Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2008, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2008, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR lO.JÚNf 2008 Þema DV BRAGI ÞÓR JÓSEFSSON LJÓSMYNDARI GAF NÝVERIÐ ÚT LJÓSMYNDA- BÓKINA REYKJAVÍK ÚTI OG INNI. í BÓKINNI MÁ SJÁ GLÆSILEGAR LJÓS- MYNDIR EFTIR BRAGA SEM TEKNAR HAFA VERIÐ SÍÐASTA ÁRATUGINN. „I tíu ár hef ég tekið myndir með þessa bók í huga," segir Bragi Þór Jós- efsson ljósmyndari um nýútkomna ljósmyndabók sína. Bragi segir ifábært að sjá afrakst- ur vinnu sinnar samankominn í einni bók. „Ég er búinn að stefna að þessu lengi og verð að segja að það er sérstök tilfinning að sjá útkom- una." f bókinni má finna ljósmyndir af þekktum byggingjum, fólkinu í borg- inni, menningarviðburðum, íslenskri veðráttu og fleiru sem gleður augað. Aðspurður hvort einhver mynd standi upp úr hjá honum segir hann ómögu- legt að gera upp á milli þeirra. Bragi einblínir þó ekki engöngu á Reykjavík í bókinni því hann hefur tileinkað út- hverfunum og öðrum sveitarfélögum sitt hvorn kaflann í bókinni en þar má finna ljósmyndir af Kópavogskirkju, Arbæjarlaug, íbúum úthverfanna og byggingum svo dæmi séu tekin. Bragi nýtur dyggrar aðstoðar blaðamannsins og rithöfundarins 111- uga Jökulssonar en hann sá um text- ann í bókinni. Það er Skrudda sem gefur bókina út. Áhugasamir um myndimar geta haft samband við ljósmyndarann í gegnum netfangið bragi@bragi.is en einnig er Bragi með heimasíðuna bragi.is. Bragi segist ekki vera byrjað- ur á annarri bók en að framtíðin ein verði að skera úr um það hvað gerist. „Reykjavíkurborg er sífellt að breyt- ast og tel ég mjög mfldlvægt að þær breytingar séu myndaðar," segir Bragi Þór að lokum. kolbrun@dv.is itiwnw Hús i öðru sveitarfélagi Þessi glæsilega mynd er i kafla sem kallast önnur sveitarfélög.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.