Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Page 30
30 FÖSTUDAGUR 16. MAl 2008 Helgarblað DV SÉRHÆFD ÞJÓNUSTA FYRIR BÍLJÖFUR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is s.chool . school bars. >^4 bars>- i school barsm school barso úr þrefaldri eigin þyngd af ávi i , , , „ , . ... , i icEHDaav MUfvrirjeppamanninn — , ...... Mismunadrif Drifhlutfoll Mælar Skriðgírar Lækkun í lág drif 6 ►O Afar vönduð pallhús í úrvali Loftdælur HIN HLIÐIN Gettalað A eins og ond ROKKSTJARNA ÍSLANDS, MAGNI ÁSGEIRSSON, MUN HALDA STÓRTÓNLEIKA MIÐVIKU- DAGINN 21. MAÍ ÁSAMT KÓR FJÖLBRAUTASKÓLA SUÐURLANDS OG HLJÓMSVEIT í ÍÞRÓTTAHÚSINU IÐU Á SELFOSSI. ÖLL BESTU OG VINSÆLUSTU LÖG QUEEN VERÐA FLUTT ÁTÓNLEIKUNUM ÞAR SEM EKKERT VERÐURTIL SPARAÐ. MAGNI MUN MEÐAL ANNARS BREGÐA SÉR (GERVI FREDDIES MERCURY. Nafn og aldur? „Guðmundur Magni Ásgeirs- son.“ Atvinna? „Tónlistarmaður." Hiúskaparstaða? „Ágæt, takk." Fjöldi barna? „Einn sonur - Marinó Bjarni." Áttu gæludýr? „Því miður, ekki þessa stund- ina." Hvaða tónleika fórst þú á síð- ast? „Ég fór á Dúndurfféttir í Hvíta húsinu - ótrúlegir!" Hefur þú komist í kast við lögin? „Ekkert sem vert er að minn- ast á." Hver er uppáhaldsflíkin þín og afhverju? „Það er AnneHagen-jakkinn minn sem ég fékk í GK á Lauga- veginum - hann er lfklega flottasta flík sem ég hef nokkum tímann átt Hefur þú farið í megrun? „Ekkiviljandi" Hefur þú tekið þátt í skipulögð- um mótmælum? „Nei, ég verð að fara að bæta úr því. Gaf reyndar einu sinni Rauða spjaldið." Trúir þú á ffamhaldslíf? „Mig langar að trúa því að það sé eitthvað meira en þessi ár sem við eigum hér en ég á samt frekar erfitt með að trúa því." Hvaða lag skammast þú þfn mest fyrir að hafa haldið upp á? „Öll tónlist á rétt á sér. Maður á aldrei að skammast sín fyrir aðhlusta, samahvaðöðmm finnst um hana." TU hvers hlakkar þú núna? „Að komast heim í heyskap." Affekvikunnar? „Að aðstoða Boris og spila á Blátt áfram styrktartónleikun- umáNASA." Hefur þú látið spá fyrir þér? „Já, ég man nú ekki alveg hvað hún sagði en ég held að eitt- hvað hafi verið ffekar nærri lagi á þeim tíma." Spilar þú á hljóðfæri? „Ég er gítareigandi.“ Styður þú ríldsstjómina? „Nei, þetta er ekkert persónu- legt eða flokkatengt, hún stend- ur bara ekki undir nafni." Hvað er mikilvægast í lífinu? „Fjölskyldan og vinimir em númer eitt til níu og tónlistin númer tíu." Hvaða ffæga einstakling myndir þú helst vilja hitta og af hverju? „Bono og Eddie Vedder, ég veit svo sem eklá alveg hvað ég myndi segja við þá. Þetta em bara menn sem ég ber óskap- lega virðingu fyrir." Ertu með tattú? „Það stendur Marinó á hend- inni á mér, það er smá per- sónulegt þar sem það táknar Marinó - son minn." Hefiirþúortljóð? „Já - söngtextar em ljóð." Hverjum líkist þú mest? „Pabba vona ég hann er ótrú- legur maður." lirtu með einhverja leynda hæfileika? „Ég get talað eins og önd - er það hæfileiki?" Af hverju stafar mannkyninu mest hætta? „Sjálfu sér - við erum eina teg- undin sem er forrituð til að self- destmct." Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi? „Þá fyrst myndi ástandi í mið- bænum um helgar verða áhuga- vert! Það ætti varla að leyfa ís- lendingum að drekka hvað þá meira." Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn? „Borgarfjörður eystri er og verður minn staður."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.