Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2008, Síða 42
42 FÖSTUDAGUR 16. MA( 2008
Helgarblað DV
Umjón: Kolbrún P. Helgadóttir. Netfang kolbrun@dv.is
HighTeaá íslandi
Veitingastaðurinn Vox á Hilton Reykjavik Nordica býður nú upp á HighTea
ífystasinná (slandi. Boðiðer uppá HighTeafrá klukkan 14til 18.Tvenns ■. .
konar High Tea-bakkar verða í boði á Vox, klassískur High Tea-bakki og svo % . '
annar með meiri áherslu á heilsukost og færri hitaeiningar. Einnig verður
serbakki i boði fyrir bornin. Að hittast a eftirmiðdögum yfir High Tea er að
ryðja sér mikið til rúms aftur í Evrópu og víðar, ekki síst meðal ungs fólks.
HVENÆR?
Attu þaðtil að baka kökurnarof
LENGIEÐA OFELDA KJÚKLINGINN? A
HEIMASlÐUNNI GORENJE.IS MA FINNA
NOKKRAR AÐFERÐIRTIL AÐ KOMAST AÐ
ÞVl HVORTMATURINN ERTILBÚINN.
■ Kjúklingur Mikilvægt er að elda
kjúkling afar vel til að koma í veg
fýrir salmónellusýkingu. En hve-
nær er hann tilbúinn? Kjúklingur-
inn er tilbúinn ef þú getur togað
legginn af og tær safi rennur úr
bringunni.
■ Kartöflur Eru kartöflurnar í
ofninum tilbúnar? Þú gætir auð-
vitað litið á klukkuna. Ef klukku-
tími er liðinn ætti kartaflan að
ölllum líkindum að vera tilbúin.
En þú getur líka bara potað að-
eins í kartöfluna með fingrinum.
Ef kartaflan gefur eftir er hún
tilbúin.
■ Humar Maður borðar ekki
humar á hverjum degi. Því er
eðlilegt að maður spyrji sig:
Hvernig veit maður hvenær hann
er tilbúinn? Hér er ráð sem er
mjög gagnlegt ef nýársgestirnir
eru að stíga inn úr dyrunum og
reynsla þín af humri er takmörk-
uð. Gríptu í humarinn með töng.
Togaðu í einn af smáu leggjunum
eða fálmurunum. Ef leggurinn
eða fálmarinn losnar auðveldlega
er humarinn tilbúinn. Þú getur
einnig séð það hvort humarinn er
tilbúinn ef kjötið er orðið hvítt og
þétt í sér.
■ Brauð Deigkennt brauð sem
festist í kinnunum er almennt
óskemmtileg lífsreynsla. Svona
geturðu séð til þess að brauðið sé
tilbúið. Danglaðu neðan í það. Ef
það gefúr frá sér skýrt tómahljóð
veistu að brauðið er bakað.
KRYDDLEGIN PAPRIKA
Þessi skemmtilegi réttur er sniðugur sem álegg
í sveitaferðina en einnig má nota hann á ristað
snittubrauð í veislum. Ekki sakar að hann er mein-
hollur.
FYRIR4-6
■ 3 stórar paprikur
■ 4tímíangreinar
■ 2 msk. fersk basilíka
■ 2 vorlaukar, gróft saxaðir
■ 1 hvítlauksgeiri, gróft skorinn
■ 1 lárviðarlauf
■ 1 tsk. paprikuduft
■ 2 Vi msk. rauðvínsedik
■ 50 ml góð ólífuolía
■ svartur pipar
■ salt
Kjarnhreinsið paprikur og skerið hverja í fjóra
hluta. Raðið þeim á ofngrind, látið hýðið snúa upp
og setjið undir grillið í ofninum. Þegar hýðið er farið
að dökkna og brenna, takið þá paprikurnar úr ofn-
inum, setjið þær í plastpoka og látið kólna alveg.
Saxið tvær tímíangreinar gróft niður og setjið
hinar tvær heilar í skál ásamt restinni af hráefn-
unum. Þegar paprikurnar hafa kólnað, takið þær
þá úr pokanum, flettið skinninu af og skerið þær
niður. Setjið paprikurnar út í skálina og blandið
vel saman, gott er að vera með einnota hanska
og nota hendurnar til að blanda því paprikurn-
ar eru svolítið viðkvæmar. Kryddið með salti og
pipar. Setjið blönduna í lokað ílát og látið standa
í að minnsta kosti 4 tíma í kæli. Berið fram sem
álegg á brauð. Blandan geymist í tvo daga á köld-
um stað.
Uppskrift frá ömmu
„Þetta er georgískur þjóðarréttur. Ég fékk hann oft hjá
ömmu minni þegar ég var lítil stúlka í Georgíu," segir Tamara
Laperashvili, matgæðingur vikunnar, um uppskriftina sem
hún deilir með lesendum. Tamara segir réttinn ávallt hafa
verið í miklu uppáhaldi hjá sér. Hún eldar réttinn nokkrum
sinnum í viku við miklar vinsældir heimilisfólksins.
Chanahi
• 500 g feitt lambakjöt
• 500gafkartöflum
• 4 stk. eggaldin
• 30gaflambafitu
• 4 stk. af lauk
• 1 glasaftómatsafa
• 500 g tómatar (má líka nota tómata í dós)
• 8 stk. hvítlauksgeirar
• 1 stk. rauð paprika
• Svartur pipar, salt og steinselja eftir smekk
Aðferð
• Skera lambakjöt í bita og salta
• Skera og flysja kartöflur
• Skera eggaldin
• Salta og pipra
• Skera rauða papriku
• Skera steinselju og hvítlauk
• Skera lauk (hringi)
• Taka pott (má líka nota djúpt, eldfast mót)
• Fyrst setja lambakjötið, svo kartöflur, eggaldin, lambafitu,
lauk, hvítlauk, tómata, steinselju og paprikuna
• Hella tómatsafanum yfir
• Setja pottinn inn í ofninn (ekki hræra í réttinum) og
hægsjóða við vægan hita í 40-45 mínútur
• Berið réttinn á borð í mótinu
SHALimAR^
INDIAN LllNCH
Imm 11:30-15:00
INDIAN - PAKISTANí CUISINE
AUSTURSTRÆTl 4, Tel: 551 0292 , www.shalimar.is
1ND1AN DINNEK
Irom 15:00-22:00