Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 23

Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 23
GLÓÐAFEYKIR 23 Flutningsgjald að samlagi var að meðaltali 47.08 aurar á kg, hækk- un um 5.88 aurar frá 1967. Sala á neyzlumjólk var 13.37% sem er 2.67% aukning frá s.l. ári og er þá meðtalið um 69 þús. ltr. sala á ógerilsn. mjólk til R.víkur. Rjómasala varð alls um 74 þús. ltr., þar af 59.500 til Reykjavíkur. Af skyri seldust um 61 tonn, þar af til framleiðenda um 25 tonn. Framleitt var: Smjör rúm 174 tonn. Mjólkurostar 45 og 30% um 248 tonn. Kasein — eða ostefni — tæp 62 tonn. Vörubirgðir í árslok: Smjör um 75 tonn. Mjólkurostar um 105 tonn og ostefni um 3 tonn. Þegar liðnar eru 3 vikur af janúarmánuði 1969 hefur innvegin mjólk numið um 240 þús. kg en var í sömu vikum s.l. ár um 325 þús. kg.. Um vöruframleiðslu hefur ekki verið að ræða það sem af er árinu nema ostefni. Það sem afgangs hefur verið af heimamarkaði hefur verið sent til Reykjavíkur sem ógerilsn. mjólk og rjómi. Gengið hefur nokkuð á birgðir af smjöri og 45% osti sem fram- leiddur var til útflutnings. Af honum hafa farið 10 tonn til Svíþjóð- ar, sem er nýr markaður, og önnur 10 tonn á Ameríkumarkað. 10 tonn af 30% mjólkurosti fara til sölu á innl. markaðinn í mánaðar- lokin. S. Þ.

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.