Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 22
22
GLÓÐAFEYKIR
Þetta er óneitanlega hressileg ádrepa hjá prófessornum, þótt
Glóðafeykir vilji hins vegar engan dóm leggja á réttmæti hennar.
Séra Benjamin Kristjánsson:
„Engin þörf er á því, að íslenzk kirkja og kristni leitist við að
herma eftir öðrum í ytri siðum og háttum. Hins er þörf, að íslenzk
prestastétt verði í framtíðinni æ vitrari og heiðþróaðri að hverju
ráði, sannkristnari og göfugri.“
(Kirkjuritið).
Mjólkursamlag Skagfirðinga.
Mjólkursamlagið
Innvegin mjólk á árinu 1968 var 7.024.708 kg. Meðalfeiti % 3,64.
Frá Ljanúar til 1. ágúst var aukning á innveginni mjólk um 470
þús. kg frá árinu áður, en síðari hluta ársins var mjólkin um 30Ó
þús. kg minni og í desember einum um 100 þús. kg minni en í
sama mán. 1967. — Mjólkuraukning varð um 173 þús. kg eða um
2,5% miðað við 1967. Af þessari aukningu varð aukning í Fljótum
um 119 þús. kg. Innleggjendur voru 355, hafði fækkað um 18 frá
f. ári. Meðalinnlegg var um 19.800 kg. — Flokkun mjólkurinnar var
þessi: 1. fl. 85,61%. 2. fl. 12,44%. 3. fl. 1.77% og 4. fl. 0.18% - til
muna lakara en á árinu 1967. Verðfelling nam 2.3 aurum á innv.
kg, en var aðeins 1.45 aurar á s.l. ári.
Meðal útborgun á kg var kr. 6.028 brútto, með kr. 1.60—1.70 og
kr. 1.75 á feitieiningu.