Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 25

Glóðafeykir - 01.04.1969, Side 25
GLÓÐAFEYKIR 25 Um Sigurð dýralœkni. Ei þarf hann að leita lags, leika kann af snilli — einn, sem vann í önnum dags allra manna hylli. Mœlt við kunningja. Nú mun fundum fækka um skeið; fyrr við undum saman; gat þá lundin létt og heið lífgað stundargaman. Eitt sinn var Jóhann í leikhúsi og fjallaði leikurinn um meyja- rán. Leikendur voru byrjendur í leiklist, en þóttu skila vel sínum hlutverkum. Er upp var staðið, sagði sessunautur Jóhanns: „Ég er alveg undrandi á hvað meyjaþjófarnir léku vel.“ Þá mælti Jóhann: Girndin bráð þeim getur léð gömul ráð án tafa, leikinn áður æft og séð af því báðir hafa. (Báðir höfðu þeir skilið við konur sínar og tekið saman við ungar stúlkur). Skömmu eftir lát Þorsteins bróður síns fór Jóhann fram hjá húsi hans, sem þá var autt og mannlaust. Þá mælti Jóhann fram þessa stöku: Fræðagengi féll hér skjótt, fiðlustrengir driipa hljóðir. Nú fær enginn oftar sótt andans feng á þessar slóðir. Til eiginkonunnar. Að þó líði ævikveld, eyðist húmið svarta, við þinn hlýja arineld á ég geisla bjarta.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.