Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 16. MA( 2008 HelgarblaB DV íslensku bankarnir hafa dregið stórlega úr umsvifum sínum i íslensku samfélagi á þessu ári. Alls hafa á bilinu 250 til 300 manns hætt hjá bönkunum á þessu ári, helmingur vegna uppsagna. Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir bankamenn eftirsótta starfskrafta. Hann telur að bankarnir muni ná sér á flug aftur. MIKILL SAMDRATTUR BALDUR GUÐMUNDSSON bladamaður skrifar „Ég held að heildarfækkun viðskipta- bankanna og sparisjóðanna frá ára- mótum sé á bilinu 250 til 300 manns. Það er samanlagður fjöldi þeirra sem hætt hafa hjá bönkunum á þessu ári." Þetta segir Friðbert Trausta- son, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. í vikunni bárust fréttir af því að Glitnir væri búinn að segja upp 88 manns en alls hef- ur starfsmönnum Glitnis á íslandi fækkað um 160 á árinu. Það jafngild- ir því að 8 starfsmenn bankans hafi hætt í hverri viku það sem af er ári. Samdráttur í markaðsmálum f fyrra voru bankarnir afar áber- andi í íslensku samfélagi. Þeir keppt- ust við að fjármagna tónleika og aðra menningarviðburði en þar er skemmst að minnast stórtónleika á Miklatúni og í Laugardal sem voru kostaðir af bönkunum. Nú hef- ur dofnað yfir slíkum uppákomum vegna þess að bankarnir halda að sér höndum. HuldaSnorradóttir, framkvæmda- stjóri Margt smátt, segir að fyrirtæki í landinu hafi almennt dregið saman seglin, ekki síst vegna verðbólgu og veiku gengi krónunnar. Margt smátt sérhæfir sig í auglýsinga- og gjafa- vörum fyrir fyrirtæki og félagasam- tök. Hulda segir að bankarnir séu ekki undanskildir samdrættinum en vill að öðru leyti ekki tjá sig um ein- staka viðskiptahópa. Annar viðmælandi DV, sem hefur þjónustað bankana í kynningar- og markaðsmálum, segir gjörbreytingu á viðskiptum við bankana frá því sem áður var. Á síðasta ári eyddu þeir eins og þeim væru engin takmörk sett en nú væru þeir orðnir miklum mun sparsamari. Þetta hefði orðið til þess að viðskipti við bankana hefðu dreg- ist verulega saman. Uppsagnir Glitnis Friðbert segir að af þeim 250 til 300 manna hópi, sem hætt hafi hjá íslensku bönkunum á árinu, hafi um helmingi þeirra verið sagt upp störf- um. Aðspurður segir hann að þessar uppsagnir í vikunni hafi ekki komið á óvart. „ÞorsteinnMártilkynnti óbeint þegar hann tók við formennskunni að rekstrarkostnaður yrði skorinn niður. Það lá því fyrir að það yrði ein- hverjum sagt upp en Glitnir er eini bankinn sem hefur farið þá leið að segja upp hópi fólks," segir hann og bætir við að slík úrræði af hálfu bankanna komi strax upp á yfirborðið. „Þeim ber að tilkynna allar fjöldauppsagn- ir bæði til okkar og Vinnumálastofn- unar. Ég hef hins vegar ekkert heyrt af frekari aðgerðum, sem betur fer," segir Friðbert. Þegar hann er spurður um hvaða aðferðir bankarnir noti til að fækka starfsmönnum segir hann að þar séu ýmsir möguleikar. „Þeir hafa farið þá íeið að veita fólki ekki fastráðningu. Margir eru lausráðnir þannig að bankarnir hafa möguleika á að láta fólk fara að reynslutíma loknum. Þá hafa bankarnir einnig farið þá leið að semja um starfslok við fólk sem nálgast eftirlaunaaldur. Þá er þeim í sumum tilfellum greiddur uppsagn- arff estur fyrirfram," segir hann. Rjóminn af vinnumarkaðnum Friðbert segir að bankamenn séu sérlega eftírsóttir starfskraftar og að hingað til hafi langflestir, sem sagt hefur verið upp, fengið vinnu um hæl í minni fyrirtækjum. „Vinnumarkað- urinn tekur feginn við þessu fólki sem hættir hjá bönkunum. Þetta er oft á tíðum afar vel menntað fólk enda hafa þeir sogað til sín rjómann afvinnumarkaðnum, efsvo másegja. Þeir hafa mikið ráðið af verkfræðing- um, viðskipta- og hagfræðingum svo dæmi séu tekin. Þetta fólk á auðvelt með að fá sér vinnu annars staðar," segir Friðbert. Það eru þó ekki allir jafn vel settir að hans mati. „Ég hef langmestar áhyggjur af fólki sem heftír lagt það fyrir sig að vera bankamenn þegar það byrjaði á vinnumarkaðnum og er því ekki með mikla formlega menntun. Þetta fólk heftír mikla starfsreynslu en oft litla menntun. Þetta hefur ekki ver- ið vandamál hingað tíl en það er nokkuð sem gætí breyst hratt," seg- ir hann. Hann telur þessar samdrátt- araðgerðir bankanna tímabundn- Eg er alveg sannfærður um að fjármálafyrirtækin eigi eftír að spila mjög stóra rullu í samfélaginu áfram. Þetta er tímabundið aðhald en ég efast ekki um að bankarnir nái sér á flug á nýjan leik. Það ger- ist kannski ekki á þessu ári, en mjög fljótlega," segir hann að lokum. Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis Hefur tekið hressilega til hjá fyrirtækinu, Glitnir banki Um 160 fslending- ar hafa hætt hjá Glitni á árinu. Frá stórtónleikum Kaupþings á Laugardalsvelli í ágúst i fyrra Lítið hefur farið fyrir slíkum viðburðum í boði bankanna á þessu ári. GEL/ETHANOL ARINELDSTÆÐI í SUMARBÚSTAÐINN EÐA HEIMILIÐ. REYKLAUS OG LYKTARLAUS www.rumgott.is TILBOÐSDAGAR - VAXTALAUS LÁN í 6 MÁNUÐI Frí legugreining og fagleg ráðgjöf um val á heilsudýnum. BYLTING í SVEFNLAUSNUM Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 liÚHgugiiHviiinu&lofa HH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.