Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 7

Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 7
GLÓÐAFEYKIR 7 gjaldsmál áhrærði, var með henni algjörlega brotið í blað. Að öðru ieyti var hér lítið um peninga manna í milli fyrr en hafnargerðin hófst 1937. En síðan hefur það haldizt að atvinnurekendur greiddu vinnulaun í peningum, án allra eftirgangsmuna, með einstaka und- antekningum þó. — Löngum hefur verið töluvert af verzlunum hér á Króknum. Veittu þær ekki stundum talsverða atvinnu? — Ja, það var þá helzt við uppskipun og útskipun á vörum. En þá var nú um minna vörumagn að ræða en nú er orðið. Ut var uáttúrulega aðallega skipað landbúnaðarafurðum, kjöti, gærum, ull og svo hrossum. Jú, þetta veitti nokkra vinnu en ekki var hún nú tekin út með sitjandi sældinni. Aðstaðan var ekki beinlínis þægileg. Lengi vel var notazt við tvær flotbryggjur. Átti Höffnersverzlun aðra en Gránuverzlunin hina. Taka varð þær upp og setja fram eftir því hvernig stóð á sjávarföllum. Svo kom bryggja Kristjáns kaupmanns Gíslasonar 1914 eða þar um bil, að því er mig minnir. Hann hafði afgreiðslu fyrir Eimskip og sá úr því um uppskipun fram yfir 1930. Við flutning vörunnar milli skips og bryggju var notaður fjórróinn bátur, sem mun hafa borið 7—8 smálestir. Úr honum var vörunum lyft upp á flotbryggjuna. Tunnurnar að vísu, — en þá fluttist talsvert af vörum í tunnum, — dregnar upp úr bátn- um með eins konar „skrvifutógi" og svo velt upp bryggjuna. Önnur vara, svo sem öll sekkjavara, var borin á bakinu upp bryggjuna, síðan upp brattan malarkamb og inn í pakkhús. Hreint engin létta- vara, því að sekkirnir voru 100—200 pund að þyngd. Út yfir tók þó að bera kolin. Það segir sig sjálft að þetta var engin sældarvinna og aðstaða öll þannig, að heita mátti að uppskipun væri ófram- kvæmanleg ef nokkurt gráð var. Oft voru menn hundrennandi við þetta, því að hlífðarföt voru engin nema ef einhverjir áttu skinn- sokka, en jafnvel þeir voru ekki algengir. Kaffisopa fengu menn sendan í flösku heimanað og það supu menn í sig á staðnum á eins stuttum tíma og mögulegt var. A vinnuaðstöðunni varð stór breyting til batnaðar, þegar gamla „hafskipabryggjan" var tekin í notkun um 1920. Á hana var sett spil til að lyfta vörunni upp úr bátunum, sem síðan var látin á sporvagn og ekið upp í pakkhús. Þá fékk hryggur- inn loksins svolitla hvíld. Svo fékk Uppskipunarfélagið sér vélbát, sem dró uppskipunarbátana milli skips og bryggju. Horfði þetta hvort tveggja til mikilla framfara, þótt sjálfsagt þyki mönnum ekki mikið til þeirra koma nú.

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.