reglum
um það hve snemma fólk getur farið
á eftirlaun og þeim möguleika ráða-
manna að taka eftirlaun og vinna
fulla launavinnu á sama tíma," segir
Valgerður. Hún ítrekar engu að síð-
ur að hún hafi ekki fengið að vita í
smáatriðum hvað stjórnarflokkarnir
ætli sér í málinu.
Varðmenn forréttinda
Lífeyrisréttindi em skilgreind
sem eign, og eignarrétturinn er var-
inn í stjómarskrá. Þetta virðist hafa
staðið í sumum þeim sem fjalla um
málið. Valgerður og meðflumings-
menn hennar ákváðu við gerð frum-
vaspsins að skilja þetta eftir sem
álitamál, með það fýrir augum að
flýta fýrir afgreiðslu ffumvarpsins,
sem engu að síður simr fast í alls-
herjarnefnd.
Fordæmi em fyrir því í dómum
Hæstaréttar að sambærilegur eign-
arréttur hafi verið afnuminn. Þar
nægir að nefna skerðingu á lífeyris-
réttindum sem nokkrir fyrrverandi
starfsmenn Seðlabankans urðu fýr-
ir í aðdraganda þess að lífeyrissjóðir
vom sameinaðir fýrir einkavæðingu
bankanna.
í samræðum við Samfýlkingar-
fólk stendur það eftir að óánægju
gætir með þá gagnrýni sem flokk-
urinn hefur fengið fyrir linkind við
breytingar á eftirlaunalögum. Það
sé Sjálfstæðisflokkurinn sem standi
hinn raunverulega vörð um forrétt-
indi embættísmanna umfram al-
menning.
Siv Friðleifsdóttir
Framsóknarflokki
Jón Magnússon
Frjálslynda flokki
Ellert B. Schram
Samfylkingu
Sigurður Kári
Kristjánsson
Sjálfstæðisflokki
Karl Matthíasson
Samfylkingu
Atli Gislason
Vinstri-grænum
Birgir Ármannsson
formaður
Sjálfstæðisflokki
Ágúst Ólafur
Ágústsson varaf.
Samfylkingu
Ólöf Nordal
Sjálfstæðisflokki