Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 34

Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 34
34 GLOÐAFEYKIR Úr Leirgerði FRAMHALD Arið 1942 áttu að fara fram sýslunefndarkosningar í héraðinu og var Jón (Björnsson) vondaufur um að hann mundi hitta ritarann, vin sinn, næsta vetur. Hann hafði sótt um hreppaveg fiá Ásgeirs- brekku ofan að Bakka; var hann að lýsa vegarstæðinu og sagði að vegurinn mundi liggja ofan hjá „Beinadalnum", en það er kvos þar í móunum, full af dýjum og drullupyttum. Eitt sinn er þeir vinirnir áttu tal saman um kosningahorfur Jóns, sem hann taldi ekki glæsilegar, vildi ritari þegar yrkja eftirmæli eftir hann: héldu ritara engin bönd og orti hann sem óður væri: Lengi Jón á Bakka bjó, börn hann gat og varpið jók. Flyðru og hákarl sótti í sjó, sat á fundum yfir á Krók. Eftir lífsins þunga þraut og þjark, við fanta Hólahrepps, veldi dauðans loks hann laut; lauk þar ævi vinsæls grepps. Bergt var fast á Boðn og Són, boðsmenn átu heilan hval. Síðan var sá jötunn Jón jarðaður í Beinadal. Það eitt hefur skilið þeirra vinskap — í bili —, að Jón tók það sem glósur og háð í sinn garð, að hann yrði jarðaður í Beinadalnum, þeirri argvítugu dýja- og drulluhvilft. En það meinti ritarinn alls ekki, heldur átti hann við kirkjugarðinn, sem vitanlega er fullur af beinum, enda tóku þeir aftur upp fullan vinskap er ritarinn hafði sagt hver væri sín meining. En því er þetta skýrt svo nákvæm- lega hér, að enginn seinnitímamanna þurfi að vera í neinum vafa um hvað ritarinn hefur meint, enda mætti það ekki minna vera. Það sýnir líka bezt að ritari hefur ekki meint annað en gott

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.