Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 4

Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 4
4 GLÓÐAFEYKIR 1902, en á hinn bóginn fluttust foreldrar mínir með mig til Sauð- árkróks er ég var eins árs, og þar hef ég svo átt heima ætíð síðan, þótt fyrir hafi komið, að ég hafi dvalið annars staðar af atvinnu- ástæðunr, eitt og eitt ár. — Nokkuð, senr þér er sérstaklega minnis- stætt frá bernskuár- unum? — Onei. Líf okkar krakkanna hér í bæn- unr var nú ekki svo við- burðaríkt í þá daga, að eitt hafi brennt sia: inn í minni mitt öðru fremur. Þó minnist ég þess allvel þegar verzlunarhúsið Grána brann árið 1910. Það ár drukkn- aði einnio: Si°urður o o heit. Pálsson, læknir, í Laxá vestra. Jón Ós- mann fór, ásamt með nokkrum öðrum, til þess að sækja líkið vestur. Er þeir nálg- uðust bæinn reið Jón á undan til þess að tilkynna að þeir væru í nánd, ef einhverjir vildu koma á móti og fylgja lækni síðasta spölinn í bæinn. Man ég vel eftir Ósmann er hann kom þeysandi inn í þorpið, klæddur stuttri, gulri olíukápu. Margir fóru á móti og var líkfylgdin mjög fjölmenn er hún kom hér utan Eyrina, enda var Sigurður heitinn vinsæll og vel metinn læknir. — Hvað munu íbúar hér hafa verið margir um þetta leyti? — Um það þori ég ekki að fullyrða nákvæmlega, en á árunum 1910—1915 hafa þeir líklega verið eitthvað á milli ‘100 og 400. liærinn var þá ekki stór og var víða búið þröngt og fátæklega. Var hreint ekki óalgengt til dæmis, að 5 manna fjölskylda byggi á 12 ferm. gólffleti. Ef til vill að auki takmarkað geymslupláss. Þarna Guðmundur Sigurðsson.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.