Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ2008
Umræða DV
HVAÐ BAR HÆST í VIKUNNI?
Ekkert málfrelsi á Akranesi
„Það sem var að gerast á Akranesi í
vikunni er það sem ber hæst í þessari viku
og sá ótrúlegi gjörningur sem þar átti sér
stað, bara hreint og klárt valdarán af hálfu
bæjarfulltrúa þar, sem sér ekki sóma sinn í
að segja af sér. Þarna er verið að refsa mér
fyrir þær sakir einar að hafa staðið upp og
talað hátt og skýrt. Ég upplýsti kjósendur á
Akranesi um það hvað væri í bígerð en það
var ekki liðið. Þannig var reynt að sparka
mér út úr bæjarstjórninni og öllu því góða
fólki sem hefur unnið með mér. Þetta
er svona hæst í mínum huga. Málið um
Guðmund í Byrginu er bara einn allsherj-
arharmleikur, auðvitað hefur maður ekki
náð að komast framhjá því máli. Náttúru-
hamfarirnar í Kína og Búrma eru kannski
það helsta sem hefur náð til mín erlendis
frá. Málið á Akranesi er samt það sem mér
finnst helst standa upp úr."
Magnús Þór Hafsteinsson, varabæjarfuil-
trúi á Akranesi
KR-stelpur sýna föt
„Ég myndi segja að það væri þeg-
ar að, ég man ekki hvort það var í þess-
ari eða síðustu viku þegar Olga Færseth
gekk til liðs við KR. Eg tel það vera gott
fyrir kvennafótboltann og KR því ég held
þetta verði vendipunktur fyrir gott gengi
KR-liðsins í sumar. Svo er Konukvöld KR
sem við höldum í kvöld. Ég býst við hús-
fylli á Hótel Sögu og það er allt búið að
vera snarvitlaust í undirbúningi fyrir þetta
kvöld. Við stelpurnar í liðinu munum
halda tvær tískusýningar í kvöld og svo
höfum við verið á fullu við að reyna að fá
fólk til að mæta á skemmtunina. En fyrir
utan þetta er það sigur KR á liði Keflavíkur
í kvennadeildinni núna á dögunum."
Hrefna Jóhannesdóttir, fyrirliði KR
Bara stuð
„Mér finnst hæst bera glæsilega verð-
launaafhendingu Björgvins G. Sigurðs-
sonar þar sem viðskiptaráðherrann sýndi
gífurlega kænsku við að veita mér verðlaun.
Einnig hefur verið athyglisvert að fýlgjast
með dómsmáli Guðmundar í Byrginu þó
að ég hafi nú ekki nennt að þræða mig í
gegnum dómsmál. Ég er ekld nógu æstur í
leiðindi, myndi frekar nenna að horfa á ein-
hverja netta bíómynd eins og Salo eftir Pass-
olini, það tekur minni tíma. Svo er athygl-
isvert að það sé verið að segja upp svona
mörgum bankastarfsmönnum hjá Glitni, ég
er nú gamall bankastarfsmaður og tek það
nærri mér að það sé verið að segja þessu
fólki upp. Þetta er bara eins og í öllu öðru að
tæknin hefur verið mikið að leysa þessa stétt
af hólmi. Það hafa verið mikil læti í kringum
Jakob Frímann en ég sé ekkert eftir þessum
peningum í hann, það eru margir fleiri sem
sjúga spenana miklu fastar en hann. Svo er
það bara góða veðrið og bara stuð."
Gunnar Lárus Hjáimarsson,
tónlistarmaður
Frábær hátíð á Patró
„Fyrir utan að hafa unnið verðlaunin á
Skjaldborgarhátíðinni fyrir bestu heimild-
armynd er það sýningaropnun á Lista-
safni Reykjavíkur, ég vinn þar í sýningar-
deild. Þetta er stæsta myndlistarsýning
sem sett hefur verið upp á landinu og
Hans Ulrich Obrist þekktasti sýningastjóri
í heimi stjórnar sýningunni og það er fullt
af spennandi listamönnum á sýningunni.
Það hefur verið hlutverk okkar í sýningar-
deildinni að setja upp verkin og finna alla
ómögulega hluti í verkin. Við höfum varla
getað litíð upp úr vinnu, við höfum bara
verið á kafi. Svo var náttúrulega bara hátíð-
in á Patreksfirði. Strákamir sem sldpulögðu
þetta eiga hrós skilið fyrir góða hátíð. Ég
bjóst samt ekki við verðlaununum en eftir
að myndin var sýnd var fólk farið að hvísla
að okkur aðvið myndum vinna. Samt
var fullt af góðum myndum þarna og það
skiptí engu höfuðmáli að við ynnum, við
komum til að fá fi'dbakk ffá áhorfendum."
Hulda Rut Guðnadóttir,
kvikmyndagerðarkona
Lóóum er úthlutað af byggóaráði Bláskógabyggöar. Umsóknareyóublöð fyrir byggingalóóir
í Bláskógabyggó er hægt aó nálgast á skrifstofu Bláskógabyggóar,
á heimasíóu Bláskógabyggðar www.blaskogabyggd.is og á WWW.laugarvatn.net.
Öllum umsóknum skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins en hún er til húsa í Aratungu í Reykholti.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sveitarfélagsins.
Sími skrifstofunnar er 486-8808.
Einnig hefur Byggingafélag Laugarvatns
til sölu einbýlishús á lóö í þessu nýja hverfi,
húsiö verður tilbúió haustió 2008.
Hægt er að skoóa það nánar
á www.laugarvatn.net
eða hafa samband í síma 891-6588.
Byggingafélag Laugarvatns ehf | Lindarskógur 10, 840 Laugarvatn | Sfmi: 891-6588 | solvi@laugarvatn.net | www.laugarvatn.net