Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Síða 11
DV Fréttir FÖSTUDAGUR 16. MAf 2008 11 Sophia Hansen hefur skipt um lögmann. Sigurður Pétur Harðarson hefur höföað mál gegn Sophiu og seg- ir hana hafa tekið 52 milljónir króna af íjölskyldu hans. Töluna kannast Sophia ekki við. Sigurður og Sophia fóru mikinn í baráttunni „Börnin heim“ og fengu mikinn stuðning íslensku þjóðarinnar. Halim A1 biður fyrir þeim. VINSUT SK3URB „Baráttan fyrír for- ræði yfir dætrunum, Dagbjörtu og Rúnu, forðum daga varmjög kostnaðarsöm." SAGAN ) OGSOPHIU „Ég er ekki lengur lögmaður hennar Sophiu. Við urðum sátt um það," sagði Magnús Guð- laugsson, fyrrverandi lögmað- ur Sophiu Hansen. Spurð um ástæður þess að Magnús sé ekki lengur lögfræðingur henn- ar svaraði Sophia. „Það er betra að hann svari því sjálfur." Ekki náðist aftur í Magnús við vinnslu fréttarinnar. Þriggja vikna frestun varð á fyrirtöku máls sem Sigurður Pét- ur Harðarson, eitt sinn dyggasti stuðningsmaður Sophiu um bar- áttuna um börnin hennar, hef- ur höfðað gegn henni. Sigurður hefur stefnt Sophiu fyrir að hafa sólundað 52 miiljónum króna af peningum fjölskyldu hans. „Ég veit ekki hvaðan þessi tala 52 milljónir kemur" sagði Sophia og bætti við að storminn um sig væri ekkert að lægja. Fresturinn kemur frá nýjum lögffæðingi Sophiu, Stefáni Karli Kristjáns- syni, sem vildi fá tíma til að líta yfir málsgögn. „Ég er ekki búinn að sjá nein gögn og þarf að setja mig inn í málið," sagði Stefán en hann neitaði að svara af hverju Sophia óskaði eftir nýjum lög- fræðingi. Kostnaðarsöm barátta Baráttan fyrir forræðiyfir dæt- runum, Dag- björtu og Rúnu, forð- um daga var mjög kostnað- arsöm. Sophia hefur viljað halda sig til hlés vegna þess að hún og dætur hennar lifi í skugga ofbeldis. í raun geti hún varla tjáð sig um málið fyrr en einhver lausn finnist í málinu og dætur hennar séu fijálsar. En einn dag- inn mun Sophia koma fram og segja sína sögu um öll ár forræð- isdeilunnar. Því hefur hún lofað. Halim A1 hefur hins vegar blásið á slíkar frásagnir um að Dagbjört og Rúna lifi í heimi of- beldis. „Þetta eru fullorðnar kon- ur. Eldri stúlkan á fjölskyldu hér í Istanbúl. Sophia hefur komið og farið og oftsinnis hitt stelpum- ar. Ég stend ekki í vegi fyrir því," sagði Halim. Hann segist þó ekki eiga góð- ar minningar úr hinni löngu og ströngu forræðisdeilu. „Sigurður Pétur og Sophia reyndu beinlínis að eyðileggja líf mitt. Það er ekki guði þóknanlegt að gera slíkt. En ég hef unnið mig í gegnum erfið- leikana og bið fyrir þeim bænir." Óskoruð samúð þjóðarinnar Rætur málareksturs Sigurð- ar Péturs ná aftur til ársins 1992, þegar Sophiu Hansen var úr- skurðuð forsjá yfir dætrum sín- um hér á landi. Halim hafði þá farið með stúlkurnar til Tyrk- lands og meinað Sophiu að umgangast þær. í nóvember var stofnað til landssöfnunar til styrktar málarekstri Sophiu í Tyrk- Með bænirað vopni Halim Al biðurfyrirþeim Sigurði og Sophiu. landi. Til söfnunarinnar var efnt undir slagorðinu Börnin heim. Sigurður Pétur, sem þá var lands- þekktur útvarpsmaður og sá um þáttinn Landið og miðin á Rás 2, gerðist sérlegur talsmaður Soph- iu og aðstoðaði hana í barátt- unni. Mikið fé safnaðist og virt- ist Sophia eiga óskoraða samúð þjóðarinnar. Um það leyti sem söfriun- in stóð sem hæst veitti undirréttur í Istanbúl Sophiu og Halim skilnað. Sophia fékk sam- kvæmt þessum dómi að um- gangast dætur sínar í júlímánuði á hverju ári. Það stóðst ekki Sigurður Pétur ætlar að gera greinargerð um málið enda vill hann að sannleikurinn komi allur fram. Ætlar hann að gera greinargerðina ásamt lögfræð- ingi sínum Eiríki Gunnsteins- syni. Stefnandi Sigurður Pétur hefur stefnt Sophiu Hansen. Berst í bökkum Sophia Hansen stendur i ströngu þessa dagana. 25. júní 1981 Frumburður Sophiu Hansen og Halims Als, Dagbjört Vesile, fæðist. 3. október 1982 Rúna Ayisegul fæðist. 13. apríl 1984 Sophia Hansen og Halim Al ganga i hjónaband hjá fógeta. Apríl 1987 Halim Al verður (slenskur rfkisborgari. Sumarið 1990 Sophia Hansen vísar Halim Al á dyr. 15. júní 1991 Halim Al kemur með dæturnartværtil Istanbúl. 15. ágúst 1991 Halim tilkynnir að dæturnar muni ekki snúa aftur til fslands. lO.apríl 1992 Sophiu Hansen úrskurðuð forsjá dætra sinna á fslandi. 2. nóvember 1992 Landssöfnun til styrktar málarekstri Sophiu Hansen í Tyrklandi hleypt af stokkunum á Islandi. Börnin heim erslagorðið. 12. nóvember 1992 Undirréttur í Istanbúl úrskurðar lögskilnað Sophiu og Halims og veitir Halim forræði yfir dætrunum. Sophiu er veittur umgengnisréttur Íjúíi ár hvert. Þingmaður heittrúaðra múslima var vopnaður í dómssalnum. 4. febrúar 1993 Hæstiréttur ÍTyrklandi ómerkirdóm undirréttar um forræði Halims vegna galla á málsmeðferð. 28. júní 1993 Undirréttur í Istanbúl rýmkar umgengnisrétt Sophiu. 7. október 1993 Héraðsdómari í Istanbúl gengur gegn hæstarétti og staðfestir fyrri úrskurð um forræði Halims yfir stúlkunum. 30. mars 1994 Hæstirétturómerkir enn héraðsdóminn. Dómari telur að áður en forsjá verði ákveðin þurfi að fást úr því skorið hver sé hjúskaparstaða og rikisfang þeirra sem deila. 17. september 1994 Sophia brýst inn á heimili Halims með aðstoð lásasmiðs. Þar hittir hún fyrir dóttur sína Dagbjörtu. 13. júní 1996 Undirréttur í Istanbúl ákvaröar að Sophia megi umgangast dætur sínar frá 1. júlí til 31. ágúst ár hvert. 1. desember1996 Sophia hittir dætur sínar á lögreglustöð í Istanbúl eftir tveggja ára aðskilnað. Dagbjört erfimmtán ára og Rúna 14 ára. 18. mars 1997 Sophia Hansen og Halim Al sitja fyrir svörum um forræðisdeiluna í sjónvarpsþætti ÍTyrklandi. 3. júlí 1998 Halim Al fer með Dagbjörtu og Rúnu til Divigri sem er afskekkt fjallaþorp. 9. júlí 1998 Sophia hittir dætur sínar undir eftirliti í Divigri. 2. júní 2003 Rúna Ayisegul, tvítug, gengur í hjónaband í Istanbúl. Eiginmaðurinn er Ahmet Erkol, 25 ára ökukennari af efnaðri fjölskyldu. 23. september 2003 Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðar að mannréttindi hafi verið brotin á Sophiu Hansen. Tyrknesk stjórnvöld hafi ekki gripið til ráðstafana til þess að tryggja að hún fengi að hitta dætur sínar. Sophia fær 75 þúsund evrur í bætur. Stúlkurnar eru nú 20 og 21 árs. 2004 Frumburður Rúnu Ayisegul, drengurinn Hubaip, fæðist. Nóvember 2003 Sophia Hansen flyst til Tyrklands. 8. mai 2008 Mál Sigurðar Péturs Harðarsonar gegn Sophiu Hansen verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sophia segir að Sigurður vilji fá 52 milljónír frá sér. Hún kveðst hafa kært Sigurð fyrir skjalafals. 15. maí 2008 Þriggja vikna frestun á máli Sigurðar gegn Sophiu þar sem hún hafði skipt um lögmann. Hinn nýi lögmaður vildi fá frest til að lesa sér til um málið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.