Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 19
GLÓÐAFEYKIR
19
tíðinni eins og hingað til, að þau lagi sig að þeim skilyrðum, sem
samtíðin á hverjum tíma býður þeim. Nýjar kynslóðir verða að taka
við og móta félögin í mynd samtíðarinnar, því félagsmálahreyfing
er lifandi og síbreytileg.
Þegar rætt er um samvinnufélögin og unga fólkið vakna ýmsar
spurningar, eins og t. d. spurningin um það hvar samvinnufélögin
séu og hvar unga fólkið sé. Samvinnufélögin hér á landi eru einkum
i sveitunum, en þar er allur þorri unga fólksins ekki lengur. Þegar
samvinnufélögin voru að hazla sér völl bjuggu fjórir af hverjum
fimm íslendingum í sveitum, en nú aðeins emn af hverjum fimm.
Samvinnustarfið hefur á hinn bóginn aldrei náð verulegri fótfestu
á þeim svæðum landsins þar sem þéttbýlið er mest. Ljóst er hvað af
þessu hefur leitt og leiðir, ef fram heldur: samvinnustarfið þjónar
siminnkandi hluta þjóðarinnar.
Þessari þróun verður að snúa við. í nágrannalöndum okkar hefur
samvinnuhreyfingin náð mestum árangri sem neytendahreyfing og
samvinnufélögin hafa haft mikil áhrif í þá átt að gera neyzluvöru-
verzlun hinna fjölmennu stétta bæjanna hagkvæmari og nvtízku-
legri. Þessi þáttur samvinnustarfsins hefur verið vanræktur hér á
landi og hinn mikli fjöldi neytenda í þéttbýlinu fer á mis við þá
kosti, sem samvinnustarfið gæti veitt þeim.
Stórfelldar breytingar á verzlunarháttum eiga sér nú stað í öllum
nágrannalöndum okkar. Stórar og fullkomnar verzianir leysa marg-
ar smáar af hólmi og hafa í för með sér aukna hagkvæmni og lægra
verð. Slíkar breytingar hljóta einnig að eiga sér stað í þéttbýlinu
hér, en eins og nú standa sakir verður ekki séð, að neytendasam-
vinnufélögin séu nægilega öflug til að hafa frumkvæði og forustu
um þær breytingar. Til þess þarf félagslega vakningu á vegum nýrr-
ar kynslóðar. Þar er verðugt verkefni fyrir þann mikla fjölda æsku-
fólks, sem í þéttbýlinu býr, og skortir verkefni í samræmi við félags-
iegan áhuga sinn.
Hér hefur verið drepið á þau tvö félagsleg viðfangsefni samvinnu-
hreyfingarinnar, sem að dómi þess, sem þetta greinarkorn skrifar
eru veigamest þau, sem framtíð hreyfingarinnar veltnr á, að skjót-
ar og hagkvæmar úrlausnir finnist á. Verkefnin eru fyrir hendi
innan hreyfingarinnar, félagslegur áhugi ungu kynslóðarinnar er
tvrir hendi. Þá má ekki skorta að þetta tvennt sé leitt saman.
Helgi Bergs.