Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 29

Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 29
GLÓÐAFEYKIR 29 Séð og hugsað á sýningu Landbúnaðarsýningin í ágústmánuði 1968 var í heild stórkostlega góð og öllum til mikils sóma, er að unnu. Verður hér drepið á fátt eitt af því, sem fyrir augun bar á sýningunni, svo og nokkrar hug- leiðingar í því sambandi. Fyrst nefni ég stúku Til- raunastöðvar Háskólans í meinafræði á Keldum. Þar mátti sjá marga sjúkdóms- valda undir sterkri smásjá. Mér duttu í hug hinar ósýnilegu óvættir, sem maður las um í gömlum þjóðsögum í bernsku. Voru þær ekki einmitt þarna upplýstar af þekkingu og tækni? Hvað skyldi hafa leikið líf manna og dýra öllu verr en þessar áður óþekktu óvættir, sem þarna voru sýndar í sterku ljósi með aðstoð smásjár? Þarna mátti sjá í myndum og máli hversu örlagaríkt það er fyrir hið vaxandi líf í móðurkviði, ef móðurina vantar rétt efni í fóðrið til þess að byggja upp heilbrigt afkvæmi. Þá var þarna sýndur á glöggan hátt ferill sullaveikinnar frá hundi til sauðkindar, frá sauðkind til hunds og' svo frá hundi til manns. Undir þannig löguðum kringum- stæðum getur hundurinn verið viðsjálsverður félagi unglinganna. Næst nefni ég útireiti grasræktar. Það var stórmikill fróðleikur að skoða þessa reiti, enda vel til þeirra vandað. Þarna mátti sjá gras- stofnana út af fyrir sig. Aberandi var hvað vallarfoxgrasið var fallegt og sýndist mjög girnilegt til ræktunar, sprettumikið og fallegt fóður. F.n við, sem þekkjum af reynslunni óþol þess gagnvart hinni köldu, Hróbiartur Jónasson, Hamri.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.