Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 26
26
GLOÐAFEYKIR
Ellin þó að mæði mig,
má ég vera glaður:
Meðan aðeins á ég þig
er ég gæfumaður.
A fundi í kvœðamannafélaginu Iðunni.
Andans olæða aróður enn
o o
gönrul fræði og snjallar bögur.
Hér úr læðing leysa menn
iögin kvæða hrein og fögur.
Bakkus.
Hefur mannleg meinin hert
og margoft valdið sárum trega,
hversu Bakkus getur gert
o O
guðsmyndina hræðilega.
Jafningjar að lokum.
Einn þótt fangi auðnuhag,
öðrum strangur reynist skólinn,
eftir langan ævidag
undir ganga líkt nrun sólin.
O O
Hér koma svo nokkrar stökur Stefáns frá Móskógum til viðbótar
þeinr, er birtust í síðasta hefti Glóðafeykis.
Til vinar míns á 45 ára afmœli.
Veitull skaltu vera í kvöld,
á vínið ör og gjöfull.
Haltu velli í heila öld
hálfnírœði djöfull.
Klukkan stanzar.
Sízt ég forðast syndagjöld,
sviptur lífsins ráðum.
Styttist leiðin, kemur kvöld —
klukkan stanzar bráðunr.