Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 27

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 27
GLÓÐAFEYKIR 27 Bót i máli. Vangaköld er veðradís, visna að rótum grösin. Við höfum þó alltaf ís út í viskýglösin. Alltaf sveitamaður. Ekki breyta árin mér öls þótt neyti glaður. Guð einn veit það, að ég er alltaf sveitamaður. Afmœliskveðja til skipstjóra. Aukist þér heill með árum. Ekkert í vegi standi. Björt sé þín leið á bárum. Blessist þér allt í landi. Seinni villan verri hinni fyrri. Bernskusyndabátur minn til botns mun tæpast ausinn, enda sést að útgerðin er að fara á hausinn. Á óviss mið ég alltaf ræ aldrei þó að kyrri. Seinni villan verður æ verri hinni fyrri. Mér það allir mega lá mínum lífs á dögum utangarðs þó gangi hjá Guðs os; manna lö°:um. o o Oft er margt sem amar mér, ýmsir narta í snauða. Skinið bjarta skrykkjótt er. Skál í Svartadauða!

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.