Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 21

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 21
GLOÐAFEYKIR 21 fer að vísu minnkandi og má vera að hann sé smátt og smátt að tapa trausti á sjálfum sér. . . . En flestir þeir menn, sem lýðurinn. . . kýs sér að fulltrúum, koma úr þessum hópi. En fulltrúar eru margir bæði á þingi, í hreppsnefndum, í bæjar- og borgarstjórnum, sýslu- nefndum og öðrum þjóðþrifanefndum, og er þó margt ágætt fólk ókosið. Nokkuð af þessu fólki hefur hlotið sérmenntun, en getur þó varðveitt allgóða yfirsýn utan sinna þröngu sérfræðilegu námu- ganga, getur skilið ástæður og aðstœður venjulegra manna og aukið við samfræði sína með viðkynningu við þá. I lýðræðisþjóðfélagi gegna samfræðingarnir því mikilvæga hlut- verki að sjá svo til að sérfræðingarnir komi að gagni, en merji ekki landslýðinn undir vélabeltum, tannhjólum, tölvum og andfélags- legum aðgerðum, m. ö. o. að verja almenning gegn þeirri ánauð, sem sérfræðingar hneigjast til að hneppa menn í. Samfræðingarnir, fulltrúar vorir, þurfa því að vera mennskir menn í eiginlegri merk- ingu, helzt siðaðir, með nokkra sæmdarkennd og metnað, svo að þeir glúpni ekki þegar fyrir augnagotum sérfræðinganna. Vilji einhverjir sérfræðingar smíða pýramída og marmarafóðraðar grafir á eigin kostnað, þá þeir um það; en fulltrúar vorir þurfa að geta sagt við- eigandi nei við þessa sérfróðu hagleiksmenn ef þeir vilja leggja út í slíkar smíðar á kostnað almennings. „Vér leyfum ekki að lítt bærar byrðar séu lagðar á landsmenn.“ Til þess er valdið í lýðræðinu, að fólk haldi a. m. k. fornum mannréttindum, hljóti nokkra þjónustu og haldist við lífræn störf. En valdinu ber ekki að beita til að leggja lýðinn sem pöddur undir herfi sérfræðinga og einokunarafla í menningunni.“ „Fyrir svo sem 40 árum sagði aldraður bóndi við þann, er hér hugsar: „Þá varð bylting á Suðurlandi, frændi, þegar bárujárnið kom.“ „Að hverju leyti“?, spurði ég. „Þá fyrst var auðvelt að smíða hús, sem ekki láku,“ sagði hann. En á því herrans ári 1967 bar svo við að ég tók tali blikksmið einn, nýstiginn ofan af þaki. ,,Það lekur annaðhvert hús af þessum nýju“, sagði hann. Þótt hér kynni að vera nokkuð ofmælt, þá er það vitað mál að sérfræðingum vorum hefur tekizt að ónvta ávinninga bárujárnsbyltingarinnar, og særa upp tir gröfunum drauga lekans frá moldarkofaöldinni. Þessi áhugi er að vísu skiljanlegur, en þvrfti ekki að dynja sem plága yfir margar manneskjur ef þjóðkjörnir fulltrúar vorir væru betur vakandi og( stöðvuðu með lögum leiklistartilraunir lekans, sem sérfræðingar \orir bjóða mönnum upp á og láta borga dýrum dómum." (Þankarúnir. — Allar leturbreyt. höf.).

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.